Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004
©
D
IS
N
EY
Taktu
galdr
apróf
.... á h
eimasíð
unni
www
.klubb
ar.is
og fin
ndu út
hvort
þú er
t
norn e
ða dís
eða h
vaða
stjör
nu þú
tilheyr
ir.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Hringdu strax í síma 522 2020
eða skráðu þig á www.klubbar.is.
Óvæntur fylgihlutur
fylgir með hverri mánaðarsendingu
Galdraskraut að gjöf
með annarri sendingu ef þú svarar
innan 10 daga
Fyrstu tvö blöðin á verði eins
690 kr.
fyrir tvö blöð
Göldrótt áskriftartilboð
að myndasögublaði sem slegið
hefur í gegn um allan heim:
J ayde Hanson, heimsfrægurhnífakastari, hefur beðið rúss-
neska aðstoðarstúlku sína um að
giftast sér einu ári eftir að breska
þjóðin horfði á hann gera mistök í
beinni útsendingu og kasta hníf í
höfuð hennar.
Tilvonandi brúður hans, Yana
Rodionova, aðstoði hann í tilraun
hans við að slá sitt eigið heimsmet
í fyrra. Þá ætlaði hann að kasta
124 hnífum í kringum kærustuna
sína á innan við einni mínútu og
41 sekúndu. Þetta ætlaði hann að
framkvæma í morgunþættinum
This Morning, sem milljónir
manna fylgjast með á hverjum
morgni. Ekki fór betur en svo að
einn hnífanna lenti í höfði hennar.
Umsjónamenn þáttarins hlupu í
áttina til stúlkunnar, þar sem
blæddi úr höfði hennar. Hún var
send beina leið á spítalann og þar
kom í ljós að meiðsli hennar voru
minniháttar. Hún var mjög skelk-
uð en hefur greinilega fyrirgefið
kærasta sínum.
Búist er við því að 200 manns
úr öllum stærstu fjölleikahúsum
heims mæti í veisluna.
Hanson lærði að kasta hnífum
þegar hann var 11 ára gamall.
Hann setti heimsmet sitt þann 8.
apríl í fyrra, og þá var verðandi
eiginkona hans á stokknum.
Tveimur dögum síðar átti slysið
sér stað. Hanson hefur kennt
miklu stressi í sjónvarpssal um
hvernig fór, því varla hefði hann
annars farið að klikka. ■
Trip-hop og tilraunakennd el-ektrónísk tónlist hefur lengi
átt greiðan aðgang að eyrum mín-
um. Ég hef reynt að fylgja mönn-
um eins og Clifford Gilberto,
Amon Tobin og Squarepusher við
hvert fótmál. Það er með ólíkind-
um hvað þessi tónlist hefur
þróast hratt og út í margar stefn-
ur.
Wax Poetic er sveit frá New
York með Ilhan Ershahin í broddi
fylkingar. Platan Nublu Sessions
dregur nafnið sitt frá klúbbi í
eigu hans í New York þar sem
fjölmargir plötusnúðar hafa leik-
ið listir sínar.
Hljómsveitin fær risaprik í
kladdann fyrir að hefja söngferil
Noruh Jones á loft en hún lét
fyrst sjá sig með Wax Poetic. Hún
syngur í tveimur lögum. Einnig
leynast á plötunni fleiri meistar-
ar. N’Dea Davenport, fyrrum
söngkona Brand New Heavies,
syngur í einu lagi og gamli
reggíkappinn U-Roy keyrir upp
dub-stemninguna í Flight In Dub.
Tónlistin er mjög þægileg
áheyrnar og er platan mjög fjöl-
breytt. Á henni má finna róleg og
ljúf lög (Tell Me), fönkí lög
(Dreamin, Time) dansvæn (Sea
Grass) og tilraunakennd (Ori-
ental Wind). Hafði ég sérstak-
lega gaman af Sea Grass, sem
Davenport syngur. Við fyrstu
hlustun virkar það eins og hvert
annað danslag en þegar grannt
er skoðað má heyra þrælöflugar
pælingar á bak við. Lagið er til
dæmis í þremur fjórðu-takti sem
heyrist ekki oft í danslögum.
Girl er líka vert athygli, þar sem
Ilhan Ershahin finnur tyrknesk-
um uppruna sínum farveg. Arab-
ísku áhrifin allsráðandi og það
gefur laginu mikinn karakter að
söngkonan Nil Karaibrahimgil
syngur á tyrknesku.
Dauðan punkt er vart finnandi
og ljóst að Wax Poetic bætist í
hóp þeirra sem ég mun fylgja eft-
ir eins og skugginn. Hún er, í einu
orði sagt, frábær.
Smári Jósepsson
[ MYNDBÖND ]
VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
TOPP 20 - VINSÆLUSTU LEIGU-
MYNDBÖNDIN - VIKA 20
Last Samurai
DRAMA
Love Actually
GAMAN
Kill Bill Vol. 1
SPENNA
Duplex
GAMAN
Texas Chainsaw Massacre
HRYLLINGUR
Fighting Temptations
GAMAN
Once Upon a Time in Mexico
SPENNA
In the Cut
SPENNA
Finding Nemo
ÆVINTÝRI
Bringing Down the House
GAMAN
Calendar Girls
GAMAN
The Medallion
ÆVINTÝRI
Friends 10, þættir 9-1
GAMAN
Starship Troopers 2
ÆVINTÝRI
Intolerable Cruelty
GAMAN
Emperor’s Club
DRAMA
S.W.A.T.
SPENNA
Master and Commander
DRAMA
House of Sand and Fog
DRAMA
Good Boy!
GAMAN
THE LAST SAMURAI
Tom Cruise snýst gegn sínum eigin her í
myndinni The Last Samurai.
Köttur
úti í mýri
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
WAX POETIC:
NUBLU SESSIONS
Bandaríska CBS-sjónvarpsstöð-in hefur samið við framleið-
endur Everybody Loves Raymond
um að taka upp níundu og síðustu
þáttaröðina.
Aðeins verða framleiddir 16
þættir í stað 22 eins og verið hef-
ur. Óvíst var hvort þættirnir um
Raymond myndu halda áfram þar
sem aðalleikari þeirra, Ray
Romano, hafði lýst því yfir að
hann vildi hætta með þættina á
toppnum. Talið er að Romano sé
launahæsti sjónvarpsþáttaleikari
Bandaríkjanna. Fyrir síðustu
þáttaröð fékk hann í sinn hlut allt
að 140 milljónum króna fyrir
hvern þátt. „Ákvörðunin um að
halda áfram snerist alltaf um að
halda þættinum góðum og að hafa
það ekki á tilfinningunni að við
værum ekki velkomin lengur,“
sagði Romano. „Ég hlakka til að
leika þennan sérstaka eiginmann í
níunda sinn.“
Everybody Loves Raymond
var valinn besti gamanþátturinn á
síðustu Emmy-verðlaunahátíð.
Um 17,4 milljónir Bandaríkja-
manna fylgjast með þættinum í
hverri viku. ■
HNÍFAKAST
Yana sést hér nokkrum sekúndum áður en
hnífurinn endaði í andliti hennar. Hún hefur
greinilega stórt hjarta því nú ætlar hún að
giftast hnífakastaranum sem særði hana.
Heimsfrægur hnífakastari giftist aðstoðar-
stúlku sem hann kastaði hníf í hausinn á.
■ SKRÝTNA FRÉTTIN
Hnífakastari giftist fórnarlambi sínu
EVERYBODY LOVES RAYMOND
Aðalleikarar þáttarins með Emmy-
verðlaunin á síðasta ári. Upptökur
á níundu og síðustu þáttaröðinni
hefjast brátt.
■ SJÓNVARP
Raymond á skjáinn í níunda sinn
Macaulay Culkin, sem er bestþekktur fyrir leik sinn í Home
Alone-myndunum, er þessa dagana
að skrifa sjálfsævisögu sína. Bókin
á að fjalla um pressuna sem fylgir
því að vera barnastjarna og um erf-
iðleika innan fjölskyldu hans.
Culkin segist ætla að fara djúpt í
fjölskyldulíf sitt og ætlar hann til
dæmis að skrifa um málaferlin
gegn föður sínum sem á að hafa
stolið frá honum pening. Culkin er
23 ára og varð heimsfrægur fyrir
hlutverk sitt í Home Alone þegar
hann var aðeins níu ára. Hann hefur
ekki afrekað mikið í leiklistinni
eftir það. ■
■ KVIKMYNDIR
Macaulay Culkin
skrifar bók