Fréttablaðið - 18.05.2004, Síða 32

Fréttablaðið - 18.05.2004, Síða 32
24 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ ROCKY ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Martin Kellerman Eftir Frode Överli Þegar Halldór Laxness lýsti morg- unkomunni í íslenskri sveit í einum eftirminnilegasta kafla Sjálfstæðs fólks byrjaði hann á orðunum „hæg- an hægan“ en í kjölfarið tók við lýs- ing sem gerði morguninn í augum lítils drengs að öllum heimsins morgnum og Sjálfstætt fólk að verki sem höfðar til allra, alltaf. Svona eiga morgnar líka að vera. Byrja hægt þannig að hverjum og einum gefist ráðrúm til að búa sig andlega undir geðveiki hversdags- ins sem bíður handan við fyrsta kaffibollann. Morgnarnir mínir byrja allir á Ægisíðunni klukkan rétt rúmlega átta og þeir eru alltaf fallegir, hvernig sem viðrar á himinhvolfinu eða í huga mér. Sjórinn er á sínum stað, sami maðurinn með sama hundinn gengur eftir sama göngu- stígnum. Sömu bílarnir með sama fólkinu innanborðs keyra fram hjá í sömu áttir. Morgun eftir morgun. Sömu börnin koma hlaupandi út úr sömu húsunum, með glampann í augunum. Á þessu augnabliki er allt eins og það á að vera. Síðan kemur strætó og allt breytist og ekkert verður eins. Þessir morgnar mínir minna mig alltaf, á hverjum morgni, á bíó- myndina Groundhog Day þar sem Bill Murray var fastur í sama deg- inum þar til hann lærði að elska, kasta hrokanum og lifa í sátt við sjálfan sig og umhverfi sitt. Og þeg- ar maður er byrjaður að leiða hug- ann að því einfalda í lífinu og þeim lærdómi sem má draga af því nota- lega við eilífa endurtekningu hins sama getur maður ekki stillt sig um að láta sig dreyma um að æðstu valdhafar á Íslandi og í Bandaríkj- unum gæfu sér tíma til að bíða eftir leið 6 með manni eina morgunstund þar sem það eru fyrst og fremst þeir sem ráða því hvaða hörmungar bíða manns þegar maður stígur út úr vagninum. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON BÍÐUR EFTIR STRÆTÓ Á SAMA STAÐ OG HUGSAR SÖMU HUGSANIRNAR. ■ Biðin eftir leið 6 Hmmm... Spurðu hann hvort það sé hægt að opna glugga hérna. Atvinnumaður! Við getum spurt hann um allt sem okkur langar að vita! Þetta er stór bangsi! Í flottan helli! Meiriháttar! Er það ekki svolítið nörda- legt að vera alltaf í þessum leik? Gæti þetta verið lífsförunauturinn? Er þessi langa og erfiða leit á enda? Ég rakaði þig undir hönd- unum á meðan þú svafst! Rosalega slétt, eins og hnífs- blað! Leitin heldur áfram! Þetta er miklu meira en leikur, þetta er lífsviðhorf! Og hvaða viðhorf er það? Kýla risapöndu og verða göfug manneskja? Þú fattar ekkert! Þetta snýst um að ná árangri, borða rétt, æfa og gera sitt besta! Þú ert klikk! Mér er sama hvað þú segir, ég ætla að verða Evrópumeistari! Nörda? Sigurvegarinn fær hálfa milljón og ferð til Vegas! En hálfa milljón og nýjan persónuleika? Ótrúlegt! Ég vakna við hliðina á gull- fallegri dömu... Foreldrar! Eruð þið orðin þreytt á að vera misskilin? Barnalán kynnir Foreldratal sem annað tungumál Örugg samskipti milli foreldra og barna! 2. lexía Ef skilaboðin eru: „Gerðu mig að fífli fyrir fram- an alla í búðinni,“ Segið þá: Ég útskýri seinna. HVAÐER-EDDA? Gyllinæ ðar- smyrsl

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.