Fréttablaðið - 06.05.2004, Síða 52
40 6. maí 2004 FIMMTUDAGUR
FINGURKOSS Í ÁSTRALÍU
Fyrirsætan klæðist flík eftir fatahönnuðinn
Franciz sem er frá Singapúr. Sýningin fór
fram á tískuvikunni í Ástralíu sem nú fer
fram í Sydney.
Pondus eftir Frode Øverli
Söngkona Bangles
skrifar handrit
KVIKMYNDIR Susanna Hoffs Roach,
fyrrverandi söngkona The Bangles,
hefur ásamt tveimur félögum sín-
um skrifað kvikmyndahandrit sem
kallast Exorcism for Dummies.
Hefur handritið þegar verið selt
Revolution-kvikmyndaframleiðand-
anum.
Handritið, sem er á gamansöm-
um nótum, fjallar um náunga sem
þykist vera særingamaður en kemst
síðan að því skelfingu lostinn að
hann er það í raun og veru.
Þess má geta að Susanna Hoffs
er gift Jay Roach, leikstjóra Austin
Powers-myndanna þriggja. Hann er
um þessar mundir að leikstýra
Meet the Fockers, framhaldi Meet
the Parents, þar sem hann sat
einnig í leikstjórastólnum. Ekki er
vitað hvort Roach muni leikstýra
myndinni sem gerð verður eftir
handriti eiginkonunnar.
Lítið hefur heyrst til The Bang-
les upp á síðkastið en sveitin sló í
gegn á níunda áratugnum með lög-
um á borð við Walk Like an Egypti-
an og Eternal Flame. ■
Einvalalið í nýrri
teiknimynd
KVIKMYNDIR Hollywood-leikararnir
Keanu Reeves, Winona Ryder, Ro-
bert Downey Jr. og Woody Harrel-
son munu fara með aðalhlutverk-
in í nýrri teiknimynd í vísinda-
skáldsögustíl sem kallast A
Scanner Darkly.
Leikararnir munu leika í
myndinni eins og um hefðbundna
Hollywood-mynd sé að ræða en
eftir það mun leikstjórinn Rich-
ard Linklater teikna yfir allt sam-
an. A Scanner Darkly gerist í
framtíðinni og fjallar um eitur-
lyfjalöggu sem ánetjast lyfjum og
þjáist í kjölfarið af geðklofa. ■
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Vinsælustulögin
TOPP 20 - X-IÐ 977 - VIKA 19
Cold Hard Bitch
Jet
Check It Out
Beastie Boys
Float On
Modest Mouse
Slither
Velvet Revolver
Matinée
Franz Ferdinand
Talk Show Host On a Mute
Incubus
There Is No Home For You
The White Stripes
Fit But You Know It
The Streets
Human Calendar
Moody Company
Change the World
P.O.D.
Angel In Disguise
Mínus
Love Is Only a Feeling
The Darkness
Rising
Dozer
Kiss of Life
Supergrass
The Seed
The Roots
Orpheus
Ash
Bigmouth Strikes Again
Placebo
Winning Days
The Vines
Lying From You
Linkin Park
Sing For Absolution
Muse
BEASTIE
BOYS
Nýja lagið frá
Beastie Boys
fer rakleiðis í
annað sæti
listans.
* - Listinn er valinn af umsjónamönnum stöðvarinnar.
Stjörnustríð í sjónvarpið
SJÓNVARP George Lucas, skapari
Star Wars, hefur gefið grænt ljós
á framleiðslu sjónvarpsþátta sem
gerast í sama heimi og myndirnar.
Einhverjar af þekktustu persón-
um myndanna munu koma við
sögu í þáttunum.
Ekkert hefur verið gefið upp
um það hvenær í tímalínu kvik-
myndanna þættirnir gerast en lík-
legast þykir að tímabilið á milli
nýja og gamla þríleiksins verði
fyrir valinu. Það þýðir að Svart-
höfði, Loðinn, C-3PO, R2-D2,
Jabba, Keisarinn, Obi-Wan Ken-
obi og Tarkin ættu allir að koma
við sögu. Jafnvel fáum við að
fylgjast með ævintýrum Loga
Geimgengils og Lilju prinsessu á
yngri árum.
Einnig hefur verið tekin endan-
leg ákvörðun um að gera ekki fleiri
kvikmyndir, en fyrir 20 árum síðan
sagðist Lucas vera að íhuga að gera
einhvern tímann kafla 7-9. ■
SVARTHÖFÐI
Um 15 ár líða á milli kafla 3 og kafla 4 í Star Wars-kvikmyndaseríunni. Líklegt er að sjón-
varpsþættirnir gerist á því tímabili. Þá verður Svarthöfði auðvitað í aðalhlutverki.
THE BANGLES
Susanna Hoffs Roach, önnur frá vinstri, hefur snúið sér að kvikmyndum eftir farsælan
tónlistarferil.
KEANU REEVES
Keanu Reeves á flugi í The Matrix. Næsta verkefni hans er teiknimyndin A Scanner Darkly.
Tíska
Annað hvort er slökkt
á símanum eða hann
utan þjónustusvæðis!
Vinsamlega reynið
aftur síðar!
Svona hefur þetta
verið í hvert skipti
síðan ég fékk núm-
erið hennar!
Skugga-
legt!