Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 20. maí 2004 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 VIKA 20 HITMAN CONTRACTS PC&PS2&XBOX UEFA EURO 2004 Allar tölvur BATTLEFIELD VIETNAM PC COUNTER STRIKE: CONDITION... PC SIMS DOUBLE DELUXE PC FAR CRY PC RISE TO HONOUR PS2 FIFA FOOTBALL 2004 Allar tölvur UNREAL TOURNAMENT 2004 PC SONIC HEROES Allar tölvur WARCRAFT 3: BATTLECHEST PC SIMS ON HOLIDAY PC FIGHT NIGHT 2004 PS2&XBOX YU-GI-OH! DUALIST OF ... PS2 CIVILIZATION CONQUEST PC 37 H öf un da rr ét tu r © 2 00 4 N ok ia . A llu r ré tt ur á sk ili nn . N ok ia o g N ok ia C on ne ct in g Pe op le e ru s kr ás et t vö ru m er ki í ei gu N ok ia C or po ra tio n. B lu et oo th e r sk rá se tt v ör um er ki í ei gu B lu et oo th S IG , I nc . Einfaldleiki. Einfalda›u samskiptin. fiú notar handfrjálsan Bluetooth me› Nokia 6230 me›an flú skrifar tölvupóstinn, lítur í dag- bókina e›a drekkur kaffi›. Allt í flægilegum og glæsilegum síma. Njóttu fless. www.nokia.com Njóttu hans. Drew Carey með nýja gamanþætti SJÓNVARP Grínistinn Drew Carey, sem nýlega hætti á ABC-sjón- varpsstöðinni með gamanþættina The Drew Carey Show vegna dvínandi vinsælda, hefur samið við WB-sjónvarpsstöðina um að búa til nýja gamanþætti. Þættirnir kallast Carey’s Green Screen Show og mun þeim svipa til eldri gamanþáttaraðar Carey sem kallaðist Whose Line Is It Anyway. Munu leikararnir í nýju þáttunum framkvæma furðulegar hugmyndir sem koma frá áhorfendum í sjónvarpssal. Á meðal leikara verður Kathy Kinn- ey, sem fór með hlutverk Mimi, erkifjanda Carey í The Drew Carey Show. ■ Bitinn af hættu- legu skordýri FÓLK Leikarinn Ewan McGregor neyddist til þess að leita sér neyð- arhjálpar lækna í Turkistan á mánudag eftir að hafa verið bitinn af baneitruðu skordýri. Höfuð leikarans bólgnaði upp og hefði bitið getað dregið hann til dauða hefði hann ekki leitað sér hjálpar strax. Leikarinn ferðast nú ásamt félaga sínum og kollega Charley Boorman um heiminn á mótor- hjóli sér til yndisauka. Þeir hafa kosið að sofa frekar í tjöldum í ferðinni en á hótelum, sem er vissulega áhættusamara. Þeir sem undirbjuggu ferðina fyrir McGregor hafa ráðlagt hon- um að fresta rest ferðarinnar á meðan hann jafnar sig. Líka til þess að koma honum undir hendur sérfræðinga. Leikarinn ákvað þó að hunsa ráð starfsmanna sinna og halda ferðinni áfram. Læknar óttast að skordýrið hafi verið blóðsuga og því er mögulegt að blóð leikarans sé sýkt. Læknar á staðnum fullyrtu þó að bitið ætti að vera skaðlaust þar sem leikarinn væri enn á meðal okkar. Á næstu þremur mánuðum ætla McGregor og Boorman að keyra í gegnum Evrópu, Mongól- íu, Síberíu og Norður Ameríku. ■ CAMERON DIAZ Draumur hennar er að eiga ekki samskipti við annað fólk í heilan mánuð. Diaz vill búa ein KVIKMYNDIR Leikkonan Cameron Diaz segist vera einfari og hafi ekki í hyggju að búa með ein- hverjum í framtíðinni. „Ég held að ég gæti ekki búið með nein- um,“ sagði Diaz sem er 31 árs. „Mér finnst gott að vera ein með sjálfri mér. Ég leik mér líka mik- ið við kettina mína. Draumur minn er að lifa einn mánuð án þess að eiga samskipti við nokkurn annan.“ Diaz, sem á í ástarsambandi við söngvarann Justin Timber- lake, segist reyna að taka frá tíma fyrir sjálfa sig því þannig nái hún jafnvægi í lífi sínu. ■ EWAN MCGREGOR Þurfti að leita sér læknishjálpar þegar höf- uð hans bólgnaði upp eftir skordýrabit. Unnendur Star Wars bálksins eru líklegast ekki sama, þar sem leikarinn á enn eftir að leika í nokkrum senum næstu myndar. [ TÖLVULEIKIR ] SÖLUHÆSTU LEIKIRNIR THE DREW CAREY SHOW Vegna dvínandi vinsælda þáttanna í Bandaríkjunum ákvað ABC-sjónvarps- stöðin að hætta framleiðslu þeirra.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.