Fréttablaðið - 29.03.2004, Side 31
31MÁNUDAGUR 29. mars 2004
• Glæsilegt steikarhlaðborð
• Veislustjóri: Sigurður Tómasson
• Ræðumaður kvöldsins: Jón Ólafsson
• Reynistaðabræður skemmta
• Félagarnir úr Ný dönsk, Björn Jörundur
og Jón Ólafsson stíga á stokk
• Happdrætti
• Málverkauppboð
Miðasala er hafin í félagsheimili Þróttar,
Tóbaksbúðinni Björk Bankastræti og
hjá leikmönnum meistaraflokks karla
í knattspyrnu.
Frábært tækifæri til að stilla saman gamla
og nýja strengi fyrir komandi átök.
föstudaginn 2. apríl í félagsheimili Þróttar
Húsið opnar 19:30, borðhald hefst 20:30
ÞRÓTTAR
HERRAKVÖLD
Miðaverð 3.500 kr.
FÓTBOLTI Celtic náði nítján stiga
forskoti í skosku úrvalsdeildinni
með 2-1 sigri á Rangers á Ibrox í
gær. Þetta var í þriðji sigur Celtic
á Rangers í deildarleik í vetur en
þeir hafa einnig slegið erkiféndur
sína út úr bikarkeppninni.
Svíinn Henrik Larsson skoraði
fyrra mark Celtic með skalla á 20.
mínútu eftir sendingu frá Alan
Thompson. Thomson, sem var val-
inn í enska landsliðið í vikunni,
bætti öðru marki við á sjöundu
mínútu seinni hálfleiks. Thomp-
son nýtt sér hik í vörn Rangers og
skoraði í annarri tilraun framhjá
Stefan Klos. Varamaðurinn
Steven Thompson skoraði mark
Rangers átta mínútum fyrir leiks-
lok.Thompson skallaði boltann í
mark Celtic eftir sendingu frá
varamanninum Chris Burke – smá
hughreysting fyrir Rangers en
skipti engu um lokastöðuna.
Celtic hefur 86 stig eftir 30
leiki. Félagið hefur sigrað í 28
leikjum og gert tvö jafntefli og
stefnir að því að verða fyrsta fé-
lagið í sögu úrvalsdeildarinnar
sem kemst taplaust í gegnum heilt
keppnistímabil. ■
Celtic vann í gær Rangers í fjórða sinn á þessu tímabili í skoska boltanum:
Nítján stiga forysta Celtic
HENRIK LARSSON
Skoraði fyrra mark Celtic í 2-1 sigrinum á
Rangers.
FÓTBOLTI Milan heldur níu stiga
forystu í ítölsku A-deildinni þrátt
fyrir jafntefli við Chievo í gær.
Giuseppe Sculli og Simone Perr-
otta skoruðu mörk Chievo í fyrri
hálfleik en Andrea Pirlo minnkaði
muninn í 2-1 þegar tíu mínútur
voru til leiksloka. Andriy
Shevchenko bjargaði andliti
Mílanómanna með jöfnunarmarki
á lokamínútunni.
Roma tapaði 2-1 fyrir Bologna
á heimavelli. Fabio Pecchia skor-
aði fyrra mark Bologna um miðj-
an fyrri hálfleik en Antonio
Cassano jafnaði fyrir Rómverja
þegar tíu mínútur voru til leik-
hlés. Albanski landsliðsmaðurinn
Igli Tare tryggði Bologna sann-
gjarnan sigur þrettán mínútum
fyrir leikslok.
Juventus vann Modena 3-1 og
hafði annað sætið af Rómverjum.
Frakkinn David Trezeguet skoraði
tvö mörk og Enzo Maresca eitt en
Massimo Marazzina skoraði mark
Modena.
Roberto Baggio skoraði tvisvar
þegar Brescia vann Ancona 5-2.
Stefano Mauri, Giuseppe Colucci
og Andrea Caracciolo skoruðu hin
mörk Brescia en Milan Rapaic og
Giampiero Maini settu mörk
Ancona. Brescia er í ellefta sæti
en Ancona er langneðst með að-
eins sjö stig úr 27 leikjum.
Parma vann í fyrsta sinn í
fimm vikur. Parma vann Empoli
4-0 með mörkum Alberto Gilar-
dino (2), Simone Barone og Mark
Bresciano. Sebastien Frey í marki
Parma varði vítaspyrnu Antonio
Di Natale þegar staðan var enn
markalaus. ■
Shevchenko bjargaði Milan
Milan gerði jafntefli við Chievo en Roma tapaði og missti annað sætið.
IGLI TARE
Albaninn Igli Tare (til vinstri) skoraði sigur-
mark Bologna gegn Roma í gær.