Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 30
22 20. maí 2004 FIMMTUDAGUR ■ AFMÆLI Þennan dag árið 1973 senduBretar sjóher sinn til að vernda togara sína í þorska- stríðinu þar sem deilt var um út- færslu landhelgi Íslands í 50 mílur. Þrjár freigátur, Kleópatra, Plymouth og Lincoln, sigldu með- fram bresku togurunum. Bresku sjómennirnir höfðu hótað því að þeir færu ekki aftur til sjós án verndar sjóhersins gegn íslensk- um herskipum. Bresku togararnir höfðu siglt á íslensku svæði síðan Íslendingar færðu landhelgina átta mánuðum fyrr úr þremur mílum í 50. Ákvörðun um að senda út sjó- herinn var tekin þremur dögum fyrr. Togaraeigendurnir og sjó- mennirnir höfðu verið ósammála um hvort þiggja ætti hjálp frá hernum eður ei. Eigendur togar- anna óttuðust að nærvera sjó- hersins myndi takmarka veiðarnar eins og gerst hafði í fyrra þorska- stríðinu þrettán árum fyrr. ■ ■ ANDLÁT Guðrún Ásta Torfadóttir, Dalbraut 14, áður til heimilis í Heiðargerði 16, Reykjavík, lést sunnudaginn 16. maí. Gróa Finnsdóttir, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður til heimilis á Strandgötu 85, Hafn- arfirði, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Knútur Ármann rafvirkjameistari, Breið- vangi 8, Hafnarfirði, lést mánudaginn 17. maí. Stefán Stefánsson, útgerðarmaður og skipstjóri, Dalvík, lést laugardaginn 15. maí. Pétur Jónasson gítarleikari er 45 ára. Heimir Már Pétursson upplýsinga- fulltrúi er 42 ára. Ólafur H. Kristjánsson, aðstoðarþjálfari danska fótboltaliðsins AGF, er 36 ára. Listamaðurinn ÁsmundurSveinsson fæddist á þessum degi árið 1893. Af því tilefni verður í dag opnuð yfirlitssýning á verkum hans í Ásmundarsafn- inu við Sigtún. „Við höfum haft það að venju að opna sýningar í kringum 20. maí til að minnast fæðingardags listamannsins,“ segir Ólöf K. Sigurðardóttir sýn- ingarstjóri. „Verkin eru frá því að Ásmundur lauk námi í Svíþjóð og til síðustu verka hans.“ Maðurinn og efnið er titill sýn- ingarinnar. „Í mörgum verkum Ásmundar er athyglisvert að skoða hvernig hugmyndin að listaverkunum og efnið sem hann velur að nota verkar á hvort ann- að. Sum verkin eru til í ýmsum útgáfum eftir því hvort hann hefur notast við tré, brons eða gifs við listsköpunina. Þessi verk eru frá fyrri hluta ferils Ás- mundar og er athyglisvert að bera þau saman við verkin frá seinni hluta ævi hans en þá vinn- ur hann mikið í járn. Ásmundur sem fæddist á Kolsstöðum í Dalasýslu var frumkvöðull í íslenskri högg- myndalist. „Hann lærði í Stokk- hólmi hjá þekktum sænskum myndhöggvara sem hét Carls Milles. Hann var einnig þrjú ár í París og það hefur örugglega haft talsverð áhrif á Ásmund að kynnast því sem var að gerast í myndlistinni þar á þessum tíma. Hann kom í raun með 20. öldina í höggmyndalist hingað heim en nýtti svo sínar íslensku rætur í verkin. Hann notaði mikið form úr íslenskri náttúru og eins sótti hann mikið í sagnahefðina bæði í þjóðsögur og Íslendingasögurn- ar.“ Íslensk alþýða var Ásmundi einnig hugleikin. „Íslenskt verka- fólk að störfum eru fyrirmynd hans í ýmsum verkum. Margir kannast við Vatnsberann í Öskju- hlíðinni og Járnsmiðinn á Snorra- braut en staðsetning verkanna um allt land er í takt við þær hug- myndir Ásmundar um að listin eigi ekki að vera fyrir fáa út- valda heldur hluti af daglegu lífi allrar alþýðu.“ Ásmundur Sveinsson lést hinn 9. desember 1982 og ánafnaði Reykjavíkurborg verk sín og húsnæði. Maðurinn og efnið verður opnuð við Sigtún klukkan 13 í dag og eru allir velkomnir. ■ TÍMAMÓT ÁSMUNDUR SVEINSSON ■ Maðurinn og efnið, sýning á verkum han, verður opnuð í dag í tilefni af fæðingardegi listamannsins. CHER Söngkona Cher er hvorki meira né minna en 58 ára í dag. 20. MAÍ KLEÓPATRA Var eitt þeirra herskipa sem gerð voru út í þorskastríðinu. Bretar verja togara sína Í minningu frumkvöðuls íslenskrar höggmyndalistar Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi. SVEINN SVERRIR SVEINSSON, Reynigrund 71, Kópavogi, áður Stafholti, Vestmannaeyjum, Sigríður R. Júlíusdóttir, Júlíus Sveinsson Freydís Fannbergsdóttir, Sveinn S. Sveinsson Margrét J. Bragadóttir, Ragnar Sveinsson Gunnhildur M. Sæmundsdóttir, Birgir Sveinsson Steinunn Ingibjörg Gísladóttir, Finnbogi Jónsson, barnabörn og langafabörn. sem lést 13. maí sl., verður jarðsunginn frá Hjallakirkju Kópavogi föstudaginn 21. maí kl. 13.30 ■ ÞETTA GERÐIST 2000 Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, og Cherie kona hans eign- ast fjórða barn sitt, Leo. 1980 Peter Criss hættir sem trommari rokkhljómsveitarinnar Kiss. 1972 Stjórnarskrá Kamerún er staðfest og landið verður þar með lýð- veldi. 1941 Þýskir hermenn ráðast á Krít. 1926 Thomas Edison segir að Banda- ríkjamenn taki þöglu myndirnar fram yfir þær töluðu. 1902 Kúba fær sjálfstæði frá Spáni. 1506 Kristófer Kólumbus deyr í örbirgð á Spáni. Það er frí mér til heiðurs í til-efni dagsins og ég ætla að fara í sund og á línuskauta með fimm ára syni mínum,“ segir Jóhanna Kristín Malmquist, kynningar- stjóri Austurlands 2004, sem er 29 ára í dag. „Ég þarf hugsanlega að eyða parti af deginum í vinnu og svo er ég búin að panta að borða góðan mat hjá mömmu í Neskaup- stað. Jóhanna hélt síðast svona al- vöru veislu á 25 ára afmælisdag- inn sinn, en þann sama dag varð mamma hennar stúdent. En eftir- minnilegasta afmælið var þegar hún varð níu ára og Ingibjörg Þórðar vinkona hennar, sem á sama afmælisdag, kom og færði henni pínulítinn hrikalega krútt- legan kettling. „Hann var í Macin- tosh-dollu og hún var búin að skíra kettlinginn Bono í höfuðið á söngvaranum í U2. En ég þurfti að finna honum annað heimili þar sem ég var með ofnæmi fyrir köttum. Þetta var vel meint af- mælisgjöf engu að síður.“ Jóhanna er nýflutt aftur austur eftir fjögurra ára dvöl í Reykja- vík og á varla orð til að lýsa ánægju sinni með að vera komin aftur í heimahagana. „Hér er tækifærið að ala upp börn og taka þátt í uppbyggingunni. Þetta er bara æðislegt. Hér rísa hús og blokkir liggur við á hverjum degi, það má segja að þau spretti upp eins og gorkúlur. Síðan fer að spretta upp eitt risastórt hús á Reyðarfirði sem kallast álver.“ ■ Tekur þátt í uppbyggingu JÓHANNA MALMQUIST Stendur í að kynna Austurland 2004, stærstu sýningu sem haldin hefur verið á Austurlandi. Allar upplýsingar um sýning- una má finna á austurland2004.is AFMÆLI JÓHANNA MALMQUIST ■ Ætlar í sund og á línuskauta með syni sínum. ÁSMUNDUR SVEINSSON Var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar. Hann fæddist þann 20. maí árið 1893 og hefð hefur skapast fyrir því að minnast afmælis hans með sýningu um þetta leyti. 20. maí 1973 BRETAR ■ sendu þrjú bresk herskip á Íslandsmið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.