Fréttablaðið - 06.05.2004, Page 44
34 6. maí 2004 FIMMTUDAGUR
MEISTARINN SITUR FYRIR SVÖRUM
Úkraínski hnefaleikakappinn Vitaly
Klitschko, sem varð á dögunum heims-
meistari, sést hér svara spurningum fjöl-
miðla í heimaborg sinni Kíev í Úkraínu.
Box
Sacramento Kings vann fyrsta leikinn gegn Minnesota Timberwolves:
Bibby bjargaði málunum
KÖRFUBOLTI Kevin Garnett, sem
var valinn besti leikmaður NBA-
deildarinnar í fyrradag, var
snögglega minntur á að menn fá
lítið fyrir einstaklingsverðlaun
þegar Sacramento Kings kom í
heimsókn í fyrsta leik liðanna í
undanúrslitum vesturdeildar
NBA-deildarinnar í fyrrinótt.
Sacramento Kings, sem var dri-
fið áfram af stórleik Mike
Bibby, fór með sigur af hólmi,
104-98, og hefur tekið frum-
kvæðið í einvígi liðanna.
Mikil athöfn var fyrir leik-
inn þar sem Garnett var hylltur
af öllum viðstöddum en hann
var ekki tekinn neinum vett-
lingatökum í leiknum sjálfum.
„Við klöppuðum fyrir honum
fyrir leikinn en það var annað
mál um leið og flautað var á,“
sagði Vlade Divac, miðherji
Sacramento, eftir leikinn. Leik-
menn Sacramento tvöfölduðu
allan tímann á Garnett, sem
tapaði boltanum sex sinnum og
hitti aðeins úr 6 af 21 skoti sínu
í leiknum. „Ég fann mig engan
veginn í leiknum, þeir dekkuðu
mig stíft en núna þurfum við að
finna svar við þessu,“ sagði
Garnett.
Rick Adelman, þjálfari Sacra-
mento Kings, var ekki í vafa um
að frammistaða Mike Bibby hefði
verið lykillinn að sigri hans
manna. „Bibby hélt okkur gang-
andi á erfiðum tímum og var lyk-
illinn að sigrinum.“
Bibby skoraði 33 stig, tók 7
fráköst og gaf 7 stoðsendingar í
leiknum, Chris Webber skoraði
15 stig og tók 8 fráköst, Vlade
Divac og Peja Stojakovic skoruðu
14 stig hvor og þeir Doug
Christie og Brad Miller skoruðu
13 stig hvor auk þess sem Miller
tók 10 fráköst.
Sam Cassell var yfirburða-
maður hjá Minnesota með 40 stig,
Trenton Hassell skoraði 17 og
Kevin Garnett skoraði 16 stig og
tók 18 fráköst.
Liðin mætast öðru sinni á
laugardaginn í Target Center í
Minnesota. ■
HANDBOLTI Alfreð Finnsson, sem
stýrði Gróttu/KR í RE/MAX-deild
kvenna í handknattleik í fyrra, var
í gær ráðinn þjálfari kvennaliðs
ÍBV á næsta tímabili. Jafnframt er
ljóst að fyrirliði Gróttu/KR á síð-
asta tímabili, Eva Björk Hlöðvers-
dóttir, sem jafnframt er eiginkona
Alfreðs, mun spila með Eyjaliðinu
á næsta tímabili en hún var þriðji
markahæsti leikmaðurinn í
RE/MAX-deildinni í vetur.
Fyrir skömmu var ljóst að Aðal-
steinn Eyjólfsson, sem stýrt hefur
Vestmannaeyjaskútunni með sóma
á þessu tímabili, mun þjálfa þýska
liðið TuS Weibern á næsta tímabil,
og beið kvennaráð ÍBV, með Hlyn
Sigmarsson fremstan í flokki, ekki
boðanna heldur hófst strax handa
við að finna eftirmann Aðalsteins.
Hlynur sagði í samtali við Frétta-
blaðið í gær að hann teldi Alfreð
mjög góðan kost. „Það er ekki
hlaupið að því að fá góðan þjálfara
út í Eyjar og því erum við mjög
sáttir. Alfreð er ungur og ferskur
og ég hef alltaf haft mikla trú á
ungu fólki. Það fer gott orð af hon-
um og ég er ekki í vafa um að liðið
er í góðum höndum hjá honum. Það
skemmir heldur ekki fyrir að Eva
Björk kemur með honum. Hún er
frábær leikmaður og það er ekki á
hverjum degi sem íslenskur leik-
maður í þessum gæðaflokki kemur
til Eyja,“ sagði Hlynur.
Alfreð sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að það hefði
verið erfitt að hafna tilboði frá
ÍBV. „Þetta er stærsta og besta
félagsliðið á landinu í dag, metnað-
urinn er mikill og gott fyrir ungan
þjálfara eins og mig að fá tækifæri
til að vinna í jafn góðu vinnu-
umhverfi og boðið er upp á í Eyj-
um,“ sagði Alfreð.
Hann sagði aðspurður að það
hefði verið erfið ákvörðun að yfir-
gefa Gróttu/KR en óvissan í kring-
um samstarf félaganna hefði gert
það að verkum að honum var varla
stætt á öðru en að taka tilboði ÍBV.
„Ég á eftir að sakna félagsins en
það er alls konar rugl í gangi varð-
andi samstarfið. Stelpurnar voru
frábærar en ég hef sennilega gott
af því að komast frá félaginu sem
ég hef verið hjá allan minn feril,“
sagði Alfreð. ■
SUND „Nú er allt að fara af stað,“
sagði Steindór Gunnarsson, lands-
liðsþjálfari í sundi, en dagana 10 til
16 maí næstkomandi fer fram í
Madríd Evrópumótið í sundi í 50
metra laug.
Sjö íslenskir sundmenn taka þátt
en það eru þau Anja Ríkey Jakobs-
dóttir, Hjörtur Már Reynisson, Íris
Edda Heimisdóttir, Jakob Jóhann
Sveinsson, Kolbrún Ýr Kristjáns-
dóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir
og Örn Arnarson.
„Fimm þessara sundmanna, auk
Láru Hrundar Bjargardóttur sem
kemst ekki á mótið vegna náms síns
í Bandaríkjunum, hafa tryggt sér
þátttökurétt á Ólympíuleikunum í
sumar og ég tel ekki loku fyrir það
skotið að fleiri bætist í þann hóp.
Allur þessi hópur sem fer nú gæti
verið kominn með farseðla á
Ólympíuleikana eftir mót og von-
andi gerist það,“ sagði Steindór og
bætti við:
„Þetta er svipaður fjöldi þátttak-
enda frá okkur og hefur verið á
undanförnum stórmótum og ég
kalla okkur bara nokkuð góð með
þennan fjölda. Það er mikill spenn-
ingur í keppendum fyrir mótið og
þessir einstaklingar sem eru að
fara hafa verið að synda mjög vel
upp á síðkastið, setja Íslandsmet og
annað í þeim dúr. Meginmarkmiðið
fyrir hvern og einn keppanda sem
fer á mótið er að ná persónulegri
bætingu en sjá svo hvað árangurinn
fleytir viðkomandi langt. Þetta eru
allt það harðsvíraðir afreksmenn
að þau stefna óhikað á toppárangur.
Ég er bjartsýnn á góðan árangur
þótt ég telji okkur ekki setja fram
óraunhæfar kröfur. Það munar svo
miklu fyrir þessa einstaklinga að
koma sér í milliriðla því þá fara þau
að synda aftur eftir hádegi og þá er
líkaminn betur tilbúinn og hugur-
inn að sama skapi líka og þá er jafn-
vel hægt að bæta árangurinn enn
frekar.“
Steindór er bjartsýnn á fram-
haldið: „Það er bjart fram undan og
ástandið í sundheiminum hér heima
er gott og vonandi heldur það
áfram að vera þannig,“ sagði Stein-
dór að lokum. ■
ANNA YAKOVA
Eftirsótt af sterkustu liðum Evrópu.
Eyjamenn gætu misst
lykilmanneskju:
Tvö lið vilja
fá Yakovu
HANDBOLTI Frammistaða Önnu Yak-
ovu með Eyjaliðinu í handboltan-
um í vetur hefur ekki farið fram-
hjá bestu liðum Evrópu. Yakova
hefur átt mjög gott tímabil, svo
gott að hið fræga austurríska lið
Hypo Bank, sem er eitt það
sterkasta í Evrópu, og makedón-
íska liðið Skopje, sem varð Evr-
ópumeistari fyrir tveimur árum,
vilja fá hana í sínar raðir. Hlynur
Sigmarsson, formaður kvennaráðs
ÍBV, sagði í samtali við Fréttablað-
ið í gær að Yakova væri samnings-
bundinn ÍBV næstu þrjú árin og
því væri félaginu það í sjálfsvald
sett hvort það héldi henni í Eyjum
eða ekki. „Við keyptum hana á
þrjár milljónir króna fyrir tveim-
ur árum og munum ekki láta hana
fara frá okkur fyrir minni upp-
hæð,“ sagði Hlynur. ■
Miami Heat komið í
undanúrslit í austrinu:
Lagði
Hornets í
fjórða sinn
KÖRFUBOLTI Miami Heat tryggði
sér sæti í undanúrslitum austur-
deildar NBA-deildarinnar í fyrri-
nótt þegar liðið bar sigurorð af
New Orleans Hornets, 85-77, í sjö-
unda og oddaleik liðanna í átta
liða úrslitum. Miami Heat mætir
Indiana Pacers í undanúrslitum
en Pacers var með besta árangur
allra liða í deildinni á tímabilinu
og sópaði Boston Celtics, 4-0, í
átta liða úrslitunum.
Miami Heat lagði grunninn að
sigrinum í fyrri hálfleik en liðið
leiddi í hálfleik, 41-31. Caron
Butler var atkvæðamestur hjá
Miami með 23 stig og tók 9 frá-
köst, Lamar Odom skoraði 16 stig
og tók 9 fráköst og Brian Grant
skoraði 14 stig og tók 9 fráköst.
Steve Smith skoraði 25 stig fyrir
New Orleans og PJ Brown skoraði
10 stig og tók 9 fráköst. Miklu
munaði fyrir New Orleans að
besti maður liðsins, Baron Davis,
náði sér ekki á strik og skoraði að-
eins fimm stig enda meiddur á
fjölmörgum stöðum. ■
STÓRLEIKUR BIBBYS
Mike Bibby átti frábæran leik fyrir Sacra-
mento gegn Minnesota.
STEINDÓR GUNNARSSON
Landsliðsþjálfari í sundi. Ýmislegt fram
undan.
Sjö Íslendingar fara á
Evrópumótið í sundi í 50
metra laug:
Stefnt á
bætingu
Alfreð tekur við
kvennaliði ÍBV
Tekur eiginkonu sínu, Evu Björk Hlöðversdóttur,
fyrirliða Gróttu/KR, með til Eyja.
HJÓNAKORNIN ALFREÐ FINNSSON
OG EVA BJÖRK HLÖÐVERSDÓTTIR
Voru í herbúðum Gróttu/KR á þessu
tímabili en verða saman í Vestmanna-
eyjum á því næsta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA