Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 42
20. maí 2004 FIMMTUDAGUR34 Ok, Polly Jean Harvey er snill-ingur, við skulum ekki einu sinni reyna að taka það frá henni. Uh Huh Her er sjötta eiginlega sólóplata hennar, fylgifiskur meist- araverksins Stories from the City, Stories from the Sea frá árinu 2000. Enn og aftur skilar Harvey af sér æðislegri plötu. Eins og alltaf skiptir P.J. um gír. Þessi plata hljómar eins og hún sé að miklu leyti unnin inn í stofu heima hjá henni. Meira afturhvarf til þeirra hljóðskúlptúra sem voru komnir á plötunum To Bring You My Love og Is This Desire? Ekki beinn óður til rokksins eins og síðast. Útsetningar eru mjög einfaldar. Oft einfaldur trommutaktur (mis- jafn hvort það sé lífrænt eða vél- rænt), gítar, söngur og nokkur aukahljóð. P.J. spilar nánast allt sjálf nema hvað hún styðst við bak- raddasöngvara í þremur lögum og trommarann Rob Ellis með sér í nokkur. Ég er ekki frá því að Polly sé með þessari plötu að nudda sér ör- lítið upp við bandarísku þjóðlaga- hefðina. Örlítið meira kántrí og blús í gítarleik en venjulega. Text- ar eru svo grímulausar vangavelt- ur um lífið og tilveruna, og felst henni vel úr verki eins og alltaf. Hér bætir PJ nokkrum skraut- perlum á festi sína, sem nú þegar var orðin hlaðin. Lögin The Slow Drug, It’s You og lokalagið The Darker Days of Me & Him hljóta að teljast með því betra sem tónlistar- konan hefur gert. Það hefur verið heiður að fá að fylgjast með ferli Polly frá upp- hafi. Frá því að vera svalasta rokk- gellan á svæðinu í það að verða ein af virtustu tónlistarmönnum heims. Birgir Örn Steinarsson DREKAFJÖLL kl. 3.45 m. ísl. tali CONFESSION OF A DRAMA QUEEN kl. 4 og 6 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 SÝND kl. 8 og 10.50 B.i. 16 LÚXUS kl. 5.10, 8 og 10.50 B.i. 16 SÝND kl. 6 og 8 Ný rómantísk gamanmynd frá háðfuglinum Woody Allen SÝND kl. 1, 3.30, 6, 8, 9.30 og 11 B.i. 12SÝND kl. 1.30, 2.45, 4.45, 6, 8, 9.15 og 11 SÝND kl. 2, 4 og 10 HHH DV HHH Tvíhöfði Vinsælasta myndin á Íslandi HHH DV HHH Tvíhöfði Vinsælasta myndin á Íslandi HHH1/2 Skonrokk HHH1/2 HL, Mbl BAFTA verðlaunin: Besta breska myndin Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ SÖNN SAGA HHHH ÓÖH, DV „Þetta er stórkostlegt meistaraverk“ „Án efa ein besta myndin í bíó í dag.“ KD, Fréttablaðið SÝND kl. 6, 8 og 10 SÝND kl. 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30 SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 PÉTUR PAN kl. 3.40 og 5.50 M/ÍSL. 50 FIRST DATES kl. 3.50 SCOOBY DOO 2 kl. 4 M/ÍSL. TALI SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 SÝND Í LÚXUS VIP kl. 6 og 10 Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana i magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. STÓRVIÐBURÐUR ársins er kominn! Fyrsta stórmynd ársins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlf. Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda Indiana Jones. Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana i magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. STÓRVIÐBURÐUR ársins er kominn! Fyrsta stórmynd ársins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlf. Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda Indiana Jones. Æðisleg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna. ELLA Í ÁLÖGUM [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Ekki klikkar Polly P.J. HARVEY Uh Huh Her ■ SJÓNVARP ■ KVIKMYNDIR■ FÓLK Í FRÉTTUM Flestir spá Fahrenheit 9/11,nýrri heimildarmynd Michaels Moore, gullpálmanum á Cannes í ár. Þetta kemur fram í blaðinu Screen International, sem er blað fyrir kvikmyndaiðnaðinn. Mynd- in hefur fengið mikið lof gagn- rýnenda og margir hneykslaðir á innihaldi hennar en í henni sýnir Moore fram á tengsl á milli fjöl- skyldu Georges W. Bush og Osama bin Laden og gefur þannig til kynna að ástæður hryðju- verkaárásanna í Bandaríkin 11. september hafi kannski tengst fyrrum samskiptum þeirra. Leikarinn Al Pacino hefur loks-ins bundið enda á bitra for- ræðisbaráttu við fyrrum ást- konu sína Beverly D’Ang- elo. Helsta deilumál þeirra var að hún vildi flytjast frá New York, þar sem þau bjuggu saman, til Los Angeles og ætlaði að taka þriggja ára gamla tvíbura þeirra með. Þetta gat Pacino auðvitað ekki sætt sig við og féllst á að borga háar upphæðir til þess að halda henni og börnum þeirra ná- lægt sér. Antonio Banderas og JustinTimberlake deildu afar ljúfri stund saman á frumsýningu Shrek 2 á Cannes-kvikmynda- hátínni í Frakklandi. Undir lok myndarinnar er víst afar hjart- næm sena sem reyndist leikaran- um Antonio um of þannig að hann táraðist. Þegar hann leit á sessu- naut sinn sá hann að Timberlake var líka að fella tár. Þeir horfðu á hvorn annan, tókust í hendur og grétu saman. Cameron Diaz, kær- ustu Timberlakes, leist ekki alveg á blikuna í fyrstu. Nýjasta mynd bresku leikkon-unnar Elizabeth Hurley, Method, fer beint á myndbandaleig- ur í heimalandi hennar í stað þess að fara fyrst í kvikmyndahús. Þetta er fjórða mynd Hurleyjar á stuttum tíma sem fer beint á mynd- bandaleigur í Bretlandi og svo virð- ist sem leiklistarferill hennar sé smám saman að fjara út. Í Method fer Hurley með hlutverk leikkonu sem öðlast persónuleika morðingja sem hún er að leika. Myndin, sem kostaði um 1,3 milljarða króna í framleiðslu, gekk illa í bandarískum kvikmyndahúsum. Ákváðu fram- leiðendurnir því að eyða ekki meiri peningum í kynningu á henni. Síðasta mynd Hurleyjar, Serving Sara, gekk einnig illa í kvikmynda- húsum. Hún kostaði um 2,6 millj- arða en halaði aðeins inn um 390 milljónir í miðasölunni. Fór hún beint á myndbandaleigur í Bret- landi alveg eins og myndirnar Bad Boy og Double Whammy. Við þetta er því að bæta að myndin Bedazzled með Hurley í aðalhlutverki komst á hvíta tjaldið í Bretlandi en kolféll engu að síður í miðasölunni. Myndin kostaði um fimm milljarða í fram- leiðslu en halaði aðeins inn um 900 milljónir króna. ■ Bandaríska sjónvarpsstöðin CBSer í viðræðum við leikkonuna Jenna Elfman um hún fari með aðalhlutverk í nýjum gaman- þáttum. Einn af handritshöfundum þátt- anna er Chuck Lorre sem hefur slegið í gegn sem handritshöfundur Two and a Half Men með Charlie Sheen í aðalhlutverki. Elfman og Lorre þekkjast frá fornu fari því þau unnu saman að gamanþáttun- um Dharma & Greg á árunum 1997 til 2002. Elfman hefur einnig verið í gestahlutverki í tveimur þáttum Two and a Half Men. ■ JENNA ELFMAN Sló í gegn í gamanþáttunum Dharma & Greg sem voru sýndir á Stöð 2. Nýir þættir með Elfman Hurley beint á myndbandaleigur ELIZABETH HURLEY Síðustu kvikmyndir Hurley hafa gengið afleitlega í miðasölunni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.