Fréttablaðið - 02.07.2004, Side 8
8 2. júlí 2004 FÖSTUDAGUR
Ólík viðbrögð eftir því hvar fólk býr:
Blendin viðbrögð í Írak
ÍRAK, AP Fyrsta stund Saddams
Hussein frammi fyrir dómara sín-
um vakti að vonum mikla athygli í
Írak en einnig blendin viðbrögð.
„Í ljósi allra fjöldagrafanna
sem ég hef séð í Írak finnst mér
að Saddam eigi skilið að fá
dauðarefsingu,“ sagði kúrdísk
kona, Sawsam Jamal, og endur-
speglaði vilja margra. Þó voru
ekki allir þeirrar skoðunar.
Súnní-músliminn Odai Faleh
sagði Saddam hafa tryggt ör-
yggi almennings og aðeins refs-
að vondu fólki sem hefði grafið
undan stöðugleika landsins,
hann óskaði Saddam því heilla.
V i ð b r ö g ð
fólks mörkuð-
ust að hluta af
búsetu þess. Á
svæðum súnní-
múslima, svo
sem í Rambadi,
lýsti fólk sam-
úð með
Saddam þó það
væri fjarri því
algilt. Á svæð-
um Kúrda og
sjíta-múslima
vilja flestir að
Saddam verði
refsað. ■
Færður í hlekkjum í
eina af höllum sínum
Saddam Hussein var leiddur fyrir dómara og honum birt sjö ákæruatriði vegna voðaverka sem
hann bar ábyrgð á í 24 ára stjórnartíð sinni. Auk hans var ellefu fyrrum ráðamönnum í Írak
birt ákæruatriði, þeirra á meðal Tariq Aziz og Efnavopna-Ali.
ÍRAK Eftir 24 ár sem forseti Íraks,
átta mánuði á flótta og sjö mánuði
í haldi Bandaríkjamanna sneri
Saddam Hussein aftur í eina af
fjölmörgum höllum sem eitt sinn
tilheyrðu honum. Áður fylgdu líf-
verðir honum eftir til að tryggja
öryggi hans. Í gær voru það hins
vegar fangaverðir sem fylgdu
honum, hlekkjuðum, í gömlu höll-
ina sem hýsir nú dómstólinn sem
mun rétta yfir þessum fyrrum
valdamesta manni Íraks.
Morð á morð ofan
Skeggjaður og klæddur í
jakkaföt, mjög ólíkur sjálfum sér
frá fyrri tíð var Saddam Hussein
leiddur fyrir dómara og lesin upp
fyrir honum ákæra vegna mann-
réttindabrota og glæpa sem hann
er sakaður um í valdatíð sinni.
Ákæran er þó aðeins bráðabirgða-
útgáfa. Næstu mánuði munu
íraskir saksóknarar leggjast í
rannsóknir og útbúa endanlegt
ákæruskjal. Innihald skjalsins í
gær var samt kristaltært, stjórn-
artíð Saddams Hussein einkennd-
ist af morðum á morð ofan, sem
hann bar sjálfur ábyrgð á. Morð á
pólitískum andstæðingum, morð á
Kúrdum sem lutu ekki stjórn
hans, morð á Barzani-ættinni, inn-
rásin í Kúveit og nauðungarflutn-
ingar Kúrda voru meðal ákæruat-
riðanna sem voru lesin upp yfir
þessum gamla harðstjóra.
Enginn lögmaður var með
Saddam þegar hann kom fyrir
dómarann. Því neitaði hann að
undirrita skjal sem var lagt fyrir
hann, þar var að finna ákæru-
atriðin gegn honum og var hann
beðinn um að undirrita skjalið til
að staðfesta að hann skildi hvað
hefði farið fram í réttarsalnum.
Það kvaðst hann ekki vilja gera
fyrr en hann hefði haft tækifæri
til að ráðgast við lögmenn sína.
Varði innrás í Kúveit
Lengst af var Saddam rólegur
og kurteis. Hann æstist þó þegar
lesin var upp ákæra á hendur hon-
um vegna innrásarinnar í Kúveit.
Hann sagði þá innrás hafa verið í
þágu Íraka. Hann sagði að Kúveit-
ar, sem hann kallaði hundingja og
dómarinn skammaði hann fyrir,
hefðu verið að lækka olíuverð nið- ur úr öllu valdi og því fyllilega
réttmætt að gera innrás til að
stöðva þá árás gegn hagsmunum
írösku þjóðarinnar.
Mikil öryggisgæsla var á
staðnum og sömuleiðis meðan
Saddam Hussein var fluttur til og
frá dómshúsinu í öflugri bílalest.
Auk Saddams voru ellefu aðrir
valda- og áhrifamenn í stjórnartíð
Saddams leiddir fyrir dómara í
gær. Þekktastur þeirra er væntan-
lega Tariq Aziz, fyrrum vara-
forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra Íraks. Hann sagði ákæru-
atriðin ekki geta beinst að sér per-
sónulega þar sem að ef um glæpi
hafi verið að ræða hafi það verið á
ábyrgð stjórnvalda, ekki ein-
stakra manna sem fóru með þau.
Efnavopna-Ali, Ali Hasan al-
Majid, var ákærður fyrir að
skipuleggja efnavopnaárás á
Kúrda sem kostaði þúsundir lífið
árið 1988.
brynjolfur@frettabladid.is
Bráðabirgðastjórnin:
Dauðarefs-
ing tekin upp
ÍRAK, AP Íraska bráðabirgðastjórnin,
sem tók við völdum í byrjun vikunn-
ar, ætlar að taka upp dauðarefsingu
á ný áður en réttarhöldin yfir
Saddam Hussein hefjast. Dauða-
refsingin var við lýði í stjórnartíð
Saddams en eftir að hernáms-
stjórnin tók völdin í Írak bannaði
hún aftökur sakfelldra manna.
Ákvörðunin hefur fengið mis-
jöfn viðbrögð. Fjölmargir Írakar
fagna henni, aðrir síður. Frakkar og
Þjóðverjar sem voru andvígir inn-
rásinni í Írak ítrekuðu andstöðu
sína við dauðarefsingar og lýstu
vonum um að Saddam fengi réttlát
réttarhöld. ■
SVONA ERUM VIÐ
HVAÐ KAUPUM VIÐ?
Innflutningur janúar – maí 2004
Matvörur og drykkjarvörur 7.739 m. kr.
Hrávörur og rekstrarvörur 23.921 m. kr.
Eldsneyti og smurolíur 7.456 m. kr.
Fjárfestingarvörur 20.993 m. kr.
Flutningatæki 12.326 m. kr.
Neysluvörur 17.068 m. kr.
Heimild: Hagstofan
– hefur þú séð DV í dag?
Heyrnalaus
faðir níddist á
þremur dætrum
sínum og fær
samúð dómara
Var sjálfur misnotaður í Heyrnleysingjaskólanum
Ellefu sak-
borningar
■ Ali Hasan al-Majid
Efnavopna-Ali skipulagði efnavopnaárásir
á bæinn Halabja 1988. 5000 Kúrdar
létust.
■ Aziz Saleh al-Numan
Yfirmaður Baath-flokksins í Bagdad.
■ Barzan Ibrahim al-Hassan al-Tikriti
Hálfbróðir Saddams og ráðgjafi hans.
■ Kamal Mustafa Abdullah al-Tikriti
Ritari Lýðveldisvarðar og tengdasonur
Saddams.
■ Muhammed Hamza al-Zubaydi
Barði niður uppreisn sjíta-múslima 1991.
■ Sabir Abdul Aziz Al-Douri
Ríkisstjóri í Bagdad og yfirmaður leyni-
þjónustu hersins í Persaflóastríðinu.
■ Abid Hamid Mahmoud al-Tikriti
Forsetaritari og yfirmaður einkalífvarða
Saddams.
■ Sultan Hashim Ahmad
Varnarmálaráðherra.
■ Taha Yassin Ramadan
Varaforseti Íraks og meðlimur byltingar-
ráðsins.
■ Tariz Aziz
Fyrrum varaforsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra.
■ Watban Ibrahim al-Hasan al-Tikriti
Ráðgjafi Saddams og hálfbróðir.
Bush er eini glæpamaðurinn í málinu sagði Saddam Hussein:
Ég er Saddam forseti Íraks
ÍRAK „Ég er Saddam Hussein al-
Majid, forseti íraska lýðveldis-
ins,“ voru fyrstu orðin sem fyrr-
um einræðisherra Íraks mælti op-
inberlega í rúmt ár, eða frá því
stjórn hans féll í innrás Bandaríkj-
anna og bandamanna þeirra. Með
því svaraði hann beiðni dómarans
um að hann gerði grein fyrir sér.
Þegar hann var spurður út í hvar
hann væri til húsa var svar hans:
„Ég lifi í sérhverju írösku húsi“.
Saddam var ekki sáttur við að
vera leiddur fyrir dómara án þess
að hafa verjanda sér til aðstoðar.
„Hví dregur þú mig inn í þetta hús
án verjanda?“ spurði hann dómar-
ann. Saddam hæddist að dómaran-
um fyrir að vinna fyrir her-
námsliðið eftir að dómarinn sagð-
ist skipaður af fjölþjóðaliðinu í
Írak. „Þá muntu dæma mig eftir
þeirra lögum,“ sagði Saddam.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti á ekki upp á pallborðið hjá
Saddam sem sagði hann vera eina
glæpamanninn í þessu máli öllu
saman. Saddam sagði einnig að
einungis væri staðið í málaferlum
gegn sér til þess að auka mögu-
leika Bush á að vinna í forseta-
kosningunum í haust. ■
FYLGST MEÐ FRAMVINDUNNI
Rakarinn og viðskiptavinir hans höfðu augun á sjónvarpinu þegar
sýnt var frá því þegar Saddam Hussein kom fyrir dómara.
RÆTT VIÐ DÓMARANN
„Bandaríkjamenn segja mig eiga milljónir
faldar í Sviss. Hvernig get ég þá ekki haft efni
á lögmanni?“ spurði Saddam á móti aðspurð-
ur um hvort hann gæti ráðið sér verjanda.
SADDAM HUSSEIN FRAMMI FYRIR DÓMARANUM
Saddam efaðist um umboð dómarans til að fara með málið og spurði hvort reka ætti
málið á grundvelli þeirra laga sem voru sett í valdatíð hans.
HELSTU ÁKÆRUATRIÐI
Morð á trúarleiðtogum árið 1974
Morðin á Barzani-ættinni árið 1983
Eiturgasárás á Kúrda í Halabja árið 1988
Pólitískar aftökur um þriggja áratuga
skeið
Herferð gegn Kúrdum
á árunum 1986–1988
Innrásin í Kúveit 1990
Uppreisn Kúrda og sjíta-múslima 1991
barin niður af grimmd.