Fréttablaðið - 21.05.2004, Qupperneq 20
20 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
Bankastjóri Alþjóðabankans lýsir áhyggjum af framtíð Íraka:
Uppbyggingarstarf
varla hafið
UPPBYGGING Alþjóðabankinn hefur
varað við því að uppreisnir og skær-
ur víða í Írak hindri allt uppbygg-
ingarstarf í Írak sem áætlanir voru
um þannig að í mikið óefni stefni.
Fyrirtæki jafnt sem stofnanir
hafa mörg hver dregið starfsmenn
sína til baka frá landinu enda sé
engan veginn hægt að tryggja ör-
yggi allra starfsmanna. Þau fáu
vestrænu fyrirtæki sem enn starfi í
landinu greiði fúlgur fjár fyrir ör-
yggisgæslu, sem aftur geri það að
verkum að allur hagnaður minnkar
til muna.
„Vandamálið er ekki fjármagn
heldur aðgengi,“ segir James Wol-
fensohn, bankastjóri Alþjóðabank-
ans. „Það er varla vinnandi vegur að
senda starfsfólk til Íraks eins og
staðan er og við hjá Alþjóðabankan-
um verðum að notast við fjarskipta-
fundi á netinu til að vinna okkar
vinnu.“
Áætlanir gera ráð fyrir að kostn-
aður við uppbyggingu landsins geti
numið 2.400 milljörðum króna en
fyrsta skrefið í þá átt segir Wol-
fensohn vera að koma heilsugæslu
og skólakerfinu í samt lag. „Fram-
farirnar gerast afar hægt en fyrir
liggur að reyna að koma skipulagi á
alla venjulega hluti eins og að koma
börnum í skólann. Smáatriðin skipta
hér máli en meðan skærur og hern-
aður eru hvarvetna er nánast loku
fyrir það skotið að koma landinu á
kjölinn aftur.“ ■
s í m i 5 5 3 8 0 5 0 • w w w . e c c o . c o m
KOMDU OG UPPLIFÐU!
af völdum tegundum af barnaskóm alla helgina.
Skemmtileg sumargjöf fylgir hverju pari sem keypt er.
15% afsláttur
Krakkadagar
NÝ
SENDING
AF SUNDFÖTUM
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
HÁTÍÐARFATNAÐUR
SPARIKJÓLAR OG DRAGTIR
FERRARI FÆRIR ÚT KVÍARNAR
Ítalski bílaframleiðandinn Ferrari opnaði
dyr sínar fyrir Rússum nýlega en opnað var
umboð í Moskvu með miklum látum. Í
borginni búa flestir milljarðamæringar í
heiminum og því ætti að veitast auðvelt
að selja þá hundrað bíla á ári sem vonir
Ferrari standa til.
FÖNGUM MISÞYRMT
Þeir bandarísku hermenn sem hafa verið ákærðir fyrir að misþyrma föngum segjast hafa verið að fylgja skipunum. Thompson segir þeim
kennt að fylgja ekki ólöglegum skipunum.
Hafa ekkert lært
Fyrrum þyrluflugmaðurinn Hugh C. Thompson sem stöðvaði
fjöldamorðin í My Lai segir bandaríska hermenn í Írak ekkert hafa lært
af einhverjum frægustu stríðsglæpum Víetnamstríðsins.
BANDARÍKIN, AP 16. mars 1968 lét
þyrluflugmaðurinn Hugh C.
Thompson skyttu sína beina vél-
byssu sinni að bandarísku her-
mönnunum sem hann átti að
verja fyrir víetnömskum upp-
reisnarmönnum. Ástæðan: Hann
varð vitni að því að þeir neyddu
konur, börn og gamalmenni ofan
í skurð og myrtu þau.
Fjöldamorðin í My Lai eru
sennilega frægasti stríðsglæpur
sem bandarískir hermenn hafa
framið. Víetnömsk stjórnvöld
hafa áætlað að meira en 500 sak-
lausir borgarar hafi verið myrt-
ir af bandarískum hermönnum.
Thompson kom í veg fyrir að
fórnarlömbin yrðu enn fleiri
með því að lenda þyrlu sinni
milli Víetnamanna og banda-
rísku hermannanna. Síðan skip-
aði hann skyttu sinni að skjóta á
hermennina ef þeir reyndu að
ná til Víetnamanna og tók alla þá
um borð sem þyrla hans réði við.
Sama gerðu tvær aðrar þyrlur á
svæðinu. Síðan tilkynnti hann
yfirmönnum sínum um voða-
verkin.
Fyrstu árin eftir atburðina
var Thompson lagður í einelti af
þáverandi og fyrrverandi her-
mönnum fyrir að kjafta frá. Síð-
ar tók Bandaríkjaher það upp í
þjálfun hermanna að neita ólög-
legum skipunum og segja frá af-
brotum annarra hermanna. Í
þeim tilgangi hefur Thompson
rætt við hermenn um margra
ára skeið til að deila reynslu
sinni með þeim. Nú segir hann
að svo virðist vera af atburðum
í Írak að hermennirnir sem þar
eru hafi ekkert lært.
„Það er mjög erfitt að skilja
hvernig þetta gat gerst vegna
þess að það er búið að kenna
þessu fólki hvernig á að bregð-
ast við,“ segir Thompson. „Þau
hafa verið á námskeiðum um
þetta frá í grunnþjálfun og upp
úr.“
Einn hermaður virðist þó
hafa lært af námskeiðum og
fyrirlestrum líkt og þeim sem
Thompson hélt. Joe Darby fann
myndir sem sýndu hvernig
föngum var misþyrmt. Hann
kom þeim til rannsóknarmanna
hersins með því að lauma þeim
undir dyrnar hjá þeim. Þegar
hann upplýsti síðar að hann
hefði komið myndunum á
framfæri sagðist hann hafa
gert það nafnlaust vegna þess
að hann hefði ekki næga trú á
að tekið yrði á málum með rétt-
um hætti. ■
SPRENGJULEIT
Ástandið í Írak er langt frá því að vera öruggt og það kemur í veg fyrir að uppbyggingar-
starf geti hafist fyrir alvöru.