Fréttablaðið - 07.03.2004, Side 1
Kynþáttafordómar Íslendinga
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 42
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
STÓRLEIKUR Á AKUREYRI
Fjórir leikir verða í úrvalsdeild Remax-
deildar karla í handbolta. Klukkan 17 tek-
ur KA á móti Haukum en klukkan 19.15
mætast ÍR - Stjarnan, HK - Valur og Fram
- Grótta KR. Einn leikur verður í Remax-
deild kvenna. Haukar mæta Víkingum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
7. mars 2004 – 66. tölublað – 4. árgangur
VILL SKERÐA KJÖRIN Formaður
efnahagsnefndar Alþingis segir að semja
hefði átt um breytingar á launakjörum rík-
isstarfsmanna í stað tengingar lífeyrisrétt-
inda við almenn laun. Sjá síðu 2
LÍTIÐ ÞOKAST Lítið hefur þokast í sam-
komulagsátt í heimahjúkrunardeiluni þrátt
fyrir fundahöld undangenginna daga og
þreifingar í allan gærdag. Sjá síðu 2
TITRINGUR Á NESINU Talsmaður
Valhúsaskóla segir framlengdan umsóknar-
frest um stöðu skólastjóra vantraustsyfirlýs-
ingu á núverandi skólastjóra. Margir íhuga
uppsagnir. Sjá síðu 4
STRANGUR HEMILISFAÐIR Osama
bin Laden, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna
al-Kaída, er strangur heimilisfaðir sem spil-
ar blak í frístundum og hefur gaman af
ljóðum, að því er fram kemur í kanadískri
heimildarmynd. Sjá síðu 2
KJARAMÁL Rammi að nýjum kjara-
samningi á almennum vinnu-
markaði liggur fyrir. Samninga-
nefndir atvinnurekenda annars
vegar og Starfsgreinasambands-
ins og Flóabandalagsins hins
vegar funduðu um málið í allan
gærdag.
Málið er á mjög viðkvæmu
stigi og þess vegna vildu fulltrúar
stéttarfélaganna og atvinnurek-
enda ekki tjá sig um það í gær-
kvöldi. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er reiknað með því
að nýir kjarasamningar verði
undirritaðir í kvöld en það er þó
háð því hvað kemur út úr fundi
verkalýðsleiðtoganna og ríkis-
stjórnarinnar klukkan þrjú í dag.
Á fundinum verður rætt um
hækkun atvinnuleysisbóta og líf-
eyrismál. Heimildir herma að til-
tölulega góð sátt sé um atvinnu-
leysisbæturnar en að lífeyris-
málin gætu sett strik í reikningin.
Útspil ríkisstjórnarinnar er talið
ráða úrslitum um hvort samning-
arnir verði undirritaðir.
Eftir fundinn með ríkisstjórn-
inni munu stóru samninganefndir
Starfsgreinasambands Íslands og
Flóabandalagsins þinga í sínum
hópi og fara yfir stöðuna. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins kveður
samningurinn á um að almennar
launahækkanir verði í kringum
3% á ári miðað við fjögurra ára
samningstíma. Sennilega verður
samið um 3,25% launahækkun
strax við undirritun. Þetta þýðir að
á samningstímabilinu munu laun
hækka um 12 til 13%. Fréttablaðið
greindi frá því á miðvikudaginn að
atvinnurekendur hefðu upphaf-
lega boðið 8,45% launahækkun á
fjórum árum en stéttarfélögin
hefðu viljað um 18% hækkun.
trausti@frettabladid.is
Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins eru Íslendingar haldnir kynþáttafordómum. Að minnsta kosti
þrjú félög sem kenna sig við þjóðernishyggju eru starfandi hér á landi. Viðmælendum Fréttablaðsins ber þó flestum
saman um að kynþáttahatur hérlendis sé í mýflugumynd. SÍÐA 24–25
▲
Ríkisstjórnin ræður úrslitum
Drög að nýjum kjarasamningi liggja fyrir. Verkalýðsleiðtogar funda með ríkisstjórninni í dag.
Niðurstaðan úr þeim viðræðum ræður úrslitum um hvort samningar verði undirritaðir í kvöld.
Markús Örn Antonsson:
Efasemdir
um löggjöf
SUNNUDAGSVIÐTAL „Ég er mjög efins
um að við náum skynsamlegri nið-
urstöðu um opinber afskipti af eign-
arhaldi,“ segir
Markús Örn Ant-
onsson útvarps-
stjóri, spurður um
álit sit á hugsanleg-
um lögum um eign-
arhald á fjölmiðl-
um. „Það sem ég
óttast mest er að
slík lagasetning
byði því heim að
menn færu í kring-
um hana og til yrði neðanjarðar-
starfsemi: ný fyrirtæki stofnuð með
nýjum nöfnum og auðmenn í stöð-
ugum feluleikjum. Það tel ég ekki af
hinu góða.“ Nánar á síðum 22-23
Tónleikar:
Pixies
á leiðinni
TÓNLIST Hljómsveitin Pixies er á leið
til Íslands. Hún mun spila í Kapla-
krika 26. maí og verða það fyrstu
tónleikarnir í nýrri tónleikaferð, en
hljómsveitin kemur nú saman eftir
tíu ára hlé, aðdáendum hennar –
sem eru fjölmargir hér á landi – til
mikillar gleði. Hljómsveitin er án
efa ein áhrifamesta popphljómsveit
síðari ára. Nánar á síðum 20-21
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IR
KI
R
AG
N
AR
SS
O
N
HVASST SUNNAN OG VESTAN
Annars staðar allhvasst, einkum síðdegis.
Mikil rigning sunnan og vestantil, sér í lagi
síðdegis. Lægir eitthvað í kvöld, en þó má
búast við vindasömum dögum fram
undan. Sjá síðu 6.
MARKÚS ÖRN
Vill ekki opinber
afskipti af
eignarhaldi.
Hvernig á
að spara?
Gunnar Baldvinsson, forstöðumað-
ur lífeyrissviðs eignastýringar Ís-
landsbanka, hefur skrifað bókina
Verðmætasta eignin. Hún er góður
lestur fyrir alla þá sem vilja byggja
upp eignir og sjóði fyrir efri árin,
en þar er í mörg horn að líta.
Hrafnkell Flóki Einars-
son, ellefu ára, hélt
fyrst að tónlist föður
síns, Einars Arnar
Benediktssonar, væri
tæknivilla. Hrafnkell
spilar á trompet í
hljómsveit Einars,
Ghostigital.
Faðir og sonur
í hljómsveit
▲
SÍÐA 26 og 27 SÍÐA 16 OG 17
▲
BRAK BJÖRGUNARSKIPSINS VIÐ SELATANGA Flak björgunarskipsins Arun fannst austan við Grindavík í gærmorgun og var það
gjörsamlega ónýtt. Missir skipsins gæti seinkað áformum Landsbjargar um fjölgun björgunarskipa umhverfis landið. Sjá nánar á bls. 2