Fréttablaðið - 21.05.2004, Side 33
[ STRANDHANDKLÆÐI ]
17FÖSTUDAGUR 21. maí 2004
Heima, ný búð:
Flott húsgögn á góðu verði
Um síðustu helgi var
opnuð ný húsgagnaversl-
un, Heima, við Ármúla 23
í Reykjavík. Heima er í
eigu Klöru Thorarensen
en hún býður upp á fjöl-
breytt úrval af hátísku-
húsgögnum og gjafavöru.
Húsgögnin eru aðal-
lega flutt inn frá Spáni,
Ítalíu og Þýskalandi og
mikið af þeim eru eftir-
gerðir og nýjar útfærslur
á þekktri hönnun.
Klara þekkir hús-
gagnamarkaðinn frá
fyrri störfum og taldi
vöntun vera á flottum
húsgögnum á góðu verði
fyrir unga fólkið.
Svo virðist sem hún
hafi hitt naglann á höfuð-
ið því viðtökurnar hafa
verið frábærar og marg-
ar vörur hafa nú þegar
selst upp.
Í tilefni opnunarinnar
eru ýmis tilboð í gangi,
til dæmis á svörtum hæg-
indastólum sem áður
voru á 89.800 en fást nú á
69.800. ■
Hvítur stóll 98.800 kr.
Hvítur skemill 39.800 kr.
Motta 85.000 kr.
Sófi 79.000 kr.
Glerborð 57.800 kr.
Motta 79.800 kr.
Svartur hægindastóll 89.800
kr., tilboðsverð 69.800 kr.
Klara Thorarensen eigandi
húsgagnaverslunarinnar Heima.
Gefa glaðlegt
og sumarlegt
yfirbragð
Flestir reyna að nýta sumarsólina sem
best hérna heima með því að sólbaða
sig í garðinum eða sundlaugunum og
þá er gott að hafa stórt og mjúkt
handklæði við höndina, hvort sem er
til að þurrka svitann eða dropana eft-
ir góða bunu.
Það er ekki síst þörf á slíku handklæði
ætli maður að bregða undir sig betri
fætinum og fljúga suðureftir Evrópu
til þess að sleikja sólina á gylltum
ströndum. Strandhandklæði eru yfir-
leitt stór og litrík og tilvalið að nýta
þau á milli sólarstunda til að skreyta
baðherbergið, gefa því glaðlegt og
sumarlegt yfirbragð. ■
Öll handklæðin
úr Debenhams
kosta 2.290. kr.
Doppótt handklæði úr
Topshop 1.990 kr.
Eldhúsborð 39.800 kr.
Eldhússtólar 24.900 kr. stk.