Fréttablaðið - 21.05.2004, Síða 10
10 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
KONUNGLEG VAKT
Gríðarleg öryggisgæsla er nú víða í Madríd
vegna brúðkaups krónprinsins Felipe og
unnustu hans Letizia Ortiz á morgun.
Vanskil minnka enn
Verulega hefur dregið úr vanskilum hjá einstaklingum. Aukin fyrirhyggja og vilji fólks til að
koma fjármálum sínum í lag er talin meginástæðan. Bankarnir eru farnir að veita aukna þjón-
ustu til einstaklinga sem auðveldar þeim að koma fjármálunum í rétt horf.
FJÁRMÁL „Ég tel greinilegt að fólk
hafi notað tækifærið að undan-
förnu til að að lækka skuldir sín-
ar og koma fjármálunum í betra
horf. Fólk er farið að hafa meiri
áhuga og vilja til að koma fjár-
málum sínum í lag og það er far-
ið að gera sér meiri grein fyrir
hversu dýrt það er að standa
ekki í skilum. Margir hafa meiri
peninga á milli handanna og það
gerir fólki vissulega auðveldara
fyrir að taka á þessu“, segir Guð-
jón Rúnarsson hjá Samtökum
banka og verðbréfafyrirtækja.
Hann segir að fyrirtæki séu ein-
nig farin að standa mun betur í
skilum og að ástæðan sé einfald-
lega sú að þau séu standi betur
fjárhagslega.
„Margar atvinnugreinar sem
áttu í miklum rekstarerfiðleikum
fyrir örfáum árum síðan eru að
blómstra og eru þessi fyrirtæki
farin að greiða niður skuldir sín-
ar í auknum mæli,“ segir hann.
Guðjón segir banka og spari-
sjóði eiga sinn þátt í því að van-
skil hafa minnkað með því að
skerpa á innheimtuferlinu.
„Hvað varðar starfsemi bank-
anna þá hefur verið lögð aukin
áhersla á innheimtuþáttinn og
hefur það orðið til þess að vekja
fólk til umhugsunar um hversu
dýrt er að standa ekki í skilum.
Einnig hefur aukin þjónusta við
viðskiptavini bankanna með til-
komu þjónustufulltrúa hjálpað
mikið til í þessu sambandi. Allir
þessir þættir eru að skila sér í
því að vanskil eru að minnka, „
segir Guðjón.
Ásta S. Helgadóttir, forstöðu-
maður Ráðgjafastofu heimil-
anna, er að vinna ársskýrslu sem
kemur út innan skamms. Hún
telur ástæðuna fyrir lækkun
vanskila hjá fólki og fyrirtækj-
um vera vegna auglýsingaher-
ferða innheimtufyrirtækja og
aukinnar meðvitundar fólks um
fjármál og vilja til að gera betur.
Hjá Lánstrausti ehf. fengust
þær upplýsingar að meira hafi
borið á því að undanförnu að fólk
hafi verið tekið út af vanskila-
skrá og telja þeir það tvímæla-
laust jákvæða vísbendingu.
halldora@frettabladid.is
– hefur þú séð DV í dag?
Mínus bolirnir
sagðir brjóta
stjórnarskrá
FLEIRI STANDA Í SKILUM
Aukin þjónusta og ráðgjöf banka og sparisjóða er að skila sér í minnkandi vanskilum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FÁTÆKRASKÝRSLA Stjórn Stéttar-
félags íslenskra félagsráðgjafa
telur tillögur að lausnum á vanda
fátæktra vanta í fátækraskýrslu
forsætisráðherra. Hún gagnrýnir
það að ekki hafi verið leitað til
þeirra sem best þekkja aðstæður
þessa fólks. „ Okkur finnst
skýrslan yfirborðsleg og okkur
finnst vanta í hana einhverjar
aðrar lausnir en þær að vísa
vandamálinu til sveitastjórn-
anna. Við vitum vel að það er
engin ein auðveld lausn á vand-
anum en okkur finnst að ræða
hefði átt við félagsráðgjafa og
aðra sem vinna á þessum vett-
vangi, segir Ella Kristín Karls-
dóttir, formaður Stéttarfélags ís-
lenskra félagsráðgjafa. Hún
gagnrýnir að hvergi í skýrslunni
sé bent á leiðir til að koma í veg
fyrir að fólk lendi í fjárhagsleg-
um og félagslegum vanda og að
ekki sé einu orði minnst á mennt-
un í því sambandi. „Að sjálfsögðu
ber að fagna hverju því framtaki
stjórnvalda sem varpar ljósi á
þennan vanda sem fátækt er í
samfélaginu. Okkur finnst hins
vegar kominn tími til að bæta
samstarf þeirra „kerfa“ sem
vinna með fólki sem lifir við fá-
tækt, það gengur ekki lengur að
allir séu að vinna hver í sínu
horni,“ segir Ella Kristín. ■
Fátækraskýrsla forsætisráðherra:
Félagsráðgjafar ósáttir
ELLA KRISTÍN KARLSDÓTTIR FORMAÐUR
Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa finnst vanta tillögur að lausnum
í fátækraskýrslu forsætisráðherra
SMÍÐAHÚSIÐ MÁLAÐ
Jón Haraldsson málari var í óða önn að mála gamalt smíðahús við Laugarvatn. Húsið var einnig fyrsta leikfimishúsið á Laugarvatni
en íþróttakennaranemar sóttu það á Þingvöll á Alþingishátíðinni 1930, að sögn Jóns. Hlutverk Jóns er að setja á húsið þrifamálningu
svo það líti þokkalegar út, en til stendur að endurnýja gufubað í húsinu og setja heita potta út í vatnið.
Að breytingunum standa Hollvinasamtök smíðahúss og gufubaðs á Laugarvatni.
LESTARSLYS
Tvær lestir rákust á í Texas í fyrrakvöld með
þeim afleiðingum að einn maður lést.
Lestarslys í Texas:
Kostar
mann lífið
TEXAS, AP Einn lést og fjórir slösuð-
ust þegar tvær vöruflutningalestir
rákust saman í Texas í fyrrakvöld.
Fjölförnum lestarteinum norður af
Dallas var lokað í gær meðan mál-
ið var rannsakað, en brak meira en
20 lestarvagna lá á teinunum. Að
minnsta kosti ein eimreið brann og
barst eldurinn í sinu og annan
gróður í nágrenninu.
Önnur lestin var tóm þegar
áreksturinn átti sér stað meðan
hin hafði grjót innanborðs. Ekki
þurfti að rýma svæðið vegna
mengunar en kallað var á sér-
fræðinga til þess að hreinsa upp
eldsneyti sem fór til spillis. ■
Hryðjuverk í Istanbúl:
Sprenging á
MacDonald’s
ISTANBÚL, AP Sprengja sprakk við
MacDonald’s veitingastað í Istan-
búl í gær. Tilkynnt var um
sprengjuna skömmu áður en hún
sprakk og tókst lögreglu að rýma
svæðið. Engin slys urðu á fólki en
þónokkrar skemmdir urðu á eign-
um nærri bílnum sem sprengjan
var falin undir. Enginn hefur lýst
ábyrgð á hendur sér en verkið er
unnið aðeins mánuði fyrir NATO
fund sem Tyrkir munu halda. Ge-
orge W. Bush er meðal þeirra sem
eru væntanlegir til Tyrklands en
búast má við að þúsundir lög-
reglumanna fari með öryggis-
gæslu meðan á fundi stendur. ■