Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 50

Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 50
FÓTBOLTI „Ég held við verðum að vera sáttir við að fara með eitt stig frá Eyjum alla vega miðað við hvernig leikurinn spilaðist,“ sagði Ríkharður Daðason, sóknarmaður hjá Fram, eftir að ÍBV og Fram höfðu gert 1-1 jafntefli í 2. umferð Landsbankadeildar karla. ÍBV komu miklu ákveðnari til leiks og höfðu talsverða yfirburði í fyrri- hálfleik. Ian Jeffs og Bjarnólfur Lárusson áttu miðjuna og varnar- lína Framliðsins virtist óörugg þar sem Hans Fróði Hansen átti afleitan dag. „Við vorum mun sterkari í fyrri hálfleik og það er svekkj- andi að hafa ekki klárað leikinn. Framarar voru ekki að skapa sér mikið en settu smá pressu á okkur í seinni hálfleik sem skilaði þeim jöfnunarmarkinu. Það er ekki nógu gott að hafa aðeins tvö stig eftir fyrstu tvær umferðirnar,“ sagði Bjarnólfur Lárusson leik- maður ÍBV. ÍBV komst yfir á 26. mínútu með marki frá Gunnari Heiðari Þorvaldssyni sem var óvenju ró- legur í leiknum. ÍBV-liðið sótti stöðugt og tvisvar sinnum þurfti góður markvörður Framliðsins, Gunnar Sigurðsson, að taka á hon- um stóra sínum. „Við lentum í töluverðum vandræðum í upphafi leiksins og við komumst eiginlega ekkert út úr okkar vallar- helming,“ sagði Ríkharður Daða- son og Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, var sammála honum. „Við vorum betra liðið í leikn- um og sérstaklega í fyrri hálfleik. Aftur er ég mjög ósáttur við að fá bara eitt stig. Mér fannst við hörfa óþarflega mikið undan vind- inum í seinni hálfleik til að halda fengnum hlut. Við fáum á okkur mark eftir um 75 mínútur leik en fyrir utan það man ég ekki eftir færi frá þeim í leiknum,“ sagði Magnús, en jöfnunarmark Fram- ara kom á 78. mínútu og var það Þorvaldur Makan Sigbjörnsson sem skoraði með skalla. Eyjamenn reyndu hvað þeir gátu til að ná í öll þrjú stigin en uppskáru aðeins eitt rautt spjald þegar Ian Jeffs, besti maður vall- arins, braut gróflega á Ragnari Árnasyni og góður dómari leiks- ins, Gísli Hlynur Jóhannsson, sýndi honum umsvifalaust rauða spjaldið. Framarar kláruðu leik- inn einnig 10 en Ómar Hákonar- son fékk að líta gula spjaldið í tví- gang hjá Gísla. ■ 38 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR KLÁR Í SLAGINN Jenson Button, hjá BAR-Honda-liðinu, gerir sig kláran í fyrstu frjálsu æfinguna fyrir kappaksturinn í Mónakó. FORMÚLAN Samningaviðræður við Bolton í strand: Rivaldo á leið til Celtic FÓTBOLTI Brasilíski hrægammur- inn Rivaldo gæti verið á leiðinni til Skotlandsmeistara Glasgow Celtic eftir að samningaviðræður kappans við enska úrvalsdeildar- félagið Bolton virðast hafa siglt í strand. Sæti Celtic í meistaradeild Evrópu er freistandi í augum Rivaldos, sem nýorðinn er 32 ára. „Það er mjög mikilvægt fyrir mig að spila í liði sem á sæti í meistaradeildinni og þá er Glas- gow ein af höfuðborgum fótbolt- ans í heiminum. Ef ég á að vera hreinskilinn þá finnst mér stór og sigursæll skoskur klúbbur eins og Celtic vera mun áhugaverðari kostur en mun minni enskur klúbbur, vegna þess að ég vil vinna titla. Þetta snýst ekki bara um peninga og það er alrangt sem haldið hefur verið fram að ég selji mig hæstbjóðanda.“ Á ferli sínum hefur Rivaldo spilað með brasilísku liðunum Paulista, Santa Cruz, Mogi-Mirin, Corinthians, Palmeiras og Cruzeiro og spænsku liðunum Deportivo La Coruna og Barcelona auk ítalska liðsins AC Milan. ■ Verðum að vera sáttir Framarar náðu í stig í Eyjum í Landsbanka- deild karla í knattspyrnu. Þorvaldur Makan tryggði stigið með marki í seinni hálfleik. Boxari í hringinn á ný: Tyson klár HNEFALEIKAR Zoloft-ætan Mike Tyson mun snúa aftur í hringinn í sumar en þessi fyrrum heims- meistari í þungavigt hnefaleika, er farinn að æfa á fullu í Central Boxing klúbbnum í Phoenix. Tyson mun mæta Íranum Kevin McBride þann 31. júlí næst- komandi. Tyson, sem verður 38 ára þann 30. júní, hefur ekki barist síðan hann vann Clifford Etienne í febrúar í fyrra. Hann má muna fífil sinn fegurri en árið 1985 varð hann yngsti heims- meistari sögunnar og það efast fáir um að þegar hann var upp á sitt besta hafi hann verið öflugasti boxari sögunnar. ■ Norðurlandamót í körfu: Sigur á Svíum KÖRFUBOLTI 16 ára landslið Íslands gerði sér lítið fyrir og vann heima- menn í Svíþjóð í fyrsta leik sínum á Norðurlandamóti yngri lands- liða. Íslensku strákarnir byrjuðu illa en komust fljótlega í gang en í hálfleik var staðan 42-24 íslensku drengjunum í vil. Emil Jóhannsson (úr Fjölni) fór á kostum í öðrum leikhlutanum, setti heil 12 stig í öllum regnbogans litum. Í s l e n s k u strákarnir klár- uðu svo leikinn örugglega, 77- 59. Hjörtur Hrafn Einarsson var stigahæstur í íslenska liðinu, skoraði 20 stig, Emil Jóhanns- son skoraði 17 stig (hitti úr átta af 14 skotum), Hörður A. Vil- hjálmsson skor- aði 17 stig (níu fráköst, fimm stoðsendingar), Brynjar Björnsson 16 stig. Hin þrjú landsliðin töpuðu fyrir jafnöldrum sínum frá Svíþjóð. Jó- hann Árni Ólafsson skoraði 24 stig í 73-83 tapi 18 ára landsliðs stráka, Helena Sverrisdóttir skoraði 27 stig í 74-84 tapi 16 ára landsliðs stelpna og Petrúnella Skúladóttir gerði 16 stig í 40-65 tapi 18 ára landsliðs kvenna. ■ BESTI MAÐUR VALLARINS FÉKK EKKI AÐ KLÁRA LEIKINN Ian Jeffs stóð sig vel með ÍBV en fékk að líta rauða spjaldið í lokin. HJÖRTUR MEÐ 20 STIG Hjörtur Hrafn Ein- arsson skoraði 20 stig í sigri á Svíum. TVÖ MÖRK Í TVEIMUR LEIKJUNUM Þorvaldur Makan Sigbjörnsson tryggði Fram jafntefli í Eyjum. ÍBV–FRAM 1–1 (1–0) 1–0 Gunnar Heiðar Þorvaldsson 26. 1–1 Þorvaldur Makan Sigbjörnsson 78. DÓMARI Gísli Hlynur Jóhannsson Góður BESTUR Á VELLINUM Ian Jeffs ÍBV TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 15–12 (8–9) Horn 6–2 Aukaspyrnur 21–20 Rangstæður 2–1 Spjöld (rauð) 2–3 (1–1) FRÁBÆRIR Enginn MJÖG GÓÐIR Ian Jeffs ÍBV Eggert Stefánsson Fram GÓÐIR Bjarnólfur Lárusson ÍBV Mark Schulte ÍBV Tryggvi Bjarnason ÍBV Birkir Kristinsson ÍBV Ingvar Þór Ólafsson Fram Gunnar Sigurðsson Fram Þorvaldur Makan Sigbjörnsson Fram Ríkharður Daðason Fram ■ Það sem skipti máli RIVALDO EKKI TIL BOLTON Hér sést Brasilíumaðurinn Rivaldo í búningi AC Milan. Gæti verið á leiðinni til skoska liðsins Glasgow Celtic. Stöndum vörð um lýðræðið a s k o r u n . i s

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.