Fréttablaðið - 21.05.2004, Side 2

Fréttablaðið - 21.05.2004, Side 2
2 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR „Var hún ekki eitthvað skrítin? “ Sigríður Rut Júlíusdóttir er 28 ára og hefur getið sér gott orð sem lögmaður. Nú síðast varði hún sakborningana í málverkafölsunarmálinu sem voru sýknaðir í Hæstarétti á dögunum. SPURNING DAGSINS Sigríður Rut, ert þú Ally McBeal Íslands? SÝKNUDÓMUR Jónas Freydal Þor- steinsson er ánægður með að hafa verið sýknarður en gagnrýnir máls- meðferðina og sératkvæði tveggja dómara af fimm, þeirra Garðars Gíslasonar og Hrafns Bragasonar. „Ég vissi ósköp vel að Garðar Gísla- son hefur verið tíu ár í stjórn Lista- safns Íslands,“ segir Jónas. Jónas er mjög ósáttur við að- komu Jóns H. Snorrasonar sem stýrði lögreglurannsókn málsins. „Hann sagði í Morgunblaðinu að þeir hefðu orðið að nota þessa sér- fræðinga [Listasafns Íslands] út af því að aðrir sérfræðingar hefðu komið að málinu. Þetta er hrein og klár lygi. Hann notaði akkúrat þá sérfræðinga sem höfðu keypt og kært,“ segir Jónas. Jónas spyr sig hvernig fram- haldið sé. „Ég kærði Jón Snorrason til saksóknara í Danmörku áður en málið fór fyrir hérað. Þeir sögðu við mig að þar sem dómur hefði ekki fallið væri ekkert hægt að gera. Ef þú verður sýknaður skoðum við málið. Ég mun fara fram á að hans aðkoma verði skoðuð sem og að- koma RÚV.“ Jónas segir að þar hafi endalausir sleggjudómar fallið og nú sé einblítt á sérálit frá Hæsta- rétti. „Þetta er mikið grófara en ærumeiðingar,“ segir Jónas. Jónas segir augljóst að Viktor Smári Jónsson, annar sérfærðinga Listasafns Íslands, hafi verið van- hæfur. „Hann aðstoðaði Ólaf Inga Jónsson við að útbúa kærurnar. Hann vinnur hjá þeim sem á nokkr- ar myndanna. Hann veitir öll ráð um hvernig eigi að rannsaka mynd- irnar. Hann mælir með að nokkrar myndir séu kærðar. Hann fer yfir fjöldan allan af þessum myndum áður en þær voru kærðar og sá ekkert að þeim. Hann breytti öllum ljósmyndum í Photoshop til þess að dómararnir skildu þær. Ég er ekki að grínast,“ segir Jónas. Jónas telur sig ekki sama mann- inn eftir þau sjö ár sem málið hafi verið til rannsóknar. „Ef þú slæst við skunka þá getur þú unnið en þú lyktar alltaf á eftir,“ segir Jónas. Ólafur Kvaran, safnstjóri Lista- safns Íslands, var ekki tilbúinn að tjá sig um störf listfræðinga safns- ins í málinu að svo stöddu. gag@frettabladid.is Ráðist inn á heimili Ahmed Chalabi: Fyrrum bandamanni ekki treyst BAGDAD, AP Bandarískir hermenn og íraska lögreglan réðust inn á heimili Ahmad Chalabi í gær. Chalabi er fyrrum bandamaður bandarískra stjórnvalda og situr í íraska framkvæmdaráðinu. Að sögn bandarískra sjónarvotta tók lögreglan bæði skjöl og tölvu á heimili Chalabi. Chalabi hefur gagnrýnt áætlan- ir Bandaríkjamanna um framgang mála í Írak eftir að stjórn landsins verður færð í hendur Íraka í lok næsta mánaðar og sakar Banda- ríkjamenn um að beita sig þrýst- ingi um að hætta slíkri gagnrýni. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig opinberlega um ástæður þess að ráðist var inn í hús Chalabi. Bandarískir yfirmenn í Írak eru þó ósáttir við afskipti Chalabi af rann- sókn á meintum fjársvikum stjórn- ar Saddams Hussein. Þá var nýlega haft eftir Chalabi að hann krefjist fullra yfirráða Íraka yfir olíu- lindum landsins eftir valdaskiptin. Innrásin hefur valdið nokkurri ólgu meðal almennings í Írak þar sem sífellt fleiri telja bandaríska hernámsliðið kúgandi. ■ Olíuverðið: Ytri aðstæð- um að kenna NEYTENDUR Talsmenn olíufram- leiðsluríkjanna , OPEC, segja ekki við samtökin að sakast þó að olíu- markaðsverð í heiminum sé í há- marki þessa stundina. Það hafi með aðrar ytri aðstæður að gera, á borð við styrjöldina í Írak og skort á olíuhreinsistöðvum í heiminum ásamt fleiri atriðum. Verðið breyt- ist í raun ekki með meiri fram- leiðslu olíuríkjanna enda séu þau flest að dæla upp olíu með há- marksafköstum nú þegar. Margir hagfræðingar spá því að olíuverðið muni hamla til muna öllum efna- hagsvexti í vestrænum löndum og slíkt hafi langvarandi áhrif. ■ KONRÁÐ EGGERTSSON Hrefnuveiðibyssa hefur verið á bát Konráðs frá 1985. Hvalveiðimenn reiðubúnir: Engar ákvarð- anir enn HVALVEIÐAR Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að engar ákvarðanir hafi verið tekn- ar um hvalveiðar í sumar. Árni hafi ekki hafa hitt hvalveiðimenn í lengri tíma. Konráð Eggertsson, talsmaður hvalveiðimanna, segist fullviss um að hvalveiðar verði stundaðar í vís- indaskyni við Íslandsstrendur í sumar. „Stjórnvöld hafa sagt að það ætti að veiða 200 hrefnur á ákveðn- um árafjölda og ég hef enga ástæðu að halda að það verði ekki gert,“ segir Konráð. Hann vill ekki stað- festa að veiðarnar verði það sé und- ir ráðamönnum komið. „Í fyrra kom þetta eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ætil það verði ekki eins núna,“ segir Konráð. ■ Skilorðsbundið fangelsi: Stal í vinnunni DÓMSMÁL Tvítugur karlmaður hef- ur verið dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað í héraðsdómi Norðurlands eystra. Maðurinn stal DVD-mynd- um og geisladiskum í þónokkru magni úr verslun sem hann vann í. Brotin áttu sér stað á þriggja mán- aða tímabili og var verðmæti þýfis- ins um 63 þúsund krónur. Maður- inn viðurkenndi brot sitt greiðlega og samþykkti bótakröfu fyrrum vinnuveitanda síns. ■ Sambands íslenskra myndlistarmanna: Gríðarlegt áfall SÝKNUDÓMUR Stjórn Sambands ís- lenskra myndlistarmanna lýsa þungum harmi yfir þeim afleið- ingum sem úrskurður Hæsta- réttar í Málverkafölsunarmál- inu sé íslenskri myndlist. „Hvar sem mistökin liggja er ljóst að það er gríðarlegt áfall fyrir íslenskt myndlistarlíf að meintar falsanir njóti vafans sem ríkir um sekt þeirra manna sem réttað var yfir og fái nú heimfararleyfi sem ófölsuð verk. Fæstum dylst hugur um að þau eru að stórum, ef ekki öllum hluta, fölsuð,“ segir í frétta- tilkynningu sambandsins. Sambandið skorar á yfirvöld að fá úr því skorið hvort um falsanir sé að ræða og þá finna leið til að koma þeim myndum úr umferð. ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ÍSRAEL, AP Ísraelskur dómstóll hefur fundið náinn bandamann Yassers Arafat sekan um að hafa skipulagt tilræði sem urðu fimm manns að bana. Komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að Arafat sjálfur hafi haft hönd í bagga. Hefur dómurinn vakið mikla reiði uppreisnarmanna í Palest- ínu og hafa margir hótað því að nú verði ísraelskum þegnum rænt hvar sem til þeirra næst í þeirri von að skipta megi á þeim og Barghouti. Barghouti er æðsti leiðtogi Palestínumanna sem Ísraelar hafa handtekið og hefur hann setið í fangelsi síð- astliðin tvö ár. Það hefur ekki dregið úr vinsældum hans með- al uppreisnarmanna og hefur mörgum verið tíðrætt um að hann sé hugsanlegur arftaki Yassers Arafat þegar og ef hann losnar úr haldi Ísraela. Barg- houti viðurkennir ekki rétt Ísra- els til að dæma sig þar sem hann er kjörinn embættismaður og sér hafi verið rænt á ólögmætan hátt. ■ AHMED CHALABI Ráðist var inn á heimili Chalabi sem einu sinni var bandamaður bandarískra stjórn- valda. Á myndinni heldur Chalabi á fjöl- skyldumynd sem skemmdist í innrásinni. Háttsettur leiðtogi Palestínumanna fundinn sekur fyrir ísraelskum dómstól: Arafat bendlaður við fimmfalt morð MARWAN BARGHOUTI Leiðtogi Fatah-hreyfingarinnar á Vesturbakkanum og náinn félagi Arafats vígreifur eftir að ísraelskur dómstóll fann hann sekan um fimm morð. MANNFJÖLDI Í MIÐBÆNUM Í Reykjavík gistu þrír fanga- geymslur lögreglunnar aðfara- nótt uppstigningadags Að öðru leyti var rólegt í miðbænum þrátt fyrir að nokkur mannfjöldi safnaðist saman þar. Nokkrir voru teknir fyrir ölvunarakstur á landinu í fyrrinótt, einn í Kópavogi, einn á Ísafirði og einn á Akureyri. VATNSLEKI Á TUNGUVEGI Slökkvi- liðið var tvívegis kallað út vegna vatnsleka í gær. Í fyrra skiptið var um að ræða vatnsleka í íbúð á Tunguvegi. Í seinna skiptið var slökkviliðið kallað út vegna vatnsleka í Fossvogsskóla. Þar gaf sig krani með þeim afleiðing- um að vatn flæddi út yfir rúm- lega 250 fm svæði. Um töluvert eignatjón er að ræða í báðum til- vikum. JÓNAS FREYDAL Jónas segist ennþá elska listina en hafi vont bragð í munni. „Málið er að þeir höfðu alla möguleika á að rannsaka þessar myndir en gerðu það ekki.“ Lyktar eftir slags- mál við skunka Jónas Freydal er ósáttur við þá meðferð sem mál hans og Péturs Þórs Gunnarssonar fékk fyrir dómstólum. Ætlar að skoða málshöfðun á hendur Jóns H. Snorrasonar og Ríkisútvarpinu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.