Fréttablaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 6
6 6. maí 2004 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73,4 0,19%
Sterlingspund 131,83 0,57%
Dönsk króna 12 1,00%
Evra 89,27 1.00%
Gengisvísitala krónu 124,46 0,51%
Kauphöll Íslands
Fjöldi viðskipta 300
Velta 5,101 milljónir
ICEX-15 2,691 0,40%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 447,730
Íslandsbanki hf. 224,779
Össur hf. 192,729
Mesta hækkun
AFL fjárfestingarfélag hf. 4,70%
Fjárfestingarfélagið Atorka hf. 3,90%
Bakkavör Group hf. 1,78%
Mesta lækkun
SÍF hf. -1,57%
Og fjarskipti hf. -0,91%
Íslandsbanki hf. -0,60%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.306,3 -0,1%
Nasdaq* 1.959,1 0,4%
FTSE 4.569,5 0,5%
DAX 4.022,1 0,8%
NK50 1.461,3 0,0%
S&P* 1.122,3 0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
1Hvað heitir körfuboltamaðurinn semvalinn var sá besti í NBA-deildinni?
2Hvað heitir heimasíða ungra fram-sóknarmanna?
3Hvað heitir formaður breska Íhalds-flokksins?
Svörin eru á bls. 22
Hlutafjáraukning Eddu útgáfu:
Mál og menning ræðir aðkomu
VIÐSKIPTI Ekki liggur fyrir hvort
eða hvernig Mál og menning kem-
ur að 400 milljón króna hlutafjár-
aukningu í Eddu útgáfu. Edda hef-
ur átt í rekstrarerfiðleikum og
tapaðir fjármunir frá því að félag-
ið varð til við sameiningu Máls og
menningar og Vöku Helgafells
liggur nálægt hálfum milljarði
króna. Frá því að Ólafsfell, félag í
eigu Björgólfs Guðmundssonar
kom að rekstrinum, hefur verið
unnið að uppstokkun rekstrarins
og telja menn félagið komið í
rekstrarhæft form með nýju
hlutafé.
Þröstur Ólafsson, formaður
stjórnar Máls og menningar segir
framhaldið vera að nýta þann
hálfa mánuð sem gefinn er vegna
aukningarinnar til þess að funda
innan félagsins og með meðeig-
endum í Eddu. Þröstur segir ekki
ljóst hvort Mál og menning komi
með aukið fé. „Það á eftir að koma
til umræðu.“ Hann segir það
verða að koma í ljós hvort fleiri
komi að félaginu. Það ráðist af því
hvort núverandi hluthafar nýti
forkaupsrétt sinn. ■
AÞENA, AP Nokkrum klukkutímum
eftir að þrjár sprengjur sprungu
við lögreglustöð í Aþenu reyndu
grísk stjórnvöld að fullvissa menn
um að atburðurinn hefði engin
áhrif á öryggi áhorfenda og þátt-
takenda á Ólympíuleikunum sem
fara fram í borginni í ágúst.
„Þetta er einangrað atvik sem
hefur engin áhrif á öryggi vegna
Ólympíuleikanna,“ sagði Costas
Caramanlis forsætisráðherra.
Talsmaður stjórnarinnar sagði
engar vísbendingar um að
sprengjuárásin í gær tengdist
Ólympíuleikunum og lögregla
taldi að innlendur hópur stæði á
bak við árásirnar en ekki alþjóð-
leg hryðjuverkasamtök.
Talsverðar skemmdir urðu á
lögreglustöðinni en ábending
barst um sprengjurnar nokkrum
mínútum áður en sú fyrsta sprakk
og því var hægt að rýma bygging-
una. Auk skemmdanna á lögreglu-
stöðinni brotnuðu rúður í nær-
liggjandi fjölbýlishúsi.
Sprengjuárásin vekur þó upp
spurningar um öryggismál í
aðdraganda Ólympíuleikanna.
Öryggisviðbúnaður vegna þeirra
slær öll met í sögu Ólympíuleik-
anna og kostnaður sömuleiðis.
Gert er ráð fyrir að reikningurinn
vegna öryggisviðbúnaðar hljómi
upp á 90 milljarða króna. Meðal
þess sem er innifalið í þeim kostn-
aði er myndavélaeftirlitskerfi
sem nær til allrar borgarinnar og
eftirlitsflug yfir borginni meðan á
Ólympíuleikunum stendur. Enn á
eftir að ljúka uppsetningu mynda-
vélakerfisins.
Tafir á byggingu íþróttaleik-
vanga hafa einnig valdið sumum
áhyggjum um að flýtirinn við að
ljúka þeim kunni að verða til þess
að draga úr öryggi. Eru það eink-
um bandarískir embættismenn og
stjórnmálamenn sem hafa lýst
slíkum áhyggjum. „Við verðum
mikið vör við áhyggjur vegna
undirbúningsins og spurninga um
hvort við eigum að taka þátt í
þeim,“ sagði öldungadeildarþing-
maðurinn Gordon Smith.
Ástralir senda sína sveit til
þátttöku en hafa tjáð íþróttamönn-
um sínum að vilji þeir hætta við að
fara sé þeim frjálst að gera það.
„Hver sú sprengja sem springur í
Aþenu veldur áhyggjum,“ sagði
Bob Elphinston, formaður Ólymp-
íunefndar Ástralíu. ■
AUKINN HAGNAÐUR STATOIL
Norska olíufélagið Statoil jók
hagnað sinn verulega á fyrsta
ársfjórðungi frá sama tíma á síð-
asta ári. Hagnaður félagsins nam
um 50 milljörðum íslenskra
króna. Ástæða aukins hagnaðar
er meiri framleiðsla og hærra
verð á markaði.
KIRKJUR VERÐI EKKI MOSKUR
Carl I. Hagen, formaður hins
þjóðernissinnaða norska Fram-
faraflokks, setti sig í gær upp á
móti því að aflögðum kirkjum
yrði breytt í moskur fyrir músli-
ma. Kirkjuráð norsku þjóðkirkj-
unnar lögðu í síðasta mánuði til
að aflagðar kirkjur yrðu teknar
til annarra nota, meðal annars
sem moskur.
Hagnaður Kaldbaks:
Óvissa vegna
Norðurljósa
UPPGJÖR Hagnaður fjárfestingar-
félagsins Kaldbaks nam 1,4 mill-
jörðum króna eftir skatta fyrstu
þrjá mánuði ársins. Innleystur
hagnaður nam rúmum 700 millj-
ónum króna. Kaldbakur seldi ríf-
lega fimm prósenta eignarhlut í
Íslandsbanka á tímabilinu. Í til-
kynningu félagsins kemur fram
að fjölmiðlafrumvarpið sem nú
liggur fyrir Alþingi muni hafa
neikvæð áhrif á fjárfestingu fé-
lagsins í Norðurljósum verði það
að lögum. Kaldbakur keypti átta
prósenta hlut í Norðurljósum. ■
EKKERT ÁKVEÐIÐ
Þröstur Ólafsson, stjórnarformaður
Máls og menningar, segir næsta hálfan
mánuð notaðan til þess að funda og
ákveða um aðkomu Máls og menningar
að hlutafjáraukningu Eddu útgáfu.
■ Norðurlönd
TEKIÐ TIL EFTIR SPRENGINGUNA
Henni virðist ekki mjög brugðið konunni sem gengur framhjá rannsóknarmönnum lögreglunnar í Aþenu á sprengjustað.
Veistusvarið?
Óttast um öryggi á
Ólympíuleikunum
Sprengjuárás á lögreglustöð í Aþenu vekur upp spurningar um öryggi á ólympíuleikunum
sem fram fara í borginni í ágúst. Öryggiskostnaður við leikana er
hærri en nokkru sinni fyrr, um 90 milljarðar.