Fréttablaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 41
Óðurinn til
gleðinnar
TÓNLEIKAR Sjálf níunda sinfónía Beet-
hovens verður flutt í Háskólabíói í
kvöld og annað kvöld. Flytjendur eru
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Óp-
erukórinn í Reykjavík og einsöngvar-
arnir Elín Ósk Óskarsdóttir, Alina
Dubik, Kolbeinn Ketilsson og Kristinn
Sigmundsson.
Níunda sinfónían er án efa eitt af
mestu
þ r e k -
virkjum
tónlistar-
sögunnar.
Talið er að
B e e t h o v e n
hafi í mörg ár,
jafnvel í áratugi,
ætlað að semja tón-
list við ljóð Schillers,
Óðinn til gleðinnar, eða
An die Freude.
Vitað er að um 200 hug-
myndir að lokastefinu kraft-
mikla, sem nú er þjóðsöngur Evr-
ópusambandsins, fóru í ruslatunnuna
áður en Beethoven varð sáttur. ■
DANSSÝNING Í kvöld er komið að því. Spænska danshetjan Joaquín
Cortés ætlar að sýna fimi sína í Laugardalshöllinni í kvöld.
Margir hafa beðið þessa viðburðar með
óþreyju, því Cortés er víðfrægur fyrir
dansfimi sína. Rætur hans liggja í
flamencodansinum spænska, en
aðeins fimmtán ára gamall gekk
hann til liðs við spænska þjóð-
arballettinn sem atvinnu-
dansari.
Hann hefur leikið í
bíómyndum eftir Pedro
Almodóvar og Carlos
Saura, þar sem dans-
inn er áberandi.
Undanfarin miss-
eri hefur hann síð-
an ferðast um heiminn með misjafn-
lega risavaxnar danssýningar, sem
trekkja að áhorfendur í massavís.
Og nú er hann sem sagt kominn til
Íslands. ■
FIMMTUDAGUR 29. apríl 2004
■ TÓNLEIKAR
29
+ 333 kr. (flugvallarskattur og tryggingagjald)
aðra leiðina
Nú getur fjölskyldan flogið saman fyrir
ódýrara fargjald á manninn en nokkru sinni fyrr.
Tilvalið til að bregða sér af bæ, heimsækja afa og ömmu
eða gera eitthvað annað skemmtilegt.
Þetta einstaka tilboðsfargjald
• gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
• er fyrir börn að 12 ára aldri í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
• gildir í maí
• býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu www.flugfelag.is
Króna
fyrir börnin
í maí!
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A
S T
O
F A
N
E H
F .
/ S
I A
. I
S
-
F L
U
2 4
4 9
7
0 4
/ 2
0 0
4
NÝTT: Miðasa la á net inu:
www. borgar le ikhus. is
Miðasalan, sími 568 8000
CHICAGO
e. J.Kander, F.Ebb og B.Fosse
í kvöld kl 20
Fö 30/4 kl 20
Lau 1/5 kl 15 - ATH: 1. maí tilboð!!!
Lau 1/5 kl 20
Fö 7/5 kl 20 - UPPSELT
Lau 8/5 kl 20 - UPPSELT
Su 9/5 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 14/5 kl 20 - UPPSELT
Lau 15/5 kl 20
Su 23/5 kl 20
Fö 28/5 kl 20
Lau 29/5 kl 20
Fö 4/6 kl 20
Lau 5/6 kl 20
Ósóttar pantanir seldar daglega
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 2/5 kl 14
Su 9/5 kl 14
Su 16/5 kl 14
Su 23/5 kl 14
Síðustu sýningar
NÝJA SVIÐ OG LITLA SVIÐ
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson
Frumsýning fi 6/5 kl 20 - UPPSELT
Fi 13/5 kl 20
Su 16/5 kl 20
SEKT ER KENND
e. Þorvald Þorsteinsson
Su 2/5 kl 20
Fáar sýningar eftir
SPORVAGNINN GIRND
e. Tennessee Williams
Fö 30/4 kl 20
SÍÐASTA AUKASÝNING
Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning
hefst
GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU.
Tónlistin hefur græðandi áhrifog hún hefur alla tíð hjálpað
fólki til að ná sambandi við eitt-
hvað sem býr djúpt í sálinni,“ seg-
ir Kristján Kristjánsson tónlistar-
maður.
„Ljós af ljósi“ nefnir hann tón-
leikaferð sína um kirkjur landsins
sem hefst í kvöld í Dómkirkjunni
í Reykjavík. Ýmist verður um
hreina tónleika að ræða, eða þeir
verða tengdir helgihaldi í kirkjum
á hinum ýmsu stöðum.
„Ég ætla að syngja nokkra
gamla íslenska sálma, eitthvað
eftir Hallgrím Pétursson og Davíð
Stefánsson, en aðallega mín lög
sem passa inn í þetta umhverfi.“
Hann nefnir sem dæmi lög á
borð við Englar himins grétu í
dag, Steiktur engill og When I
Think of Angels - „Allt saman
englalög. Ég ætla að syngja engla-
lögin mín“.
Kristján ætlar líka að fá ver-
aldlega valdhafa á hverjum stað,
borgarstóra eða bæjarstjóra, til
þess að lesa nokkur vers úr Biblí-
unni. Til dæmis um salt jarðar eða
óðinn til kærleikans.
„Þjóðin er í upplausn út af rifr-
ildi og deilum. Við erum eins og
stórfjölskylda sem er alltaf að ríf-
ast, og allar þær deilur stafa af eig-
ingirni,“ segir Kristján, og bætir
því við að kærleikurinn sé það eina
sem dugi gegn þessu þrasi.
„Ég er orðinn svo þreyttur á
þessu endalausa rifrildi, að mig
langar einfaldlega til að fara inn í
kirkju til þess að íhuga þar í ró og
næði og ná sambandi við Guð. Og
mig langar að bjóða öllum að
koma til þess að íhuga með mér
og gleyma stund og stað í smá
tíma.“ ■
JOAQUÍN CORTÉS
Sýnir dansfimi sína í
Laugardalshöllinni.
Hann dansar í kvöld
Orðinn
þreyttur
á þrasinu
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
Tónlistarmaðurinn KK er að leggja upp í tónleikaferð um kirkjur landsins og byrjar í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
KRISTINN SIGMUNDSSON
Syngur Óðinn til gleðinnar með
Sinfóníunni í kvöld.