Fréttablaðið - 18.05.2004, Síða 11
11ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004
Krókháls
Lyngháls
H
ál
sa
b
ra
ut
Bæjarháls
Dragháls
Fossháls
H
ál
sa
br
au
t
Norðurljós
ÁTVR
Vífilfell
Enginn hraðakstur liðinn
í kringum Dalvík:
205 teknir
fyrir
hraðakstur
LÖGREGLUMÁL 205 ökumenn hafa
verið kærðir fyrir of hraðan akst-
ur í samvinnu lögreglu á Ólafs-
firði og Dalvík frá 1. mars.
Sá sem hraðast ók var á 160
kílómetra hraða. Sýslumaður
svipti hann ökuréttindum. Lög-
reglan hefur fylgst vel með Ólafs-
fjarðarvegi frá því að snjó leysti.
Auk hraðamælinga hefur hún haft
afskipti af 28 bílbeltislausum öku-
mönnum og tekið fimm fyrir far-
símanotkun undir stýri. ■
BERLÍN, AP Condoleezza Rice,
þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkj-
anna, hvatti í gær Ahmed Qureia,
forsætisráðherra heimastjórnar
Palestínu, til þess að byggja upp
varnarlið sem gæti staðið gegn
árásum á Ísraelsmenn. Rice hitti
Qureia að máli í Berlín í gær og
átti fundurinn að undirstrika vilja
bandarískra stjórnvalda til þess
að koma á friði milli Ísraela og
Palestínumanna.
Palestínumenn hafa lýst því
yfir að Bandaríkjamenn geri það
sem í þeirra valdi standi til að
stöðva eyðileggingu heimila
Palestínumanna í Rafah-flótta-
mannabúðunum.
Rice sagði Bandaríkjamenn ít-
rekað hafa lýst yfir áhyggjum sín-
um af eyðileggingu palestínskra
heimila, sem beri ekki vott um
friðarvilja Ísraelsmanna. „Við
skiljum þörf Ísraelsmanna til
þess að verja sig,“ segir Rice. „En
við viðurkennum einnig að Ísra-
elsmenn verða að lifa í nágrenni
við Palestínumenn.” ■
Condoleezza Rice hittir Ahmed Qureia:
Palestínumenn komi
upp varnarliði
LEONEL FERNANDEZ
Vann sigur á sitjandi forseta Dóminíska
lýðveldisins í forsetakosningum á sunnu-
dag.
Dóminíska lýðveldið:
Fernandez
kjörinn aftur
DÓMINÍSKA LÝÐVELDIÐ, AP Fyrrum
forseti Dóminíska lýðveldisins,
Leonel Fernandez, vann sigur á
forsetanum Hipolito Meija í for-
setakosningunum á sunnudag.
Samkvæmt fyrstu tölum hlaut
Fernandez um 51% atkvæða.
Talið er líklegt að lægð í efna-
hagslífinu hafi hjálpað Fernandez
að komast til valda á ný, en hann
sagði af sér árið 2000 eftir að hafa
orðið uppvís að spillingu. Efna-
hagslífið var þó í blóma meðan á
valdatíð hans stóð og hagvöxtur
um 8 prósent á ári. ■
Dæmdur í fangelsi:
Rændi einum
ríkasta manni
Bandaríkjanna
CONNECTICUT, AP Maður var dæmd-
ur í 15 ára fangelsi í gær fyrir að
skipuleggja ránið á Edward
Lampert, einum ríkasta manni
Bandaríkjanna.
Játning liggur fyrir frá Ren-
aldo Rose, sem segist hafa rænt
Lampert í félagi við þrjá aðra.
Þeir sögðu Lampert að þeir hefðu
verið ráðnir til þess að drepa hann
fyrir eina milljón dollara, um 73
milljónir íslenskra króna, en gæfu
honum tækifæri til þess að kaupa
líf sitt.
Lampert var látinn laus gegn
því að hann greiddi hluta 40.000
dollara, um 10 milljónir íslenskra
króna, til mannræningjanna. Féð
var aldrei greitt en FBI tók þess í
stað málið að sér. ■
SJÚKRAHÚSI LOKAÐ VEGNA
HÓTANA Eina frjálsa sjúkrahús-
inu í Mogadishu, höfuðborg
Sómalíu, hefur verið lokað.
Starfsmenn sjúkrahússins fóru í
verkfall þar sem þeim var hótað
af byssumönnum. Byssumenn-
irnir voru sendir á sjúkrahúsið
fyrir þremur vikum af fjöl-
skyldu konu einnar, en leg kon-
unnar hafði verið fjarlægt til að
bjarga lífi hennar.
RICE TIL FUNDAR VIÐ QUREIA
Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjamanna mætir til fundar við forsætisráðherra Palestínu.
■ AFRÍKA