Fréttablaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Ný týpa
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Tvisvar í viku í allt sumar
Sólartilboð til Florida
5000 ferðapunktar
Gilda sem greiðsla upp í pakkaferð.
Handhöfum Vildarkorts VISA og
Icelandair býðst nú að nota 5000
Ferðapunkta, jafnvirði 5.000 kr.
sem greiðslu upp í pakkaferðir Icelandair.
Tilboðið stendur til 1. apríl og gildir einu sinni fyrir korthafa sjálfan.
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða Fjarsölu Icelandair
í síma 50 50 100 (svarað mán. - fös. kl. 8-18, lau. kl. 9-17 og sun. kl. 10-16).
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Icelandair tekur við ferðaávísun MasterCard
og orlofs ávísunum VR í pakkaferðir.
Florida
Verð með afslætti frá 47.748 kr.*
Verð með afslætti frá 59.860 kr.*
Best Western Plaza
Verðdæmi 4.-12. maí og 11.-19. maí
Verð með afslætti frá 46.298 kr.*
Verð með afslætti frá 56.960 kr.*
Island Club Resort
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 8 nætur og þjónustugjöld
Brottfarir: 26. apr., 27. apr., 30. apr., 4. maí, 7. maí, 11. maí, 14. maí
og 25. maí. Heimkomur: 5. maí, 8 .maí, 12. maí, 19. maí og 3. júní
10.000 kr. afsláttur
af pakkaferðum til Orlando
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
á mann m.v. 2 fullorðna
á mann m.v. 2 fullorðna
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
23
99
9
0
3/
20
04
Ástþór Magnússon forsetafram-bjóðandi (er hann ekki annars
skráður þannig í símaskránni?)
ákvað að senda bréf til Colins Powell
utanríkisráðherra Bandaríkjanna í
vikunni. Forsetaframbjóðandinn knái
vildi með bréfi sínu vekja athygli
ráðherrans á misræmi í umfjöllun
Morgunblaðsins um væntanlega for-
setaframbjóðendur hér á Íslandi.
Heilli síðu var nefnilega varið í um-
fjöllun um Ólaf Ragnar í Mogganum
á meðan Ástþór fékk skitinn tvídálk.
MIKIÐ FINNST mér það gott hjá
Ástþóri að láta ekki svona meðferð
yfir sig ganga og ekki finnst mér það
síður mikilvægt og gott til þess að
vita að Colin Powell veit núna af
þessu misræmi. Hjúkk. Ég er miklu
rólegri. Það sem mér finnst þó at-
hyglisverðast í þessari aðgerð for-
setaframbjóðandans, burtséð frá því
hvað Powell ákveður að gera við
Moggann, er að hér virðist vera kom-
in fram á sjónarsviðið ný tegund af
opinberri persónu. Hér er komin
fram alveg ný týpa, sem byggir þó á
gömlum merg. Við getum kallað
hana klöguskjóðuna.
ENDURKOMA klöguskjóðunnar er
kærkomin. Við höfum þegar kappnóg
af prökkurum, vælukjóum, fýlupúk-
um, ólíkindatólum, dekurbörnum og
götustrákum. Klöguskjóðan er þörf
viðbót. Hvers áttu litlu krakkarnir að
gjalda sem sögðu mömmu sinni
alltaf skilmerkilega frá því þegar
einhver óþokki danglaði í þá á leik-
völlunum? Bréfið hans Ástþórs sýnir
að sá gamli og góði siður að klaga í
mömmu sína er ekki að fullu aflagð-
ur. Klöguskjóðan hefur snúið aftur.
Og nú er hún reið.
SJÁLFUR er ég nokkuð hrifinn af
þessu. Ég ætla að byrja að klaga
meira. Næst þegar einhver ryðst
fram fyrir mig í röð ætla ég að
skrifa bréf til Powells. Næst þegar
einhver segir að ég sé leiðinlegur
ætla ég að skrifa bréf til Powells. Og
næst þegar einhver talar í bíó, sem
fer ógeðslega í taugarnar á mér, ætla
ég að skrifa bréf til Powells. Og mér
verður alveg sama þótt allir hinir
muni kalla mig klöguskjóðu. Þá
skrifa ég bara bréf til Bush og Bush
kemur og lemur ykkur öll í klessu.
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR