Fréttablaðið - 03.04.2004, Qupperneq 48
Mende Nazer hefur veriðsæmd Index-verðlaun-
unum fyrir bók sína Ambáttina
sem kom út á íslensku fyrir
síðustu jól hjá JPV. Mende kom
í heimsókn til Íslands í nóvem-
ber í tilefni af útgáfunni og hélt
meðal annars fyrirlestur í Iðnó
og átti fund með íslenskum
alþingiskonum. Áður hafði
Mende hlotið Spænsku mann-
réttindaverðlaunin fyrir bók
sína.
Mende er ung Núbastúlka
frá Súdan sem lenti í höndum
arabískra mannræningja að-
eins 13 ára gömul og var hneppt
í áralangan þrældóm. Saga
hennar átti sér ekki stað fyrir
tvö hundruð árum – heldur
núna á 21. öldinni. Mende var
fyrst haldið sem þræl hjá fjöl-
skyldu í höfuðborg Súdan,
Khartoum, en var síðar send til
fjölskyldu í London sem hún
þjónaði sem ambátt í tvö ár
áður en henni tókst að komast
undan á flótta. Mende lenti þá í
baráttu við breska ríkið um að
fá landvistarleyfi en það mál
vakti gífurlega athygli og mikla
úlfúð í breskum fjölmiðlum og
mannréttindasamtök víða um
heim komu að máli hennar.
Index-verðlaunin eru veitt af
samtökunum Index on Cencors-
hip sem stofnuð voru 1972 og
berjast einkum fyrir tjáningar-
frelsi um allan heim. ■
36 3. apríl 2004 LAUGARDAGUR
Dan Brown, Paul Auster,Niccolò Ammaniti, Eiríkur
Guðmundsson og Oddný Eir Æv-
arsdóttir eru meðal þeirra höf-
unda sem taka þátt í Vorbókaflóði
Bjarts sem nú er að hefjast, annað
árið í röð. Alls koma út sjö bækur
í ódýrum kiljum en eitt af mark-
miðum útgáfunnar er að hvetja
fólk til að gefa sjálfu sér og öðr-
um bókagjöf á öllum tímum árs-
ins. Samhliða stendur Bjartur fyr-
ir vikulegri bókmenntadagskrá á
kaffihúsinu Súfistanum, Lauga-
vegi 18, þar sem verkin og höf-
undar þeirra verða til umræðu.
Í ritröðinni Svörtu línunni
kemur bók Eiríks Guðmundsson-
ar útvarpsmanns, 39 þrep á leið til
glötunar. Hún er sögð vera gagn-
rýnin og skáldleg úttekt á íslensk-
um samtímaveruleika; úttekt sem
skýrir vonandi hvers vegna sögu-
hetjan dúsir í fangaklefa í Mexíkó
í stað þess að njóta hamingjunnar
í Perlunni og Smáranum.
„Þetta er bréfaskáldsaga, nýtt
Bréf til Láru, bara betra,“ segir
Eiríkur. „Þarna er fjallað um ís-
lenskan samtíma og síðustu daga
ákveðinnar valdastéttar á Íslandi.
Endalokin eru yfirvofandi.“ Hann
segir að verkið sé mitt á milli þess
að vera pistlasafn og skáldsaga.
„Það er bundið saman af rödd
manns sem talar til stúlku sem
hann saknar og er í mikilli fjar-
lægð. Þessi rödd hefur gefist upp
á íslenskum samtíma, valdamönn-
um og gjörðum þeirra.“ Er þetta
kannski rödd Eiríks sjálfs? „Þetta
er allavega rödd sem syngur í
hausnum á mér og tjáir sig á 150
blaðsíðum,“ svarar
hann. Sumir rithöf-
undar segjast
skrifa bækurnar
sem þeir vilji sjálf-
ir lesa. Eiríkur við-
urkennir að það
eigi við í þessu til-
felli: „Maður sýnir
hroka og segist
vera leiður á öllu
sem verið er að
skrifa og þykist
geta gert betur. Svo
kemur árangurinn
bara í ljós.“
Önnur bók í
sömu ritröð er eftir
Oddnýju Eir Æv-
arsdóttur, sem bú-
sett er í París. Bók
hennar heitir Opn-
un kryppunnar og
er sambland af
sjálfsævisögu og heimspekirit-
gerð og varpar meðal margs ann-
ars ljósi á líf og martraðir ís-
lensks námsmanns í útlöndum.
Syndirnar sjö og ósýnilegi
maðurinn
Auk bóka Eiríks og Oddnýjar
eru komnar út í Svörtu línunni tvær
þýddar bækur, Mynd af ósýnilegum
manni eftir bandaríska rithöfund-
inn Paul Auster og Syndirnar sjö
eftir finnska guðfræðinginn Jaakko
Heinimäki. Fyrrnefnda bókin er
rómuð sjálfsævisöguleg frásögn
sem fjallar um dauða föður Austers
og dularfullt morðmál sem sett hef-
ur mark sitt á fjölskyldu hans. Al-
þýðlegt fræðirit Heinimäkis um
dauðasyndirnar átti að koma út í
mars en var dreift í verslanir strax
í desember í tilefni af þeirri um-
ræðu um græðgi og hroka sem þá
var fyrirferðarmikil í fjölmiðlum.
Bókin seldist upp á skömmum tíma
en er væntanleg í nýrri útgáfu rétt
fyrir páska.
Breskar og ítalskar
samtímabókmenntir
Bjartur gefur árlega út fjölda
bóka í neon-flokknum, sem helg-
aður er nýjum og nýlegum
þýddum skáldverkum sem vakið
hafa athygli erlendis. Tvær
neonbækur eru í vorbókaflóð-
inu, skáldsögurnar Fimm mílur
frá Ytri-Von eftir Nicolu Barker
og Ég er ekki hræddur eftir
Niccolò Ammaniti. Barker er í
hópi þeirra ungu bresku rithöf-
unda sem bundnar eru mestar
vonir við nú um stundir en verk
hennar fjallar með groddaraleg-
um hætti um unga risavaxna
stúlku á gelgjuskeiði. Skáldsaga
Ammanitis, sem hefur verið efst
á metsölulistum á Ítalíu undan-
farin þrjú ár, segir hins vegar
frá hópi barna í þorpi á Suður-
Ítalíu sem finna dreng lokaðan
ofan í holu. Vonir standa til að
Ammaniti heimsæki Ísland í til-
efni af Viku bókarinnar.
Da Vinci lykillinn í kilju
Da Vinci lykillinn er nú
komin út í kilju. Bókin hefur
verið 53 vikur á metsölulista
New York Times og er þessar
vikur ofarlega á breska met-
sölulistsanum. Þessi gríðarlega
spennandi og skemmtilega saga
lýsir rannsókn bandaríska
táknfræðingsins Roberts Lang-
don og franska dulmálssér-
fræðingsins Sophie Neveu á
dauða safnstjóra Louvre-
safnsins í París. Saman upp-
götva þau röð vísbendinga sem
leiða lesandann meðal annars á
slóð meistaraverka Leonardos
da Vinci, leynifélagsins
Bræðralags Síons og kaþólsku
kirkjunnar.
kolla@frettabladid.is
■ Bækur
Metsölulisti Bókabúða
Máls og menningar,
Eymundssonar og
Pennans
ALLAR BÆKUR
1. Skyndibitar fyrir sálina Barbara
Berger
2. Uppeldisbókin
Susan Mortweet / Ed-
ward R. Christophersen
3. Sálmabók Ýmsir höf-
undar
4. Da Vinci lykillinn
Dan Brown
5. Íslensk orðabók I-II
Edda útgáfa
6. Lífshættir fugla David Attenborough
7. Ensk-íslensk skólaorðabók Mál og
menning
8. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson
9. Passíusálmar Hallgrímur Pétursson
10. Villibirta Liza Marklund
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR
BÆKUR
1. Sálmabók Ýmsir
höfundar
2. Passíusálmar
Hallgrímur Pétursson
3. Perlur í skáldskap
Laxness Halldór Lax-
ness
4. Íslandsklukkan
Halldór Laxness
5. Alkemistinn Paulo Coelho
6. Glæpur og refsing Fjodor Dostojevski
7. Plateró og ég Juan Ramón Jiménez
8. Í leit að glötuðum tíma
Macel Proust
9. Ljóðasafn Tómasar Guðmundsson-
ar Tómas Guðmundsson
10. Steinn Steinarr - Ljóðasafn
Steinn Steinarr
SKÁLDVERK - KILJUR
1. Da Vinci lykillin Dan Brown
2. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson
3. Villibirta Liza
Marklund
4. Svo fögur bein
Alice Seabold
5. Mýrin Arnaldur
Indriðason
6. Vetrardrottningin
Boris Akúnin
7. Njála Ritstj. Jón
Böðvarsson
8. Þetta er allt að
koma Hallgrímur Helgason
9. Meistarinn og Margaríta Mikhail
Búlgakov
10. Dauðarósir Arnaldur Indriðason
Listinn er gerður út frá sölu
dagana 24.03.- 30.03. 2004 í
Bókabúðum Máls og menningar,
Eymundssonar og Pennans.
BÓK VIKUNNAR
The Kite Runner eftir Khaled Hosseini.
Hosseini fæddist í Afganistan
en býr í Bandaríkjunum og
starfar þar sem læknir. Þessi
fyrsta skáldsaga hans hefur vak-
ið gríðarlega athygli og Sam
Mendes hefur í hyggju að kvik-
mynda söguna. Hér segir frá
tveimur drengjum sem alast upp
í Afganistan við ólík kjör og
verða vitni að ógnvekjandi þjóð-
félagsumbrotum. Líf þeirra og ör-
lög samtvinnast í sorglegri en
um leið fallegri sögu þar sem
fjallað er um vináttu, tryggð, lygi
og fórnir.
MENDE NAZER
Hún hefur verið sæmd Index-verðlaunun-
um fyrir bók sína Ambáttina.
Mende Nazer hlýtur Index-
mannréttindaverðlaunin
EIRÍKUR GUÐMUNDSSON
„Maður sýnir hroka og segist vera leiður á öllu sem verið er að skrifa og þykist geta gert betur. Svo kemur árangurinn bara í ljós.“
Meðal bóka í vorbókaflóði Bjarts er bréfaskáldsaga eftir Eirík Guðmundson sem er sögð gagnrýnin og skáldleg
úttekt á íslenskum samtímaveruleika.
Nýtt bréf til Láru
■
Dan Brown, Paul
Auster, Niccolò
Ammaniti, Eirík-
ur Guðmunds-
son og Oddný
Eir Ævarsdóttir
eru meðal þeirra
höfunda sem
taka þátt í Vor-
bókaflóði Bjarts
sem nú er að
hefjast, annað
árið í röð. Alls
koma út sjö
bækur í ódýrum
kiljum en eitt af
markmiðum út-
gáfunnar er að
hvetja fólk til að
gefa sjálfu sér
og öðrum bóka-
gjöf á öllum
tímum ársins.