Fréttablaðið - 07.03.2004, Síða 18
London er miðpunktur útrásarÍslendinga á erlenda markaði.
Baugur, Bakkavör og KB banki
hafa lagt í mik-
lar fjárfersting-
ar í Bretlandi.
Þá hefur Lands-
bankinn fjárfest
í Bretlandi og
Pharmaco stefn-
ir á skráningu í
kauphöllinni í
London. Flugfé-
lagið Atlanta er einnig orðið um-
svifamikið á Bretlandseyjum.
Forvitni breskra fjölmiðla er
vakin. Einkum eru það kaup ís-
lenskra fjárfesta á skráðum og
óskráðum félögum sem vekja at-
hygli. Þar ber hæst fjárfestingar
Baugs í sérvöruverslun og kaup
KB banka á hlutabréfum í Singer
and Friedlander.
Baugur náði athygli fjármála-
pressunnar bresku í vikunni.
L e i k f a n g a v e r s l a n a k e ð j a n
Hamleys sem er að stærstum
hluta í eigu Baugs gerði styrktar-
samning við Formúlu 1 lið BMW
Williams. Nafn Hamleys mun
prýða framhluta keppnisbíla liðs-
ins. Financial Times segir upphæð
samningsins vera 500 þúsund
pund eða 65 milljónir króna.
Bresk blöð greindu frá samningn-
um og ræddu við Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóra Baugs. Dag-
inn eftir var Jón Ásgeir meðal
frummælenda á ráðstefnu þar
sem helstu forkólfar sérvöru-
verslana Bretlands báru saman
bækur sínar. Ráðstefnan var á
vegum tímaritsins Retail Week.
Smásalan í blóðinu
Financial Times ræddi við Jón
Ásgeir að þessu tilefni undir fyr-
irsögninni: „Forstjóri Baugs sér
fyrir sér afskráningu smærri sér-
vöruverslana.“ Jón Ásgeir segir í
samtali við fréttamann Financial
Times að hann sjái fyrir sér að fé-
lög með veltu undir 500 milljón-
um punda verði tekin af skráðum
markaði. Regluverk markaðarins
sé of flókið og kostnaðarsamt til
þess að þau eigi erindi á markað.
Í þessari þróun hyggst Baugur
taka fullan þátt og hefur þegar
gripið tækifæri sem hafa gefist.
Í erindi sínu á ráðstefnu Retail
Week fór Jón Ásgeir yfir fjárfest-
ingar Baugs í smásöluverslun í
Bretlandi. Spurningin sem Jón
Ásgeir velti fyrir sér var hvort
það skipti máli hverjir fjárfestu í
smásöluverslun.
„Við erum smásalar, það er í
blóðinu,“ sagði hann og lagði
áherslu á að það þýddi að fjár-
festingarnar væru í rekstri en
ekki verðbréfum. Baugur hugsaði
til lengri tíma en almennir fjár-
festar.
Áhersla Baugs í fjárfestingum
í Bretlandi hefur verið að vinna
með stjórnendum fyrirtækjanna
og gera þá að hluthöfum með sér í
fyrirtækjunum. „Við veitum
stjórnendum skilyrðislausan
stuðning, en förum fram á góðan
árangur í staðinn.“ Jón Ásgeir
lýsti ennfremur fjárfestingar-
stefnu Baugs. „Við leitum fyrir-
tækja með góða þriggja til fjög-
urra ára rekstrarsögu og trausta
stjórnendur. Reynsla Baugs af
fjárfestingu í Bonus Dollar Store í
Bandaríkjunum varð fyrirtækinu
lexía. Sú fjárfesting tapaðist. „Við
keyptum fyrirtækið úr greiðslu-
stöðvun. Við höfum lært að það að
kaupa fyrirtæki á þeirri forsendu einni að þau séu ódýr borgar sig
ekki þegar til lengri tíma er litið.
Komin til að vera
Jón Ásgeir segir ástæðu þess
að Baugur valdi Bretland til út-
rásar vera að mörg áhugaverð
tækifæri leyndust á markaðnum.
Þar væru sterk vörumerki sem
væru þekkt um allan heim. Eign-
arhald fyrirtækja væri með þeim
hætti að fagfjárfestar væru
sterkir í hópi eigenda. Þeir væru
líklegri til að vilja selja fyrir rétt
verð en fjölskyldur sem væru til-
finningalega tengdar fyrirtækj-
um.
„Við leitum sterkra stjórnenda
og gleymum ekki hvaðan við
komum,“ sagði Jón Ásgeir og
benti á að yfirbygging Baugs
væri lítil. Áhersla væri á að beita
nýjustu upplýsingatækni til þess
að geta stöðugt fylgst með ár-
angri rekstrarins. „Við höfum
VIÐSKIPTI Í liðinni viku lögðu þing-
menn úr öllum flokkum, undir for-
ystu Einars K. Guðfinnssonar Sjálf-
stæðisflokki, fram tvö frumvörp
um breytingar á lögum um verð-
bréfaviðskipti annars vegar og
hlutafélagalögunum hins vegar.
Markmið frumvarpanna er að
styrkja stöðu smærri hluthafa í fé-
lögum til dæmis með því að banna
fyrirtækjum að kaupa eignir af
stjórnendum og hluthöfum nema að
undangengnu óháðu mati. Í tillögun-
um er einnig lagt til að ef viðskipti
með félög á markaði eru undir til-
teknu viðmiði séu kallaðir til óháðir
aðilar til að meta verðmæti félags-
ins ef yfirtöku- eða innlausnar-
skylda myndast. Umræða um stöðu
hluthafa, stórra og smárra, hefur
verið mjög í brennidepli á síðustu
misserum.
Frjáls og skilvirkur markaður
Í hagfræðinni er að finna nokkur
skilyrði þess að frjáls markaður
teljist vera skilvirkur. Þessi skilyrði
lúta meðal annars að því að full-
komnar upplýsingar séu til staðar
og að virkur markaður sé til staðar
með allar vörur. Þetta þýðir í raun
að forsenda skilvirks markaðar sé
að svo mikill fjöldi þátttakenda sé
með allar markaðsvörur að enginn
einn aðili geti haft afgerandi áhrif á
verðmyndun og að allir þátttakend-
ur hafi jafnmikinn aðgang að upp-
lýsingum sem geta haft áhrif á
verðmat.
Raunveruleikinn er hins vegar
gjarnan nokkuð langt frá því að
uppfylla þessi skilyrði en ströngum
reglum um upplýsingaskyldu félaga
á markaði og lögum um vernd
minnihlutahluthafa er ætlað að
beina mörkuðum í átt til aukinnar
skilvirkni.
Kauphallir stuðla að skilvirkni
Kauphallir gegna mikilvægu
hlutverki við að tryggja skilvirkni
markaða og það er regla fremur en
undantekning að kauphallir setji að-
ildarfélögum sínum miklum mun
strangari skilyrði heldur en kveðið
er á um í lögum. Þegar félög taka
ákvarðanir um að leita til opinna
markaða um fjármögnun og gefa al-
menningi kost á að kaupa hluti verð-
ur í raun til samningur á milli fyrir-
tækisins og aðila á markaði þar sem
forsendan er að fyrirtækið tryggi
fjárfestum ítarlegar og heiðarlegar
upplýsingar um allt sem varðað get-
ur starfsemi félagsins.
Hneyksli kalla á endurskoðun
Á undanförnum misserum hafa
fjölmörg hneykslismál komið upp
er varða misnotkun fyrirtækja-
stjórnenda á trúnaði. Frægast er
bandaríska fyrirtækið Enron en þar
komst upp um svikamyllu sem hald-
ið var uppi af stjórnendum félags-
ins og endurskoðunarfyrirtæki
þess, Arthur Andersen. Markmið
samsærisins var að flytja fjármagn
frá hefðbundnum hluthöfum á
markaði í vasa stjórenda og stærstu
hluthafa. Niðurstaða þess máls get-
ur orðið alvarleg viðvörun til ann-
arra sem stunda óvönduð vinnu-
brögð. Útlit er fyrir að stjórnendur
Enron lendi í fangelsi, sem bætist
ofan á sektir og atvinnu- og æru-
missi. Endurskoðunarfyrirtækið
Andersen fór beinustu leið á haus-
inn enda rúið öllu trausti eftir
hneykslið.
Mál sem þessi eru mjög alvar-
legt áfall fyrir markaðinn í heild og
því er háttsemin litin alvarlegum
augum af stjórnvöldum en ekki síð-
ur aðilum á markaði sem hafa ríka
hagsmuni af því að almenningur
geti borið traust til fyrirtækja sem
skráð eru í kauphallir.
Allir geti tekið þátt í markaði
Gylfi Magnússon, dósent í hag-
fræði við Háskóla Íslands, segir að
vandinn sem skapist við að aðgreina
hagsmuni hluthafa og stjórnenda sé
gamalt viðfangsefni sem víða sé til
umfjöllunar.
„Þessi umræða um sjtórnunar-
hætti og hluthafa endurspeglar að
það hafa komið upp nokkur slæm
mál þar sem farið hefur illa og nú er
verið að leita að leiðum um allan
heim til að draga úr líkunum á mis-
notkun og gera kerfið allt saman
skilvirkara,“ segir Gylfi. Hann seg-
ir mikilvægt að markaðir séu þess
eðlis að sem flestir geti tekið þátt í
þeim.
„Það er hægt að hugsa sér mark-
að þar sem aðeins fagfjárfestar
þora og hafa einhverja ástæðu til að
fjárfesta en ég held að það sé alveg
ljóst að slíkur markaður ætti miklu
erfiðara með að afla fjár og yrði á
allan stað óskilvirkari,“ segir hann.
Traust á markaði nauðsynlegt
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, tekur undir að
18 7. mars 2004 SUNNUDAGUR
■ Viðskipti
Stóru hagsmunir
smáu hluthafanna
Heiðarleg vinnubrögð fyrirtækja eru forsenda skilvirks markaðar – og áföll síðustu misseri hafa
kallað á endurskoðun bæði hjá stjórnvöldum og mörkuðum víða um heim.
Innheimtu- og greiðsluþjónusta
ÁRANGUR - ÖRYGGI - HAGRÆÐI
533 3377
www.innheimta.is
ÁTTU ÚTISTANDANDI KRÖFUR?
VILTU BÆTA FJÁRSTREYMIÐ?
London efst á baugi
Fjárfestingar Baugs í Bretlandi hafa vakið athygli. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, leitar
nýrra tækifæra í Bretlandi og segir fyrirtækið komið til að vera.
Á KAPPAKSTURSBRAUTINNI
Merki leikfangaverslanakeðjunnar Hamleys
mun þeysa um brautir Formúlu 1
kappakstursins. Baugur á 92% í Hamleys.
„Við leitum
sterkra stjórn-
enda og
gleymum ekki
hvaðan við
komum.
FJÁRFESTINGAR BAUGS
Í BRETLANDI
Verkefnafjárfestingar:
Óskráð félög:
Hamleys
Oasis
Julian Graves
Skráð félög:
Big Food Group
Somerfield
House of Fraser
Sjóðsfjárfestingar:
Selfridges
Mothercare
JJB Sport