Fréttablaðið - 21.05.2004, Qupperneq 1
● kjöldregnir af keflvíkingum
Landsbankadeildin:
▲
SÍÐA 43
Aftur tap hjá
KR-ingum
● og afhendir glerlykilinn
Hið íslenska glæpafélag:
▲
SÍÐA 50
Kemur saman ásamt
norrænum félögum
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
FÖSTUDAGUR
SEX LEIKIR Víkingur og KA mætast í
Landsbankadeild karla í fótbolta klukkan
20. Á sama tíma verða fimm leikir í 1.
deild karla. Þór mætir Þrótti, HK sækir Val
heim, Fjölnir tekur á móti Haukum,
Stjarnan mætir Njarðvík og Völsungur
sækir Breiðablik heim.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA RIGNING Í DAG Í fyrstu verður
úrkoman suðvestan til en víða síðdegis
eða í kvöld. Hlýnandi veður næstu daga
Sjá síðu 6.
21. maí 2004 – 138. tölublað – 4. árgangur
ÍHUGAR MÁLSÓKN Jónas Freydal er
ósáttur við þá meðferð sem mál hans og
Péturs Þórs Gunnarssonar fékk fyrir dóm-
stólum. Ætlar að skoða málshöfðun á
hendur Jóni H. Snorrasyni og Ríkis-
útvarpinu. Sjá síðu 2
CHALABI EKKI TREYST Bandarískir
hermenn og íraska lögreglan réðust inn á
heimili Ahmad Chalabi í gær. Chalabi er
fyrrum bandamaður bandarískra stjórn-
valda. Sjá síðu 2
VANLÍÐAN UNGLINGA Samkvæmt
ítarlegri úttekt á líðan ungmenna í efstu
bekkjum grunnskóla benda niðurstöður til
að þunglyndi og almenn vanlíðan sé
algengari en margur heldur. Sjá síðu 8
HERMENN HAFA EKKERT LÆRT
Bandarískur hermaður sem stöðvaði
fjöldamorðin í My Lai segir bandaríska
hermenn í Írak ekkert hafa lært af
einhverjum frægustu stríðsglæpum
Víetnamstríðsins. Sjá síðu 6
2 1 . M A Í T I L 2 7 . M A Í 2 0 0 4
NR . 20 . 2004
Sjónvarpsdagskrá
næstu7daga
Hvað segir krassið um
persónuleika þinn?
Erna Ómarsdóttir dansar
á Listahátíð
Geðheilsa kvenna
Ylfa Marín syngur eins og engill
Persónuleikapróf Birtu
Jagúar spilar úrval af Tómasi R.
Lítið fyrir
glamúrinn
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Ragnhildur Steinunn:
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
Lítið fyrir
glamúrinn
birta
● listahátíð ● merking krassins
Sa
m
kv
æ
m
t f
jö
lm
i›l
ak
ön
nu
n
Ga
llu
ps
m
ar
s
'0
4
48%65%
Kvikmyndir 46
Tónlist 44
Leikhús 44
Myndlist 44
Íþróttir 38
Sjónvarp 48
Yesmin Olsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Á litríka og
þægilega skó
● matur ● tíska ● heimili
Háskólaráð:
Vill fresta
afstöðu til
skólagjalda
SKÓLAGJÖLD Háskólaráð Háskóla
Íslands ætlar að mælast til þess á
fundi ráðsins í dag að bíða með að
taka afstöðu til skólagjalda þar til
formlegum viðræðum við
menntamálaráðuneytið lýkur um
málið. Stóð til að málið yrði tekið
fyrir á fundi háskólaráðs í dag.
Stúdentaráð afhenti á miðviku-
daginn Páli Skúlasyni rektor und-
irskriftarlista 4.705 stúdenta þar
sem þeir mótmæla hugmyndum
um skólagjöld. Stúdentaráð hefur
einnig mótmælt öllum hugmynd-
um um skólagjöld af fullri hörku
og bent á ýmsar aðrar leiðir til að
bæta rekstur skólans og spara
þannig umtalsverða peninga.
Stúdentaráð hefur skorað á rektor
Háskóla Íslands að taka afstöðu
gegn hugmyndum um skólagjöld
og að hann hafi fullan stuðning
stúdenta. ■
GAZA Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur samþykkt ályktun þar
sem aðgerðir Ísraelsmanna eru
harðlega gagnrýndar í Rafha-
flóttamannabúðunum. Í ályktun-
inni eru dráp á palestínskum
borgurum í flóttamannabúðunum
fordæmd og Ísraelar hvattir til að
fara að alþjóðlegum lögum um
mannréttindi. Bandaríkin nýttu
ekki neitunarvald sitt í ráðinu
heldur sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna sem er óvanalegt. Áður
hafði Kofi Annan, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, harðlega
gagnrýnt framferði Ísraelsmanna
á Gaza-svæðinu og fordæmdi að-
gerðirnar sem beindust gegn frið-
sömum mótmælendum.
Sendiherra Ísraels hjá Samein-
uðu þjóðunum, Dan Gellerman,
lýsti yfir vonbrigðum sínum að
Bandaríkin hefðu ekki nýtt
neitunarvald sitt við afgreiðslu
ályktunarinnar. Gellerman sagði í
samtali við AP-fréttastofuna að
þjáningar palestínsku þjóðarinnar
væru bein afleiðing hryðjuverka
þeirra gegn ísraelskum borgurum
og taldi að í stað þess að gagnrýna
Ísraela fyrir eyðileggingu á
eigum Palestínumanna ætti kraf-
an fremur að vera sú að hryðju-
verkamenn hættu að nota heimili
sem skjólshús yfir ólöglegar
aðgerðir. ■
KÖNNUN Mikill meirihluti þjóðar-
innar er andvígur fjölmiðlafrum-
varpinu og telur að forseti Íslands
eigi að neita að skrifa undir fjöl-
miðlalögin verði þau samþykkt á
Alþingi eins og allt stefnir í. Þetta
kemur fram í skoðanakönnun
Fréttablaðsins sem gerð var í gær.
Samkvæmt könnuninni er
tæplega 81 prósent þeirra sem
tóku afstöðu andvígur frumvarpi
ríkistjórnarinnar um eignarhald
á fjölmiðlum og 71 prósent telur
að forsetinn eigi að nota mál-
skotsrétt sinn og skjóta málinu til
þjóðaratkvæðagreiðslu. Tæplega
87 prósent fólks telja forsetann
hafa það vald.
„Ég fagna þessum niður-
stöðum og vona að menn taki mið
af þeim í störfum sínum á þing-
inu,“ segir Kristinn H. Gunnars-
son, þingmaður Framsóknar-
flokksins. Hann segir áhugavert
að sjá að kannanir hafi sýnt vax-
andi andstöðu við frumvarpið
þrátt fyrir breytingarnar á því.
Hjálmar Árnason, flokks-
bróðir Kristins H., er ekki sam-
mála. „Þessi niðurstaða kemur
mér í sjálfu sér ekki á óvart því
að mér finnst hin opinbera um-
ræða hafa verið mjög einhliða í
málinu,“ segir hann. Sigríður
Anna Þórðardóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, tekur í
sama streng og Hjálmar.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, segir
niðurstöðuna benda til þess að
fólk sé að herðast í andstöðu sinni
við frumvarpið.
„Ég tel að þetta frumvarp snúist
í reynd um opinbera ritskoðun og
það er að renna upp fyrir fólki að
þarna er með ofbeldi verið að
skerða grundvallarréttindi manna,“
segir Össur.
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur Vinstri grænna, segir að ríkis-
stjórnin eigi að hlusta á rödd þjóð-
arinnar sem tali á svona afgerandi
hátt til hennar. Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segir að fólk sé
farið að sjá í gegnum þann mál-
flutning meirihlutans sem segi að
málið sé loksins í höfn.
trausti@frettabladid.is
Sjá nánar síðu 4 og 6
SKRIÐDREKAR ÍSRAELA Ísraelar hafa beitt skriðdrekum í árásunum á Rafah-flóttamannabúðirnar.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktar:
Aðgerðir Ísraela fordæmdar
Sjö af hverjum tíu vilja
þjóðaratkvæðagreiðslu
Um 71 prósent þjóðarinnar vill að forseti Íslands neiti að skrifa undir fjölmiðlalögin. Tæplega 87
prósent telja forsetann hafa það vald. Formaður Samfylkingarinnar segir fólk vera að herðast í
andstöðunni. Þingmaður Framsóknar segir opinbera umræðu hafa verið einhliða.
Jórdanskur lögmaður:
Óttast um
Saddam
JÓRDANÍA, AP Jórdanskur lögmaður
sem segist verja Saddam Hussein
óttast um öryggi hans. Lögmaður-
inn hefur farið þess á leit við dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna að
honum verði veitt leyfi til þess að
hitta Saddam utan Íraks, þar sem
ekki sé nægjanlegt öryggi í landinu.
Lögmaðurinn Mohammad Ras-
hdan lýsti yfir áhyggjum af öryggi
Saddams í kjölfar þess að yfirmaður
framkvæmdaráðs Íraks var drepinn
fyrr í þessari viku. „Fyrst banda-
rískar hersveitir gátu ekki verndað
svokallaðan forseta framkvæmda-
ráðsins geta þeir án efa ekki vernd-
að lögmenn eða lögmætan forseta
Íraks, Saddam,“ segir hann. ■
M
YN
D
/A
P