Fréttablaðið - 21.05.2004, Síða 64

Fréttablaðið - 21.05.2004, Síða 64
F í t o n / S Í A F I 0 0 8 8 8 5 Þeir sem íhuga að fá sér bíl hafa um fleiri leiðir að velja en nokkru sinni fyrr. Sumir sjá sér hag í að taka bílinn á einkaleigu eða rekstrarleigu. Aðrir vilja frekar kaupa bíl og eignast hann. VÍS býður nú: Hærra lánshlutfall: Hámarksbílalán VÍS verður 100% af kaupverði bíls en var 70% áður. Vextir eru breytilegir á lánstíma. Óbreyttan lánstíma: Lánstími verður allt að 7 ár. Margar ástæður eru fyrir því að kaupa bíl fremur en að taka hann á leigu. Með bílaláni eignast þú bílinn á lánstímanum og getur breytt honum að vild eða selt hann þegar þér hentar. Hringdu í VÍS í síma 560 5383 og fáðu nánari upplýsingar eða komdu við á næstu bílasölu. VÍS, Ármúla 3, 108 Reykjavík, www.vis.is Þjónustuver VÍS, símaþjónusta mánudaga til föstudaga kl. 8:00-19:00, sími 560 5000 SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S E G J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R 550 5000 -DEILAN MIKLA- Fyrirlestur í spádómum biblíunnar í Suðurhlíðarskóla kl. 20.00 Föstudagur 21. maí: Kraftaverk antikrists Ekki meir Ég uppgötvaði um daginn þegarég var að horfa á umræðuþátt í sjónvarpinu þar sem einhver snill- ingurinn talaði um tilraunir til valdaráns á Íslandi og sakaði heilu og hálfu þjóðina um samsæri gegn ákveðnum stjórnmálamanni hér í bæ, í tengslum við hið undursam- lega fjölmiðlafrumvarp, að ég var farinn að fá líkamleg einkenni út af öllu ruglinu sem flæðir yfir mann þessa dagana. Ég varð skyndilega andstuttur og einhverjir einkenni- legir kippir gerðu vart við sig í hálsvöðvunum. Þegar ég var farinn að rykkja til höfðinu síendurtekið ákvað ég að grípa fjarstýringuna og slökka á sjónvarpinu eins og skot. ÞÁ FÆRÐIST yfir mig ró og lík- amlegu einkennin hurfu. En ég fór að spá. Hvað ef þetta heldur áfram? Af ótta við það að líkami minn muni umbreytast og grænar bólur fari að skjótast út á enninu sem ósjálfrátt viðbragð við hinni yfirgengilegu heimsku hef ég ákveðið að setja mörk á það hversu mikið ég horfi á umræður í sjónvarpi, og einkum og sér í lagi umræður á Alþingi. EF stjórnarþingmennirnir halda því fram einu sinni enn að einhver einn maður með sítt að aftan sé að eign- ast Ísland munu mér vaxa skögul- tennur. Ef formenn stjórnarflokk- anna lýsa því aftur yfir að það sé sátt um mál þegar 80% þjóðarinnar er á móti mun ég ummyndast í framan og byrja að urra. Og ef und- arlegi prófessorinn upp í Háskóla heldur því fram einu sinni enn að einhverjir myrkrahöfðingjar bruggi launráð gegn Bubba kóngi dag og nætur og ef þessi sami maður og hans vinir skipta þjóðinni enn einu sinni upp í þá sem eru með og móti einhverri árans matvöruverslun skýt ég upp kryppunni. EKKI MEIR segi ég. Ekki meir. Ef þetta heldur áfram mun mér vaxa feldur og langar klær og ég mun taka stökkið upp í fjöll og þið munið sjá mig í framtíðinni spangóla á fullu tungli í Bláfjöllum og éta kind- ur með berum höndum á Suður- landsundirlendi. Um það verða sagðar þjóðsögur. Maðurinn sem breyttist í óargadýr útaf vitleysis- gangi. Bakþankar GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.