Fréttablaðið - 18.05.2004, Side 36
28 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGURFÓTBOLTI
Enska knattspyrnulandsliðið:
EM-hópur Erikssons tilbúinn
FÓTBOLTI Sven-Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englands í
knattspyrnu, valdi í gær 23
manna leikmannahóp fyrir Evr-
ópumótið í Portúgal sem fer
fram í næsta mánuði. Hann
valdi einnig sex leikmenn til
þess að vera í biðstöðu ef ein-
hver skyldi detta úr hópnum
vegna meiðsla.
Eins og gengur og gerist voru
ekki allir á eitt sáttir við val Sví-
ans og meðal umdeildra ákvarð-
ana var að hann skyldi taka
Darius Vassell í hópinn en ekki
hinn sjóðheita Jermain Defoe.
Ledley King og Jamie Carragh-
er voru valdir í stað Wes Brown
og Gareth Southgate og svo var
Joe Cole valinn í stað félaga síns
Scott Parker. Eriksson getur
gert breytingar á hópnum til 2.
júní.
„Ég spáði mikið í því að velja
fimmta framherjann en Kieron
Dyer og Joe Cole geta báðir leik-
ið framarlega þannig að mér
fannst nóg að velja fjóra,“ sagði
Eriksson á blaðamannafundi í
gær þar sem hann þurfti að út-
skýra val sitt í langan tíma enda
landsliðsval hitamál á Englandi
rétt eins og á Íslandi. „Vonandi
verða allir heilir. Ef þessi hópur
helst heill þá verðum við mjög
sterkir í sumar.“ ■
Grasrótin grunnurinn
að áframhaldandi vexti
60 sparkvellir á vegum KSÍ munu rísa víðs vegar um landið í samvinnu við sveitarfélögin.
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Ís-
lands tilkynnti í gær hvert 60
sparkvöllum verður úthlutað til
sveitarfélaga víðs vegar um land-
ið. Alls bárust umsóknir um 105
velli frá 59 sveitarfélögum þannig
að ekki fengu allir í þetta sinn en
það er von KSÍ að hægt verði að út-
hluta fleiri völlum, sem mun velta
á samningi við framleiðanda og
auknu fjármagni til átaksins.
Átta sparkvellir verða í Reykja-
vík, þrír í Hafnarfirði og Kópa-
vogi, tveir á Akureyri og á þrjátíu
og tveimur stöðum verður einn
völlur. Eftir þessa úthlutun er ljóst
að KSÍ hefur tekist að ná til nær
allra stærri þéttbýliskjarna á land-
inu. Stefnt er að því að vellirnir
verði staðsettir við skóla þannig að
sem best nýting á þeim náist en
stærð þeirra verður 30x33.
Tilbúnir um mitt sumar
Vonast er til að helmingur vall-
anna verði tekinn í notkun um mitt
sumar en hinn helmingurinn
næsta sumar. Bæjarfélögin munu
sjá um viðhald vallanna enda
þiggja þau þá að gjöf frá KSÍ og
vonast er til að lýsing muni vera
sem best á þeim og hiti þar sem
kostur er á.
En hver er grunnhugmyndin að
þessari úthlutun sparkvalla og
hvaðan er hún komin? Geir Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri KSÍ:
„Þetta kemur þannig til að UEFA á
fimmtíu ára afmæli í ár og ákvað
að styrkja hvert aðildarsamband
um eina milljón svissneskra
franka, eða tæplega sextíu milljón-
ir króna, eingöngu til þess að
byggja sparkvelli.“ Geir segir
þetta vera hugsað sem grasrótar-
knattspyrnustarf sem eigi að ná til
gjörvallrar Evrópu: „Eins og önnur
knattspyrnusambönd í álfunni
gripum við boltann heils hugar á
lofti,“ segir Geir og bætir við:
„Sú kvöð var á gjöfinni að við
skyldum nýta fjármunina til þess
að margfalda þá til að við gætum
byggt sem flesta velli. Við tókum
því þá ákvörðun í kjölfarið að fá
sveitarfélögin í samstarf við okkur
með það að leiðarljósi að við mynd-
um einungis standa straum af
kostnaði við sjálft gervigrasið og
lagningu þess. Með þessu góða
samstarfi við sveitarfélögin hefur
okkur tekist að margfalda þennan
fjölda sparkvalla en þeir hefðu
annars orðið mun færri. Við feng-
um einnig styrki til þessa verkefn-
is og erum með góða samstarfsað-
ila og svo stuðning frá fjárlaga-
nefnd Alþingis. Þetta telur allt og
við settum okkur markmið að ná
að byggja fjörutíu sparkvelli en
náðum núna að úthluta sextíu völl-
um og það er alltaf ánægjulegt að
fara fram úr upphaflegum mark-
miðum. Eins og ég nefndi eru sam-
starfsaðilarnir sterkir en síðan
voru tilboðin sem gerð voru í
byggingu vallanna mjög hagstæð.
Við vonumst auðvitað eftir að ná
sem mestu út úr því sem við höfum
úr að spila og mér sýnist það hafa
gengið ansi vel.“
Aðspurður segir Geir að þetta
átak hafi fengið mjög góð viðbrögð
en í raun hafi þau komið nokkuð á
óvart: „Við vissum vel að þetta
verkefni myndi mælast vel fyrir
en áttum satt best að segja ekki
von á svona miklum viðbrögðum
og svona mörgum umsóknum. Í
kjölfarið er því komin nokkuð mik-
il pressa og ábyrgð á okkur að ná
að klára þessa sextíu velli innan
settra tímamarka og við þurfum að
bretta upp ermarnar enda er mikið
verk fram undan.“
Flókin og tímafrek
Svona verkefni eru flókin og
tímafrek og Geir segir þetta vera
búið að vera langt ferli: „Það er
margt í þessu,“ segir hann og held-
ur áfram: „Allt frá því hvernig
vellirnir eigi að líta út og öll um-
gjörðin í kringum þá, til samninga
við sveitarfélög og stuðningsaðila
og svo úthlutunin á sjálfum völlun-
um. Það hefur því verið í mjög
mörg horn að líta, en eins og ég
segi er mikið eftir. Grunnhugsunin
í þessu verkefni er að setja á fót
aðstöðu fyrir börn á lokuðu svæði
þar sem boltinn er alltaf í leik og
ekki þurfi reglulega að sækja hann
út í gjótu; að þetta verði öruggur
og skemmtilegur vettvangur fyrir
knattspyrnuiðkun. Þetta verður án
efa gríðarleg lyftistöng fyrir
knattspyrnuna hér á landi en það
er alveg ótrúlegt að sjá þegar mað-
ur ferðast um landið að alls staðar
sér maður knattspyrnuvelli og all-
ir að spila knattspyrnu við ýmiss
konar skilyrði. Með þessu átaki er
auðvitað verið að bæta þessi skil-
yrði barna, sérstaklega, til þess að
spila knattpyrnu. Það eru auknar
kröfur á öllum sviðum í þjóðfélag-
inu í dag og þetta er að stórum
hluta byggðarsjónarmið, hluti af
því að gera bæ enn byggilegri; að
skapa börnum betri vettvang til að
stunda vinsælustu íþróttagrein í
heimi.“
Geir er ekki í nokkrum vafa um
að bæjarfélögin sem taka þátt í
þessu muni ekki sjá eftir því: „Þau
munu græða stórkostlega á þessu
og þá sérstaklega þegar til lengri
tíma er litið. Þetta er frumkvöðla-
starf sem við erum að vinna núna
sem mun vonandi vekja menn enn
frekar til umhugsunar varðandi
grasrótarstarfið.“ Óhætt er að
segja að starf KSÍ sé mjög víðtækt
og á breiðum grunni. Undir það
tekur Geir:
„Starfið sem unnið er innan
veggja KSÍ er í raun nokkuð sér-
stakt miðað við mörg önnur knatt-
spynusambönd í Evrópu því við
erum að skipuleggja leiki fyrir
yngstu flokkana og svo upp í A-
landsleiki í alþjóðakeppnum gegn
stærstu liðum heims; þessa mínút-
una er það England - Ísland, hina
mínútuna er það sjötti flokkur og
það gerir þetta bara enn skemmti-
legra enda verður grasrótarstarfið
alltaf að vera afar virkt þar sem
það er grunnurinn að öllu starfi
innan hreyfingarinnar,“ sagði Geir
að lokum. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Þriðjudagur
MAÍ
MIKE BIBBY
Leikmaður Sacramento Kings skorar hér í
sjötta leiknum gegn Minnesota.
NBA-deildin í körfu:
Oddaleikir
fram undan
KÖRFUBOLTI Detroit Pistons tryggði
sér oddaleik með sigri á New
Jersey, 75-81, í undanúrslitum
Austurdeildar NBA-körfuboltans.
Allt annað er því uppi á teningn-
um en í fyrra en þá sigraði New
Jersey 4-0 í einvígi liðanna. Rich-
ard Hamilton fór fyrir Detroit og
skoraði 24 stig en Rasheed
Wallace kom næstur með 14. Hjá
New Jersey var Richard Jeffer-
son atkvæðamestur með 23 stig
og tók 7 fráköst, Kenyon Martin
var með 19 stig og tók einnig 7
fráköst.
Í undanúrslitum Vesturdeildar-
innar er sama staða því Sacra-
mento Kings tryggði sér oddaleik
gegn Minnesota Timberwolves
með góðum sigri, 104-87, á heima-
velli. Peja Stojakovic skoraði
mest fyrir Sacramento, 22 stig og
tók 8 fráköst. Doug Christie var
með 16 sem og Mike Bibby sem
einnig gaf 10 stoðsendingar. Hjá
Minnesota var Latrell Sprewell
atkvæðamestur með 27 stig,
Kevin Garnett setti niður 19 og
Sam Cassell 16. ■
LEIKIR
20.00 ÍBV og Breiðablik leika á
Hásteinsvelli í Landsbankadeild
kvenna í knattspyrnu.
SJÓNVARP
17.10 Olíssport á Sýn.
18.30 Saga EM í fótbolta (6:16) á
RÚV. Upphitunarþættir fyrir EM í
fótbolta sem hefst í Portúgal 12.
júní. Í þættinum er rakin saga Evr-
ópumóta landsliða frá 1960 og
fjallað um bestu leikina og leik-
mennina og fallegustu mörkin.
18.30 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.00 Trans World Sport á SÝN.
20.00 UEFA Champions Leagueá
Sýn
20.30 Fákar á Sýn. Þáttur um
hestamennsku.
21.00 History of Football á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
ENSKI LANDSLIÐSHÓPURINN:
Markverðir
David James Man. City
Paul Robinson Leeds
Ian Walker Leicester
Varnarmenn
Gary Neville Man. Utd
Phil Neville Man. Utd
Ashley Cole Arsenal
Wayne Bridge Chelsea
Sol Campbell Arsenal
John Terry Chelsea
Ledley King Tottenham
Jamie Carragher Liverpool
Miðjumenn
David Beckham Real Madrid
Paul Scholes Man. Utd
Nicky Butt Man. Utd
Steven Gerrard Liverpool
Frank Lampard Chelsea
Owen Hargreaves Bayern
München
Kieron Dyer Newcastle
Joe Cole Chelsea
Sóknarmenn
Michael Owen Liverpool
Emile Heskey Liverpool
Darius Vassell Aston Villa
Wayne Rooney Everton
Í biðstöðu
Jermain Defoe Tottenham
Richard Wright Everton
Matthew Upson Birmingham
Gareth Southgate Middlesbrough
Scott Parker Chelsea
Alan Smith Leeds
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L
GEIR ÞORSTEINSSON
Sést hér ásamt þeim Eggerti Magnússyni, formanni KSÍ, og Eyjólfi Sverris-
syni, þjálfara U-21 árs landsliðsins. Mikið verk fram undan og í mörg
horn að líta hjá KSÍ. 60 sparkvellir munu rísa. Hugsað sem grasrótarstarf.
FORINGINN KÁTUR
Silvio Berlusconi, forseti og eigandi AC
Milan, var í banastuði þar sem hann fagn-
aði sigri síns liðs í ítölsku deildinni.