Fréttablaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2004 í samvinnu öldrunarsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss, Landssambands eldri borgara og Félags eldri borgara í Reykjavík Allir velkomnir! Fyrirlestrar Kórsöngur Kynningarbásar Rannsóknir kynntar Stafaganga Leikfimi og margt fleira Kaffi og meðlæti OPIÐ HÚS LANDAKOT Fimmtudaginn 3. júní kl. 13:00 - 16:00 ■ FÓLK ■ FÓLK   SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI. • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN. • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR. • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU. • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR. Fást í flestum byggingavöru- verslunum landsins. Hugljómun Sjálfsþekkingar (Enlightenment Intensive) Í BLÁFJÖLLUM 24. - 27. JÚNÍ Hver er ég? Hvað er lífið? Það sameinar hugleiðslu og tjáningu með þeim ásetningi að fá beina upplifun á sannleikanum um þig sjálfan, lífið, aðra eða kærleikann, um leið og þú bætir hæfileika þinn í að vera til staðar, tjá þig skýrt og hlusta án þess að dæma. Upplýsingar og skráning í síma 8699293 og 5620037. Netfang: aldan@internet.is • FÁÐU SENDAN BÆKLING Roberts ber tvíbura undir belti Leikkonan Julia Roberts erólétt af tvíburum og á von á sér snemma á næsta ári. Þetta er haft eftir talsmanni hennar. Roberts, sem er 36 ára, vann Óskarsverðlaunin árið 2001 fyr- ir hlutverk sitt í myndinni Erin Brockovich. Hún hefur verið gift myndatökumanninum Dani- el Moder, sem er 35 ára, í tvö ár. Tökur á næstu mynd Roberts, framhaldsmyndinni Ocean’s 12, hefjast á Ítalíu í næstu viku. Meðleikarar hennar eru George Clooney, Matt Damon og Brad Pitt. ■ Kiefer með nýja kærustu Leikarinn Kiefer Sutherland erkominn með nýja kærustu upp á arminn. Sú heitir Reiko Ayles- worth og leikur við hlið hans í spennuþáttunum vinsælu 24. Þar fer hún með hlutverk leyniþjón- ustufulltrúans Michelle Dessler. Ekki er langt síðan Sutherland skildi að borði og sæng við þáver- andi eiginkonu sína, Kelly Winn. Þau hættu saman árið 1999. Sutherland hefur lengi átt í erfið- leikum í ástarmálum sínum. Frægt er þegar leikkonan Julia Roberts hætti með honum skömmu fyrir brúðkaup þeirra. ■ JULIA ROBERTS Roberts ætti að vera hamingjusöm þessa dagana því hún ber tvíbura undir belti. KIEFER SUTHERLAND Hefur slegið rækilega í gegn í þáttunum 24.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.