Fréttablaðið - 18.06.2004, Blaðsíða 25
5FÖSTUDAGUR 18. júní 2004
Body Sculptesse er silkikennt
gel frá Lancóme sem þéttir og
mýkir húðina. Gelið er borið á
og því gefnar tvær mínútur og
húðin verður þá strax þéttari og
ferskari. Eftir þrjár klukku-
stundir verður húðin stinn og
eftir fjórar vikur verða línurnar
fallegri og grennri.
Gelið styrkir húðina og mótar
líkamann eins og um stuðnings-
sokkabuxur sé að ræða. Í gelinu
eru soja og silíkonafleiða sem
styrkja kollagenþræðina.
Þannig aukast
teygjanleiki og
þéttleiki, sem
skilar sér í
minna ummáli.
Eftir fjórar vik-
ur verður lík-
aminn ekki að-
eins stinnari og
grennri heldur
verður appel-
sínuhúðin mun
minna áber-
andi. ■
Nýtt gel frá Lancóme:
Styrkir, þéttir og grennir
Gallabuxur:
Ómissandi árið um kring
Eitt af því sem óhætt er að segja að
sé ómissandi hverri manneskju er
að minnsta kosti eitt par af galla-
buxum. Þetta á ekki bara við um
sumarið heldur allt árið um kring,
alltaf.
Það er ótrúlegt úrval til af galla-
buxum um þessar mundir, nær allar
verslanir bjóða upp á gallabuxur,
klassískar, snjáðar, svartar, ljósar,
dökkar og hvítar.
Gallabuxur ganga líka við allt.
Þær eru alltaf gjaldgengar sem
hversdagsfatnaður og sífellt eykst
notkun þeirra við betri tækifæri.
Levi Strauss fyrirtækið, sem er
aldargamalt, er með Levi’s gallabux-
unar á sínum snærum. Það er senni-
lega stærst og þekktast á gallabuxna-
markaðnum en Lee og Wrangler eiga
sér jafnlanga sögu og buxurnar
þeirra eru ekki síður vinsælar í dag.
Fyrirtækin hófu framleiðslu á vinnu-
fatnaði sem síðan hefur þróast út í
að aðaláherslan er á þessa ómiss-
andi flík, gallabuxurnar.
Diesel-buxur hafa verið þær vin-
sælustu undanfarin ár en sífellt
bætist í flóruna, Miss Sixty, Gas,
Blend, Fornarina og fljótlega verða
Seven-gallabuxurnar einnig á
boðstólum. ■
Wrangler 9.990
krónur, Retro
Lee 9.990
krónur, Retro
Gas 12.990
krónur, Retro
G-sus 9.990
krónur, Retro
Miss Sixty 11.990 krónur,
Gallerí Sautján
Levis notaðar
Diesel 10.990 krónur,
Gallerí Sautján
Blend she 5.990
krónur, Blend
Fornarina 12.990
krónur, Retro