Fréttablaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 19. mars 2004
JARÞRÚÐUR ÁSMUNDSDÓTTIR
Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Stúdentaráð hefur hafið undirskriftasöfn-
un gegn áformum um upptöku skóla-
gjalda innan Háskólans.
Hver?
Ég er ung móðir í viðskiptafræði, glað-
lynd og skemmtileg.
Hvar?
Núna er ég í bílnum mínum.
Hvaðan?
Ég er ættuð úr Grundarfirði á Snæfells-
nesi, frá bænum Kverná í Eyrarsveit.
Reyndar er ég fædd á Húsavík, en hef
alið manninn í Breiðholtinu. Þar bjó ég
frá sex ára aldri fram á fullorðinsárin.
Hvað?
Ég er í afskaplega skemmtilegu kven-
félagi sem kallast Kvenfélagið Snót. Svo
er ég forfallinn Risk-spilari. Við vinirnir
hittumst reglulega og spilum Risk. Það
er alveg sígilt og maður verður aldrei
leiður á því. Svo er þetta svo góð afsök-
un til að hittast.
Hvernig?
Spilatæknin er hernaðarleyndarmál en
ég er mikil sóknarkona. Í spilinu er Ástr-
alía gulrótin.
Hvers vegna?
Það er bara svo skemmtilegt og vekur
oft upp líflegar samræður, bæði kæti og
reiði.
Hvenær?
Mjög góð vinahjón mín kynntu mig fyrir
þessu spili fyrir tveimur árum síðan.
Síðan hefur það haft fastan sess í lífi
mínu, enda alveg ómissandi þáttur í til-
verunni.
■ Persónan
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
24
0x
x
0
3/
20
04 Nokia 3200
Myndavélasími
Stærð myndar 352 x 288 punktar
Litaskjár 4.000 litir
Minni 1 MB
Verð 19.900 kr.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28, Skífunni Laugavegi 26,
Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn. Þjónustuver sími 1414, www.ogvodafone.is
Frítt að senda Myndskilaboð til 1. sept. 2004.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti frá Og Vodafone.
Risapáskaegg fylgir!
M
yndskilab
oð
Frí
tt að senda
BRUCE WILLIS
Harðjaxlinn með háu kollvikin er 49 ára í dag.