Fréttablaðið - 29.03.2004, Side 2
2 29. mars 2004 MÁNUDAGUR
„Nei reyndar ekki - en ég tek ofan
hattinn fyrir þeim.“
Þorgrímur Þráinsson er framkvæmdastjóri Tóbaks-
varnarráðs. Á Írlandi er búið að banna reykingar á
öllum vinnustöðum - þar á meðal pöbbum og
veitingastöðum.
Spurningdagsins
Þorgrímur, á að skella sér til
Írlands í sumarfrí?
■ Noregur
Ríkið gaf og
keypti aftur
Veitingamaðurinn Elías Einarsson, sem stýrði lengi ráðstefnusölum rík-
isins í Borgartúni, fékk allt innbú gefins þegar starfseminni var hætt um
áramótin. Heilbrigðisráðuneytið hefur nú keypt hluta innbúsins aftur.
VIÐSKIPTI Heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið keypti nýlega
gömul húsgögn og innanstokks-
muni fyrir um þrjár milljónir
króna af aðila sem áður hafði
fengið þessa sömu muni gefins
frá ríkinu. Um er að ræða verð-
mæt antíkhúsgögn, ljósakrónur,
myndir og aðra muni sem áður
prýddu ráðstefnu- og fundarsali
ríkisins í gömlu rúgbrauðsgerð-
inni að Borgartúni 6. Verðmæti
þeirra er talið vera kringum tíu
milljónir króna.
„Þarna var
alls ekki um
neina gjöf að
ræða,“ segir
seljandi hús-
gagnanna, Elías
Einarsson, sem
stýrði rekstri
fundarsala rík-
isins um langt
skeið. Hann seg-
ir það hafa orðið
að samkomulagi
þegar ríkið ákvað að hætta
rekstri sínum í Borgartúninu að
hann fengi að eiga það sem inni
var sem bætur en hann átti eftir
sex ár af samningi sínum við
ríkið.
„Ég átti nú megnið af innan-
stokksmununum sjálfur og
margt annað var orðið ónýtt og
úrelt á þeim árum sem salirnir
voru reknir. Þarna var aldrei
neitt lagfært eða snyrt þennan
tíma sem ég var þarna með
rekstur og henda þurfti tals-
verðu af munum sem voru löngu
úr sér gengnir. Þess utan höfðu
viðskiptin dvínað mikið undan-
farin ár þar sem flest ráðuneyti
hafa komið sér upp sínum eigin
fundarsölum. Það varð því úr að
þegar starfseminni var hætt þá
fékk ég að eiga það sem eftir
var.“
Elías segir að þegar heilbrigð-
isráðuneytið falaðist svo eftir
húsgögnum hafi það orðið úr að
ráðuneytið greiddi þrjár milljón-
ir fyrir. „Það er langt frá raun-
virði, sem er nær tíu milljónum
króna þegar allt er talið, þannig
að ég var ekkert að græða nein
ósköp. Mér finnst það hins vegar
afar skynsamlegt hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu að falast eftir þess-
um húsgögnum sem um ræðir
vegna þess að of oft er hlaupið til
og keypt það nýjasta þó að mörg
eldri húsgögn séu í fínu lagi.“
Fyrir þessar þrjár milljónir
fékk ráðuneytið glæsilegan sófa,
tvö sófaborð, tvö fundarborð,
tvær stórar loftmyndir og tíu
fundarstóla auk annars smálegs.
Borgartún 6 hefur þegar verið
selt einkaaðilum fyrir um 330
milljónir króna. Ekki er vitað
hvað núverandi eigandi ætlast
fyrir með húsnæðið.
albert@frettabladid.is
Veiðivatnavegur:
Alvarlegt
umferðarslys
LÖGREGLA Ungur maður var fluttur
með þyrlu Landhelgisgæslunnar
eftir alvarlegt umferðarslys á
Veiðivatna- eða Jökulheimavegi á
móts við Vatnsfellsvirkjun um
klukkan hálfþrjú í gærdag.
Ökumaður jeppabifreiðar
missti stjórn á bílnum í vatnsrás
með þeim afleiðingum að hann
valt í brekku sem hann ók niður.
Lögregla frá Hvolsvelli og Sel-
fossi fór á staðinn ásamt tækjabíl
frá slökkviliðinu og sjúkrabíl.
Beita þurfti klippum til að ná öku-
manninum úr bílnum og slasaðist
hann talsvert en farþeginn slapp
án teljandi meiðsla. ■
Lögreglan í Árnessýslu:
Þrjár
bílveltur
LÖGREGLA Þrír bílar ultu í umdæmi
lögreglunnar á Selfossi milli klukk-
an eitt og tvö í gær. Engin slys urðu
á fólki.
Rétt eftir klukkan eitt valt jeppi
á Biskupstungnabraut á móts við
bæinn Vatnsleysu. Tvær ungar er-
lendar konur sluppu án meiðsla en
bíllinn skemmdist mikið. Skömmu
síðar valt bíll á Suðurlandsvegi í
Kömbunum. Ökumaður, sem var
einn í bílnum, slasaðist ekki. Bíllinn
skemmdist talsvert. Rétt fyrir
klukkan tvö valt jeppi í Svína-
hrauni. Einn fullorðinn og eitt barn
sem í bílnum voru sluppu án meiðs-
la en bíllinn skemmdist nokkuð. ■
Hvammstangi:
Kýldi lög-
reglumann
LÖGREGLA Maður kýldi lögreglu-
mann í gegnum opna rúðu á lög-
reglubíl rétt við félagsheimilið á
Hvammstanga aðfaranótt sunnu-
dags. Maðurinn var handtekinn og
látinn gista fangageymslur lögregl-
unnar það sem eftir lifði nætur.
Ekki er vitað hvað manninum
gekk til en hann kom gangandi að
lögreglubílnum og kýldi lögreglu-
manninn um leið og hann kom að
bílnum. ■
ÍTR-HÚSIÐ VIÐ FRÍKIRKJUVEG 11
ÍTR-húsið er eitt þeirra húsa sem borgin
skoðar með hugsanlega sölu í huga. Ekki
eru áform um að garðurinn færi með
húsinu yrði það selt.
Borgaryfirvöld:
Íhuga að
selja eignir
REYKJAVÍK „Við erum að skoða
nokkrar fasteignir borgarinnar til
þess að losa fé,“ segir Þórólfur
Árnason, borgarstjóri í Reykja-
vík, aðspurður hvort til standi að
selja hús borgarinnar við Frí-
kirkjuveg 11.
Þórólfur segir ÍTR-húsið við
Fríkirkjuveg, Fríkirkjuveg 3 sem
hýsir Innkaupastofnun Reykja-
víkurborgar, Rauðakrosshúsið
sem er neyðarathvarf fyrir börn
og unglinga við Tjarnargötu 35 og
hlut borgarinnar í Heilsuverndar-
stöðinni við Barónsstíg öll hafa
verið skoðuð með hugsanlega sölu
í huga en engin ákvörðun hafi ver-
ið tekin. Hann segir að engin
formleg tilboð í húsin hafi borist.
Í fréttum Stöðvar 2 var sagt að
Björgúlfur Thor Björgúlfsson
hefði áhuga á að kaupa húsið við
Fríkirkjuveg 11. Þórólfur segir
það vera hið besta mál ef eignun-
um sé sýndur áhugi. Ekki séu
áform um að selja allan garðinn
sem fylgir húsinu, hugsanlega
yrði afmörkuð lóð fyrir framan
húsið yrði það selt. Hann segir
skipulagsyfirvöld vinna í að skoða
lóðarmálin við öll húsin sem áður
voru nefnd. ■
Atkvæðagreiðsla SGS og Flóabandalagsins vegna nýrra kjarasamninga:
Dræm þátttaka
KOSNINGAR „Ég vil ekki hugsa þá
hugsun til enda ef þessum
samningum verður hafnað af
fólkinu okkar,“ segir Halldór
Björnsson, formaður Starfs-
greinasambandsins, en um
helgina stóð yfir atkvæða-
greiðsla innan aðildarfélaga
vegna kjarasamninga sam-
bandsins við Samtök atvinnu-
lífsins. Atkvæðagreiðsla fór
fram hjá hverju aðildarfélagi
fyrir sig og var víða lokið en
niðurstöðu er að vænta seinni-
partinn í dag. Sami háttur er
hafður á hjá Flóabandalaginu.
„Það er búið að kjósa á flest-
um stöðum og kjörsókn verið
bærileg. Ég er hæfilega bjart-
sýnn á að fólkið samþykki
þessa samninga enda er þeir
góðir að mínu viti og ég sé ekki
að okkur verði frekar ágengt
með hörðum aðgerðum. Það er
mitt mat að með þessum samn-
ingum náum við eins langt og
hægt var að fara.“
Kristján Gunnarsson, for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur, sem er aðili
að Flóabandalaginu, segist von-
svikinn yfir lítilli þátttöku síns
fólks. „Ætli fólk sé ekki
almennt ánægt með þann samn-
ing sem við náðum og það út-
skýri dræma þáttöku í kosning-
unni. Mér heyrist það vera
raunin.“ ■
HALLDÓR BJÖRNSSON
Bjartsýnn á að samningar Starfsgreinasam-
bandsins verði samþykktir af félagsfólki.
ELÍAS VIÐ RÚGBRAUÐSGERÐINA
Sem bætur fékk hann allt innbú fundarsala ríkisins gefins þegar ríkið hætti starfsemi sinni
í Borgartúninu.
„Það varð
því úr að
þegar starf-
seminni var
hætt þá fékk
ég að eiga
það sem eftir
var.
BANDARÍKIN Þremur kössum með
leynilegum gögnum bandarísku
alríkislögrelunnar um John
Kerry, forsetaframbjóðenda
Demókrataflokksins, hefur verið
stolið af heimili sagnfræðings í
Kaliforníu.
Gerald Nicosia, sem rannsakað
hefur andóf Kerrys gegn Víetnam-
stríðinu, tilkynnti þjófnaðinn til
lögreglu á föstudaginn. Sam-
kvæmt frétt á vef CNN fann lög-
regla engin merki þess að þjófarn-
ir hefðu brotist inn á heimili sagn-
fræðingsins. Nicosia telur líklegra
að þjófnaðurinn sé af pólitískum
toga en að um handahófskennda
gripdeild hafi verið að ræða.
Í skjölunum kemur fram að
bandaríska alríkislögreglan njósn-
aði um Kerry þegar hann var í for-
svari fyrir hóp fyrrum hermanna úr
Víetnamstríðinu sem mynduðu
samtök gegn stríðsrekstrinum þeg-
ar heim var komið.
Njósnirnar áttu sér stað þegar
Richard Nixon var forseti og hinn
umdeildi J. Edgar Hoover var yfir-
maður alríkislögreglunnar. Í skjöl-
unum segir að Kerry hafi verið í
íhaldssamari armi stríðsmótmæl-
enda og viljað að mótmæli væru
friðsamleg en leiddu ekki til hand-
töku þátttakenda. ■
Njósnað var um John Kerry í stjórnartíð Richards Nixon:
Gögnum um Kerry stolið
JOHN KERRY
Í skjölunum kemur fram að bandaríska
alríkislögreglan njósnaði um Kerry.
DRENGIR Á KAFI Í TJÖRN Tveir sjö
ára gamlir norskir drengir eru enn
í lífshættu eftir að þeir fundust á
kafi í ísilagðri tjörn í bænum Våler
í Noregi í gær. Piltarnir voru í
gönguferð með foreldrum sínum
þegar þeir urðu viðskila við þau.
Foreldrarnir leituðu þeirra í
nokkra stund áður en björgunar-
sveitir voru kallaðar til. Kafarar
fundu drengina meðvitundarlausa
ofan í tjörn en þeir voru fluttir
þungt haldnir á háskólasjúkrahúsið
í Ullevål í Osló.