Fréttablaðið - 18.05.2004, Side 8
8 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
FLJÚGANDI FURÐUHLUTIR
Nú hefur komið skýring á hvaðan þessi
undarlegu ljós hafa komið sem mexíkóski
flugherinn náði myndum af fyrir stuttu en
vísindamenn segja að þau geti komið til af
gasuppgufun í himinhvolfinu.
Sögum mæðgnanna bar ekki saman:
Sýknaður af kynferðisbroti
gegn móður kærustunnar
DÓMUR Maður var sýknaður í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær af kyn-
ferðisbroti og líkamsárás. Hann var
ákærður fyrir að hafa ráðist að
móður kærustu sinnar, káfað á
henni og sogið brjóst hennar svo að
mar myndaðist.
Dóttir konunnar bjó í kjallara á
heimili foreldra sinna og hafði hún
kynnst manninum á einkamál.is.
Þau hittust um tvisvar í viku. Oftast
borðuðu þau saman og stunduðu síð-
an kynlíf. Segir dóttirin að með tím-
anum hafi SMS-skilaboð frá mann-
inum orðið grófari og lýst kynferð-
islegum áhuga á móður hennar.
Hann hafi sagst vilja sjá brjóstin á
móður hennar og hann myndi gefa
henni koníak fyrir. Næst hittust þau
heima hjá dótturinni og kom hann
með koníakspela með sér. Þá um
kvöldið fór dóttirin upp til móður
sinnar, sem kom niður og sýndi á
sér brjóstin fyrir pelann.
Þótti dómnum sögum mæðgn-
anna ekki bera saman í veigamikl-
um atriðum. Þá segir maðurinn að
hann hafi aðeins strokið yfir brjóst
móðurinnar og kysst annað brjóstið
laust. Þótti það ekki vera brot á
blygðunarsemi. ■
VIÐSKIPTI Baugur og Fengur, eignar-
hald seldu í gær samtals 26 pró-
senta hlut í Flugleiðum á genginu
níu. Kaupandi er félag í eigu Sax-
hóls, félags í eigu Nóatúnsfjölskyld-
unnar, og Byggs sem er í eigu Gunn-
ars og Gylfa sem hafa verið at-
kvæðamiklir í verktakastarfsemi.
Fyrir er stærsti eigandinn í Flug-
leiðum Oddaflug, sem er í eigu Jóns
Helga Guðmundssonar í Bykó og
Hannesar Smárasonar, aðstoðarfor-
stjóra Íslenskrar erfðagreiningar.
„Við fengum gott boð í bréfin og
ákváðum að nýta tækifærið og
selja,“ segir Skarphéðinn Berg
Steinarsson, framkvæmdastjóri hjá
Baugi. Baugur hefur lýst því yfir að
félagið hyggist draga úr starfsemi
sinni hér innanlands samfara vax-
andi fjárfestingum í Bretlandi „Það
eru fleiri hlutir til skoðunar í því
efni, en engar ákvarðanir verið
teknar.“ Meðalkaup Baugs í Flug-
leiðum voru á genginu 5,3 og sölu-
hagnaður því um 1,7 milljarðar
króna fyrir um 21 prósents hlut, án
þes að tekið sé tillit til fjármagns-
kostnaðar, en eignarhluturinn var í
framvirkum samningi. Fengur, sem
er í eigu Pálma Haraldssonar og Jó-
hannesar Kristinssonar, átti rúm
fimm prósent. Var stærstur hluti
þess keyptur á genginu 1,7 og er
söluhagnaður Fengs tæpur milljarð-
ur króna. Pálmi segist ánægður með
söluna. „Við erum ánægðir með
verðið og kaupendurna,“ segir
Pálmi.
Einar Örn Jónsson, einn eigenda
Saxhóls, segir þessi kaup hugsuð til
langs tíma. „Við höfum mikla trú á
fyrirtækinu, en gerum okkur grein
fyrir því að þetta er sveiflukenndur
rekstur.“
Ekki er við því búist að samstarf
verði með Jóni Helga og Hannesi
Smárasyni til lengdar í Oddaflugi.
Talið er að Hannes hafi með við-
skiptum dagsins styrkt stöðu sína.
Verðið í viðskiptunum þykir hátt og
telur greiningardeild Landsbankans
að það gefi til kynna að breytinga sé
að vænta í rekstri félagsins, jafnvel
með sölu eigna.
haflidi@frettabladid.is
Sprengja úr síðari
heimsstyrjöldinn:
Fannst óvænt
í Litháen
LITHÁEN, AP Hundruð íbúa
Kaunas í Litháen voru flutt á
brott frá heimilum sínum eftir
að sprengja úr síðari heims-
styrjöldinni fannst óvænt í mið-
borginni í gærmorgun.
Sprengjan, sem er þýsk að
uppruna, vóg 500 kíló og fannst
eftir að einn íbúa hverfisins sá
hluta hennar standa út úr jarð-
veginum.
Hægt var að aftengja sprengj-
una með því að bora í hana gat og
brenna sprengiefnið innanfrá.
Engum varð meint af. ■
GEORGE W. BUSH
Samkvæmt heimildum Times eru áætlanir
á borðinu um að hraða sem kostur er
brottflutningi herja Bandaríkjanna og Bret-
lands frá Írak.
Bush og Blair:
Frá Írak
hið fyrsta
ÍRAK Tony Blair og George Bush
hafa komið sér saman um áætlun
til að flýta eins og mögulegt er
brottför herja ríkjanna tveggja frá
Írak. Áætlunin hefur ekki verið
birt en breska dagblaðið Times tel-
ur sig hafa heimildir fyrir því að
samkomulag sé langt komið enda
hafa báðir aðilar fengið háðulega
útreið síðustu mánuði vegna til-
efnislítillar innrásarinnar í landið.
Enn sér ekki fyrir endann á vanda-
málunum þar og hefur stríðið þeg-
ar kostað báðar þjóðir mun meira
en nokkurn grunaði. ■
Ræstitækni
rænt frá
Flugfélagi
Íslands
– hefur þú séð DV í dag?
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Tvíréttað í
hádeginu á aðeins
1.900 kr.
Nýr hádegismatseðill alla
þriðjudaga
Matseðlar og verð á
www.holt.is
• • •
• • •
BJÖRN BJARNASON
Reykjavíkurlistinn kveðst ekkert skulda
Birni Bjarnasyni.
R-listinn:
Tilhæfulaus-
ar aðdróttanir
BORGARMÁL Í umræðum á Alþingi
síðastliðinn laugardag notaði
Björn Bjarnason, dómsmálaráð-
herra og borgarfulltrúi, ræðustól
Alþingis til að fara með tilhæfu-
lausar aðdróttanir um Reykjavík-
urlistann og fjármál hans, að því
er fram kemur í yfirlýsingu frá
borgarfulltrúum Reykjavíkurlist-
ans.
„Löngu er búið að svara því
sem þar kemur fram og varðar
Reykjavíkurlistann og einstak-
linga á honum,“ segir enn fremur.
„Reykjavíkurlistinn hefur engu
við það að bæta og skuldar Birni
Bjarnasyni ekkert í þessu efni.“ ■
GAZA, AP Ísraelskir skriðdrekar
hafa flutt sig inn á suðurhluta
Gaza-svæðisins nærri Rafah-
flóttamannabúðunum. Að sögn
ísraelska hersins er ætlunin að
einangra þorpið.
Fjöldi Palestínumanna hefur
flúið heimili sín í flóttamanna-
búðunum síðan á sunnudag en
mikil átök hafa staðið yfir síðan
í síðustu viku. Þá hóf Ísraelsher
umdeilda hernaðaraðgerð við að
jafna við jörðu hús sem talið er
að skæruliðar noti. Búist er við
að síðustu daga hafi um 80 heim-
ili verið lögð í rúst.
Hæstiréttur Ísraels úrskurð-
aði á sunnudag að herinn mætti
halda áfram að jafna við jörðu
heimili Palestínumanna til þess
að vernda líf hermanna. Eyði-
legging hundraða heimila er í
undirbúningi, að sögn yfir-
manns bandaríska hersins. Síð-
an átök Ísraela og Palestínu-
manna hófust árið 2000 hefur
ísraelski herinn jafnað við jörðu
nærri 2.000 hús í Rafah og gert
meira en 11.000 Palestínumenn
heimilislausa. ■
RÚSTIR HEIMILIS
Palestínsk stúlka í rústum
heimilis síns í útjaðri Rafah-
flóttamannabúðanna.
Hæstiréttur Ísraels leyfir eyðingu híbýla Palestínumanna:
Eyðing hundraða
heimila undirbúin
STÆRSTU EIGENDUR FLUGLEIÐA
Eignarhaldsfélagið Oddaflug 32,22%
Saxhóll og Bygg 26,94%
Skildingur, félag stjórnenda Flugleiða 10,00%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 9,92%
Flugleiðir hf. 8,59%
BREYTINGAR HJÁ FLUGLEIÐUM
Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson sitja í stjórn Flugleiða. Þeir hafa nú selt hlut sinn í félaginu. Kaupendur eru óstofnað eign-
arhaldsfélag í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar og verktakanna Gunnars og Gylfa.
Stokkað upp meðal
stærstu í Flugleiðum
Baugur og Fengur seldu hluti sína í Flugleiðum með góðum gengishagnaði.
Salan í takt við yfirlýsingar Baugs um að draga úr innlendri starfsemi.
Hannes Smárason talinn hafa sterkari stöðu eftir viðskipti dagsins.
Fyrstur til að skila inn
undirskriftalistum:
Baldur klár í
forsetaslaginn
FORSETAKOSNINGAR Stuðningsmenn
Baldurs Ágústssonar forsetafram-
bjóðanda söfnuðu nær 3.000 undir-
skriftum á aðeins fimm dögum eins
og segir í tilkynningu. Safna þarf á
bilinu 1.500 til 3.000 undirskriftum
víðsvegar um landið til að teljast
fullgildur frambjóðandi til embætt-
is forseta Íslands.
Listunum hefur verið skilað inn
til dómsmálaráðuneytis og fara
kosningarnar fram laugardaginn
26. júní. ■