Fréttablaðið - 18.06.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 18.06.2004, Blaðsíða 32
18. JÚNÍ 2004 FÖSTUDAGUR6 Hvað ætlar þú að grilla um helgina? „Svínvirkar á grillið“ „Það er yfir höfuð dauðaeinfalt að grilla. Aðalatriðið er bara að hafa góðan félags- skap,“ segir Kristófer Ásmundsson, matreiðslumaður á matsölustaðnum og fiskversluninni Gallerý fiski. „Áhugi fyrir grillun á fisk hefur auk- ist mjög mikið og færist grilltíminn alltaf framar og framar á almanakinu. Fyrir um tíu árum byrjaði fólk að kaupa grillfisk í júlí en nú í dag kaupir fólk grillfisk í stórum stíl strax um miðjan maí,“ segir Kristófer. Klassískir fiskar til að grilla eru lúða, skötuselur og lax en einnig hefur Gallerý fiskur verið að kynna fólk fyrir hlýra, löngu og blá- löngu á grillið. „Nú er fólk búið að grilla yfir sig af kjöti og hefur því öðlast traust við grill- mennskuna. Nú þorir fólk að prófa meira og eftir því sem það grillar oftar eykst færnin. Þá er fólk tilbúið að færa sig yfir í viðkvæmara grillfæði og leik- ur sér líka með grænmeti á grillinu,“ segir Kristófer, sem telur að ein af ástæðum aukinna vinsælda grillfisks sé að heilsubylgjan hafi tekið allt með trompi. „Áhrifa bylgjunnar sem Gaui litli kom af stað með því að stíga á vigt- ina gætir ennþá.“ Að sögn Kristófers getur samt hver sem er grillað fisk. „Mikilvægast er að hafa grindina hreina, olíuborna og vel heita. Áður en fisknum er skellt á grillið er örlítilli olíu bætt á hann líka. Byrjað er að grilla á góðum hita en síðan er lækkað undir. Varminn er þá kominn í grindina þannig að hún brennur frá fisknum. Þá losnar hann frá grindinni og hægt er að snúa fisknum við. Þá er fisk- urinn orðinn mjög fallegur og fínar rendur á honum,“ segir Kristófer, sem leggur áherslu á það að aðeins á að gril- la fisk einu sinni á hvorri hlið. „Fyrir þá sem eru alveg að byrja er gott að nota álbakka eða hamborgaraklemmu og skella fisknum í bakka eða klemmu á sjóðandi heitt grillið í svona eina til tvær mínútur og snúa svo. Það er alveg sáraeinfalt. Svo getur fólk prófað sig áfram með eitt og eitt stykki. Þá er gott að nota frekar stinnan fisk eins og lúðu, lax, skötusel, keilu eða steinbít,“ segir Kristófer og bætir við að hægt sé að grilla allt – nema kannski hrísgrjón. „Ég nota allt grænmeti, bæði eitt og sér og á teini, og baka líka kartöflur og hita þær á grillinu. Síðan er gott að hafa ferskt salat og einhverja góða kalda sósu með. Kosturinn við grillmeðlæti er að hægt er að laga það nokkru áður en gestirnir koma þannig að það er allt tilbúið,“ segir Kristófer að lokum. ■ Hver sem er getur grillað fisk: Hrein og heit grind FRÉTTAB LAÐ IÐ /E.Ó L Kristófer Ásmundsson segir það yfir höfuð leik einn að grilla. Grillið keypti hann í Esso á Ártúnshöfða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.