Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 17
17FIMMTUDAGUR 20. maí 2004 HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 1 1 9 3 7 / si a. is borðinu skuluð þið þekkja þær Til að tryggja hámarks gæði og endingu í samræmi við kröfur nútímans notar Steypustöðin ehf. nýjustu tækni við framleiðslu á hellum og steinum. Hver hella er samsett úr tveimur lögum sem steypt eru samtímis. Hellur steinar Í efra lagið er notaður ljós og harður sandur frá Noregi sem gefur endingar- mikla og fallega áferð. Í neðra lagið er notuð þétt steypa þar sem uppistaðan er sterk íslensk fylliefni. Pantaðu tíma í ráðgjöf hjá landslagsarkitektum Steypustöðvarinnar ehf. um val á hellum og steinum þér að kostnaðarlausu. Fáðu sendan bækling á www.steypustodin.is Söludeildin er opin kl. 8-18 virka daga. Framleiðsla okkar fylgir gæðastöðlunum ÍST EN 1338:2003 og ÍST EN 1339:2003. Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800 • Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540-6855 • Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881 www.steypustodin.is Á yfir- Baráttan gegn hryðjuverkum: Virða verður mannréttindi PARÍS, AP „Ég mun leggja áher- slu á algjöra nauðsyn þess að mannréttindi og lög og regla verði virt í baráttu okkar gegn hryðjuverkum,“ sagði Jacques Chirac Frakklandsforseti í fyrradag og vísaði til þeirra mála sem hann mun taka upp á fundi átta stærstu iðnríkja heims. Fundurinn fer fram í Bandaríkjunum í næsta mán- uði. „Það er aðeins með því að vernda okkar eigin gildi í bar- áttunni gegn hryðjuverkum sem við berum sigur úr být- um,“ sagði Chirac. Þó að hann útlistaði orð sín ekki frekar þótti ljóst að þeim væri beint gegn fangamisþyrmingum í Írak. ■ Viðskiptavinir Atlantsolíu í Hafnarfirði: Vandræði með kortasjálfsalana SJÁLFSALAR „Fólk hefur lent í vandræðum með nýju korta- sjálfsalana okkar. Vanalega gleypa sjálfsalar kortin og spýta þeim út aftur að ákveðnum tíma liðnum. Í nýju sjálfsölunum hjá okkur heldur viðskiptavinurinn í kortið á meðan það er lesið,“ segir Hugi Hreiðarsson hjá Atlantsolíu. Hugi segir ástæðu þess að kortið fari ekki inn í sjálfsalann að þá sé engin hætta á að sjálfsalinn gleypi kortið. Á nýju stöðinni í Hafnarfirði er korta- sjálfsali við hverja dælu til að stytta biðtíma viðskiptavinanna. Einungis er tekið við kortum í sjálfsalann og er það til að auð- velda umsýslu um sjálfsalana og minnka hættu á að fólk í féþörf vinni skemmdir á sjálfsölunum. „Við erum að undirbúa komu viðskiptamannakorta á markað- inn, en með þeim geta einstak- lingar og fyrirtæki haldið betur utan um kaup sín á eldsneyti. Síðan er skuldfært af reikningi viðskiptamannanna eftir hvern úttektarmánuð.“ ■ FRAKKLANDSFORSETI Leit á sýningu iðnnema á dögunum. HUGI HREIÐARSSON Hugi segir að halda verði við kortið á meðan sjálfsalinn les það. Síðan er það tekið aftur út áður en haldið er áfram með viðskiptin. FJÖGUR SKIP TIL SEYÐISFJARÐAR ÁTTA SKIP TIL VESTMANNAEYJA ÁTJÁN SKIP TIL ÍSAFJARÐAR FIMM SKIP TIL HÚSAVÍKUR ÞRETTÁN SKIP TIL GRUNDARJARÐAR Reykjavíkurhafnar, því árið 2006 eigi að taka í notkun fjölnota hafn- arbakka á Skarfabakka. Þar verði hægt að taka á móti stærsta skipi heims, Queen Mary, en systurskip þess, Queen Elisabeth það næst stærsta, er væntanlegt á næsta ári. Frá 1. júlí verða hafnir lands- ins afgritar við komu skemmti- ferðaskipa til landsins. Það er gert til að koma í veg fyrir ógnir og hryðjuverk í alþjóðlegum sigl- ingum. Ágúst segir að dagleg gæsla verði við bryggjurnar þegar skemmtiferðaskipin séu í höfn. „Það er þó ekki enn komið á hreint hvernig gæslunni verði háttað, hvort tollurinn eða lög- reglan komi þar að.“ Ágúst segir þó ljóst að Reykjavíkurhöfn þurfi að byggja upp á þremur stöðum og að ekki sé aðeins um öryggis- gæslu skemmtiskipanna að ræða heldur einnig aukið eftirlit með almennum vöruflutningum. gag@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.