Fréttablaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2004 27
SÍMI: 551 9000 www.regnboginn.is
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12
SECRET WINDOW kl. 5.50, 8 og 10.10
KILL BILL kl. 10 B.i. 16
ELLA Í ÁLÖGUM kl. 6 og 8 PÉTUR PAN kl. 6
SPARTAN kl. 8 og 10.20
BUTTERFLY EFF. kl. 5.30, 8 og 10.20DREKAFJÖLL kl. 6 M. ÍSL. TALISÝND kl. 6, 8 og 10 B.i. 16
HHH
DV
HHH
Tvíhöfði
Vinsælasta
myndin á
Íslandi
Brad Pitt, Orlando Bloom
og Eric Bana i magnaðri
stórmynd undir leikstjórn
Wolfgang Petersen.
STÓRVIÐBURÐUR
ársins er kominn!
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni
í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést
á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í
hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á
hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
SÝND kl. 5.30, 7, 8.30, 10 og 11.30 SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
S.V. Mbl.
HHH
S.V. Mbl.
17.000 manns á 6 dögum!!!
17.000 manns á 6 dögum!!!
n
n
n
n
Þessari tónlist fylgir ákveðin innrifegurð,“ segir Óskar Einarsson,
stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur,
sem í kvöld ætlar að flytja rólega og
fallega lofgjörðar- og sálmatónlist í
Fíladelfíu.
Kórinn var stofnaður fyrir
kristnihátíðina á Þingvöllum árið
2000 og hefur haldið fjölmarga tón-
leika síðan. Ekki má rugla þessum
kór saman við Gospelkór Fíladelfíu-
safnaðarins, sem Óskar stjórnar
einnig og sjá mátti í sjónvarpinu um
helgina. Sá kór er einfaldlega
kirkjukór Fíladelfíu, en í Gospelkór
Reykjavíkur er fólk úr ýmsum söfn-
uðum og engan veginn bundið við
Fíladelfíu.
„Þetta er kór á toppmælikvarða
sem gæti staðið hvaða gospelkór á
sporði erlendis,“ segir Óskar og er að
vonum stoltur af þessu afkvæmi
sínu. „Ég valdi söngvara í hann sjálf-
ur, og ég hleypi ekki hverjum sem er
inn í hann. Það eru ábyggilega 40
manns á biðlista hjá mér.“
Að syngja gospeltónlist svo vel
fari er enginn hægðarleikur, en Ósk-
ar hefur lagt mikla áherslu á að
vanda til verks og ná réttum hljóm í
sönginn.
„Við erum mjög meðvituð um það
efni sem við erum að flytja. Allir
söngvararnir lifa og hrærast í þess-
ari tónlist og þekkja hana mjög vel.
En það tekur sinn tíma og mikla þol-
inmæði að ná rétta hljómnum og það
þarf mikla þjálfun. Það þýðir til
dæmis ekkert að nota þessa klassísku
tóna, nema svona í bland, því radd-
beitingin er allt öðruvísi, og gleðin
sem fylgir þessu þarf að vera ekta.
Hún verður að koma innan frá.“
Óskar segir líka mikilvægt að
hljómsveitin sé góð og kunni til
verka. Hann hefur því fengið með sér
úrvalstónlistarmenn til þess að spila
undir. Þeir eru Gunnlaugur Briem,
Jóhann Ásmundsson og Óskar Guð-
jónsson.
Á tónleikunum í kvöld verður ein-
göngu flutt efni með íslenskum text-
um, bæði erlend og íslensk lög.
Einnig verða frumflutt fjögur lög eft-
ir Óskar sjálfan.
Tónleikar Gospelkórs Reykjavík-
ur verða í Fíladelfíu í kvöld og hefj-
ast klukkan átta. ■
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Gospelkór Reykjavíkur held-
ur tónleika í Fíladelfíu, Hátúni 2. Hljóm-
sveitin verður að þessu sinni skipuð þeim
Gunnlaugi Briem, Jóhanni Ásmunds-
syni, Óskari Guðjónssyni og Óskari Ein-
arssyni, sem jafnframt er stjórnandi.
21.00 Bob Justman, The Viking
Giant Show og Indigo spila á Sirkus.
Súri gæinn þeytir skífum. Ókeypis inn.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Edith Piaf eftir Sigurð Páls-
son á stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Vesturport sýnir Rómeó og
Júlíu í Borgarleikhúsinu.
■ ■ FUNDIR
17.00 Stuðningshópur um krabba-
mein í blöðruhálskirtli verður með
rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8. Kaffi á könnunni.
GOSPELKÓR REYKJAVÍKUR
Flytur rólega og fallega sálma- og lofgjörðartónlist í Fíladelfíu í kvöld.
■ TÓNLEIKAR
Lifa og hrærast í gospeltónlist
■ FÓLK Í FRÉTTUM
Lisa Marie, fyrrum kærasta leik-stjórans Tim Burton til margra
ára, hefur leitað réttar síns vegna
loforða sem hann gaf henni áður en
þau skildu. Hún segir að sam-
kvæmt þeim skuldi leikstjórinn sér
5,4 milljónir dollara. Leikstjórinn
sleit margra ára ástarsambandi
þeirra á meðan á tökum Planet of
the Apes stóð, en þá byrjaði hann
að vera með aðalleikkonu myndar-
innar, Helenu Bonham Carter.
Burton neitar að borga.
Söngvarinn Marc Anthony hef-ur sótt um lögskilnað frá eigin-
konu sinni en þau
hafa verið skilin að
borði og sæng lengi.
Anthony, sem var
giftur fyrrverandi
Ungfrú Alheim
Dayanara Torres,
er sagður vilja fá
frelsi til þess að
giftast núverandi
kærustu sinni,
Jennifer Lopez.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
30 31 1 2 3 4 5
Miðvikudagur
JÚNÍ
■ FÓLK Í FRÉTTUM
Vinir og vandamenn WhitneyHouston óttast nú aftur um and-
lega heilsu hennar eftir að hún og
eiginmaðurinn Bobby Brown hög-
uðu sér undarlega í búð í London.
Starfsfólkið sagðist varla hafa skil-
ið orð sem þau sögðu en þau döns-
uðu um verslunina hlægjandi. Svo
fóru þau fram á það við starfsfólk-
ið að það gæfi sér flíkur upp á
mörg þúsund pund.
Hollywood-parið unga JakeGyllenhaal og Kirsten Dunst
kom afgreiðslufólki í búð í Kens-
ington í London í opna skjöldu
þegar þau elskuðust með látum í
einum skiptiklefanum. Þau komu
mjög hljóðlega inn í búðina, með
sólgleraugu og hatta til þess að
reyna að dulbúa sig, fengu að
kíkja inn í skiptiklefann þar sem
starfsfólkið heyrði greinilega að
ástaratlot áttu sér stað.