Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 44

Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 44
32 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR ■ TÓNLIST Madonna er ekki þekkt fyrirað fara troðnu slóðir. Eftir að hafa sýnt á sér mjúku hliðina í barnabókum sínum, tókst henni að hneyksla marga með því að kyssa Britney Spears á sviði. Nú ætlar hún að ganga lengra og sagt er að sviðsframkoma henn- ar verði engu lík á tónleikaferða- laginu sem hefst á mánudag og kallast Re-Invention eða endur- sköpun. Madonna er líklega sá tónlistarmaður samtímans sem hefur hvað oftast endurskapað ímynd sína, þannig að þessi titill á líklega vel við. Á tónleikunum mega áhorf- endur búast við að sjá Madonnu „grillaða“ í rafmagnsstól og ímyndir af fólki að deyja í Írak birtast á risaskjá. Þá mun hún herma eftir kynlífsathöfnum lesbía í trylltum tangó við kven- kyns dansara og fáklæddar ólétt- ar konur verða í forgrunni þegar hún syngur gamla smellinn sinn Papa Don’t Preach. Lagið American Life breytist í mótmæli gegn stríði þar sem tvinnað verður saman ómi af sprengjudyn og vídeómyndum af bardögum í Írak og Afganistan. Þá munu ófá tárin læðast niður kinnar hennar við myndir af sveltandi börnum á meðan hún syngur lag Johns Lennon, Imagine. Áætlað er að kostnaður við þessa heljarinnar sýningu sé um 130 milljónir króna. ■ Nýjasta breiðskífa RúnarsJúlíussonar, Trúbrotin 13, hef- ur verið með þeim söluhæstu á landinu frá því að hún kom út í byrjun síðasta mánaðar. Salan gengur vel og er fyrsta upplag uppselt. Platan er afar persónu- legur óður Rúnars til foreldra sinna, Júlíusar Eggertssonar og Guðrúnar St. Bergmann. „Heiðra skaltu föður þinn og móður,“ segir Rúnar. „Platan er á trúarlegu nótunum enda var mamma mín í kór í 45 ár. Ég lærði svolítið af sálmum í gegnum hana. Þetta er plata sem truflar engan og er þægileg.“ Rúnar segist vera trúaður mað- ur en ekkert um of. „Ég er ekki of- stækismaður í því en ég fermdist og var skírður. Ég er þó ekki gift- ur og fer ekki reglulega í messu. Ég tek þó stundum þátt í trúartón- leikum. Ég er bara trúaður eins og gengur og gerist. Ég fíla mig þó alveg í gegn að vera syngja trúar- söngva og legg mig allan fram.“ Á plötunni er mikið um kór söng og er hann blandaður rokki og kántrí. „Síðan er eitt lag sem ég söng þegar ég var sex ára. Afi minn hafði tekið upp sönginn og við fundum spóluna í dánarbúinu hans. Fyrir plötuna bættum við Þórir Baldursson tónlist á bak við sönginn. Þannig að þetta eru fyrstu upptökurnar sem voru gerðar með mér, um miðbik síðustu aldar.“ Rúnar segir titilinn aðallega vera til þess að benda fólki á að þetta sé trúarplata og að lögin séu þrettán. Hann viðurkennir þó að þarna sé tilvísun í það að hann hafi verið liðsmaður í ofur- grúbbunni Trúbrot á sínum tíma. Í nógu er að snúast hjá Rúnari þessa dagana. Hann hefur nánast gefið út plötu árlega og þegar blaðamaður náði tali á honum var hann að hljóðrita nýtt lag með Hljómum. „Ég frestaði þessari plötu vegna þess að Hljómarnir gáfu nýja plötu í fyrra. Núna erum við að dunda okkur við nýtt lag sem heitir Upp með húmorinn. Það er fyrir safnplötu sem kemur út í sumar. Svo kemur ný Hljóma- plata út 5. október. Það gekk vel síðast, hún seldist helling, þannig að það er að minnsta kosti ein plata í viðbót.“ biggi@frettabladid.is Changer: Scenes „Lögin sem standa upp úr eru Rough Mix, þar sem Slayer-áhrifin leyna sér ekki, grind-corelagið Sponk er öflugt, titillag plötunnar er einnig mér að skapi, skemmtilegar taktpælingar og sýna Changer-liðar færni sína á hljóðfærin. Það er einna helst að söngur- inn höfði ekki til mín á köflum en hann er þó ágætur. Changer er greinilega á uppleið og gaman væri að sjá enn vandaðri vinnubrögð á næstu plötu og kannski utanaðkomandi upptökustjóra. Það hefði gert gæfumuninn á Scenes.“ SJ The Streets: A Grand Don’t Come for Free „Styrkur Mike Skinner, er ekki bara þetta sérstaka heimalagaða sánd, heldur er maðurinn mjög hæfi- leikaríkt skáld. Hann er alls ekki að reyna upphefja sitt eigið egó í textum sínum eins og oft vill verða í rappi. Einbeitir sér frekar að því að vera mennskur, og fjallar opinskátt um bresti sína, og hikar ekki að gera grín að sjálfum sér. Hvert lag fangar nýja tilfinningu, hvort sem það er paranoja eins og í laginu What is he thinking? eða eftirsjá á glataðri ást eins og í besta lagi plötunnar Dry Your Eyes. Önnur platan í röð sem verður minnst í tónlistarsögunni sem skyndiklassík. Ótrúleg plata, fullt hús stiga.“ BÖS Wax Poetic: Nublu Sessions „Tónlistin er mjög þægileg áheyrnar og er platan mjög fjölbreytt. Á henni má finna róleg og ljúf lög (Tell Me), fönkí lög (Dreamin, Time) dansvæn (Sea Grass) og til- raunakennd (Oriental Wind). Hafði ég sérstaklega gaman af Sea Grass, sem Davenport syngur. Dauðan punkt er vart finnandi og ljóst að Wax Poetic bætist í hóp þeirra sem ég mun fylgja eftir eins og skugginn. Hún er, í einu orði sagt, frábær.“ SJ Lali Puna: Faking the Books „Bara í dag er ég búinn að renna þessari plötu þrisvar sinnum yfir, og er fjarri nálægt því að fá leið. Það er ekki nóg að lagasmíðarnar séu sterkar heldur er þessi kaka kyrfilega skreytt hljóðsælgæti hér og þar. Eða eins og söngkonan syngur í einu laginu; „Remember the Small Things“. Lykillinn að því að láta hvert einasta ástarsam- band ganga upp. Án efa ein af plötum ársins, sama hversu blómlegt restin af tónlistarárinu verður.“ BÖS Heiðra skaltu föður þinn og móður RÚNAR JÚLÍUSSON „Ég hef aldrei haft eins mikið að gera eins og í dag,“ segir Rúnar Júlíusson þakklátur. „Þessa helgina er ég að spila sex sinnum í ýmsum myndum.“ TÓNLIST RÚNAR JÚLÍUSSON Hefur aldrei verið uppteknir en þessa dagana. Gaf út breiðskífuna 13 Trúbrot í minningu foreldra sinna á dögunum, er byrjaður á næstu plötu Hljóma. JÓN ÓLAFSSON Gagnrýnandi Fréttablaðsins sagði fáa sem enga vankanta á frumraun Jóns Ólafssonar. Jón Ólafsson: Jón Ólafsson „Fyrri hluti plötunnar er betri en sá síðari og þar er erfitt að taka eitt lag eða texta út. Afstæðiskenning ástarinnar og Sólin kemur aftur upp koma þó sterklega til greina sem bestu lögin með bestu textana að auki. Siesta og Flugur þóttu mér sístu lögin og var hið fyrrnefnda full væmið fyrir minn smekk. Engu að síður eru fáir vankantar á þessari frumraun Jóns Ólafssonar. Sýnir hann hér og sann- ar að þar fer tónlistarmaður í fremstu röð.“ FB Magnet: On Your Side „En sama hversu flottar útsetningarnar eru væri þessi tónlist náttúrlega hundleiðinleg ef laga- smíðarnar væru ekki svona fínar. Lögin eru tilfinn- ingarík, ljúf, stutt er í depurðina og melódíurnar fallegar. Þetta er byggt utan um þessa unaðslegu tilfinningu sem heldur okkar gangandi á dimmum skammdegiskvöldum. Þegar við vitum að tilveran er falleg, þrátt fyrir að vera myrk.“ BÖS [ SMS ] UM NÝJUSTU PLÖTURNAR [ SMS ] UM NÝJUSTU PLÖTURNAR TÓNLIST, SPRENGJUR OG SVELTANDI BÖRN Búist er við að tónleikaferðalag Madonnu sem hefst á mánudaginn hneyksli marga. Madonna yfir strikið? ÞÚ ERT REKINN! Donald Trump, stjarnan í raunveruleika- þættinum Lærlingurinn sem birtist á Stöð 2 í júní og unnusta hans, Melania Knauss, eru hér í New York að kynna aðra seríu þáttarins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.