Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 31

Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 31
23ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004 ■ LISTAHÁTÍÐ Í DAG - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3 110 Reykjavík Sími: 591 9000 www.terranova.is Akureyri sími: 461 1099 Súpersól til Sal 27. maí Frá kr. 29.995.- Salou er einn fallegasti strandbærinn í Suður-Katalóníu héraði á Spá um 100 km frá Barcelona. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur og fó aldri. Í Salou er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður Spánar, g ingastaða, fjölbreytt næturlíf og rúmlega kílómeterslöng aðgrunn, gu Bókaðu núna og festu þér Súpersólartilboð. Þremur dögum fyrir brot svo að vita hvar þú gistir í fríinu þínu í Salou. Val um viku eða tveggj Verð frá kr. 29,995.-á mann. m/v 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000.- á mann. Verð frá kr. 39,990.-á mann. M/v 2 fullorðna í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000.- á mann. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir ermeðal þeirra dansara sem frumsýna í kvöld fjögur verk í Borgarleikhúsinu á vegum Dans- leikhússins. „Dansleikhúsið byrj- aði sem þróunarverkefni í Jazz- ballettskóla Báru en er nú komið undir hatt sjálfstæðu leikhúsanna og því orðið nýr vettvangur fyrir atvinnudansara og höfunda,“ seg- ir Lovísa Ósk. „Það var auglýst eftir frumsömdum verkum og þau fjögur sem urðu fyrir valinu til sýningar í ár eru mjög fjölbreytt með tilheyrandi húmor og drama- tík.“ Lovísa Ósk útskrifaðist úr sænsku Ballettakademíunni í Stokkhólmi árið 2002 og hefur dansað í tveimur verkum með Íslenska dansflokknum. „Eftir námið var ég í starfsþjálfun bæði í Barcelona og í Cardiff í Wales en mér finnst athyglisvert hvað það er mikið að glæðast í dansinum hér heima. Áður en ég fór út í nám fannst mér lítið um að vera annað en Íslenski dans- flokkurinn en núna fá fleiri og fleiri danshöfundar tækifæri til að sýna verk sín. Til dæmis er haldin Dansleikhúskeppni á veg- um Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins í júní og Reykjavík dansfestival er orðin árviss viðburður.“ Lovísa hefur haft nóg að gera síðan hún kom heim og vinnur nú að eigin dansverkum með sellóleikar- anum Sigurði Halldórssyni, kennir í Jazzballettskóla Báru og æfir í söngleiknum Hárinu. „Lára Stefáns- dóttir sér um dansana þar og mér líst rosalega vel á hópinn. Það er alltaf gaman að fá tækifæri til að gera eitthvað nýtt eins og til dæmis í þessu tilfelli að fá að syngja.“ En Lovísa verður í Borgarleik- húsinu í kvöld klukkan 20 ásamt fimm öðrum ungum atvinnu- dönsurum sem sýna dansleikhús- verk eftir höfundana Jóhann Frey Björgvinsson, Peter Anderson, Maríu Gísladóttir og Irmu Gunn- arsdóttur. ■ LOVÍSA ÓSK GUNNARSDÓTTIR Útskrifaðist úr Ballettakademíunni í Svíþjóð árið 2002 og æfir nú meðal annars fyrir Hárið í Austurbæ. DANS LOVÍSA ÓSK GUNNARSDÓTTIR ■ Verður á sviði Borgarleikhússins í kvöld þegar Dansleikhúsið frumsýnir fjögur verk eftir unga danshöfunda. Tilheyrandi húmor og dramatík KÁTI KOKKURINN Siggi Hall sá til þess að Stefán Jón Hafstein og aðrir sem voru viðstaddir setningu Lista- hátíðar á föstudaginn hefðu guðaveigar í glösum sínum. 17.00 Acte, leiklestur á frönskum og belgískum leikritum í Borgarleik- húsinu. Fyrri hluti. 20.00 Guðný. Tónleikar í tilefni 30 ára starfsafmælis Guðnýjar Guð- mundsdóttur konsertmeistara í Íslensku óperunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.