Fréttablaðið - 02.07.2004, Side 50
38 2. júlí 2004 FÖSTUDAGUR
Kl. 8 og 10.40 B.I. 16
SÝND kl. 5.40
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
S.V. Mbl.
HHH
Skonrokk
VAN HELSING kl. 10 B.i. 12
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.30 B.I. 12
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 8 og 10.30
HHHH
HP Kvikmyndir.com
HHH1/2
H.L. Mbl.
Frá framleiðanda
Spiderman
EUROTRIP kl. 3.45 og 8 B.I. 12
TROY kl. 10 SÝND Í LÚXUS VIP kl. 5 B.I. 14
r fr l i
i r
Kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 Kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 16
SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND
SUMARSINS!
LÚXUS: kl. 4, 6, 8 og 10.
Jenna fékk ósk sína uppfyllta...
og er allt í einu þrítug! Frábær mynd
fyrir fólk á öllum aldri.
MEÐ HINUM EINA SANNA
OG OFURSVALA VIN DIESEL
Geggjaður hasar og
magnaðar tæknibrellur
SÝND kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
SÝND kl. 5 M/ÍSLENSKU TALI
SÝND kl. 4, 7 og 10 M/ENSKU TALI
MORS ELLING kl. 6 og 8
HHH1/2
kvikmyndir.is
Tom Hanks er einhver
útsmognasti, klárasti, færasti
og mest heillandi afbrotas-
nillingur sem nokkru sinni
hefur REYNT glæp aldarinnar.
MEÐ HINUM EINA SANNA
OG OFURSVALA VIN DIESEL
Geggjaður hasar og
magnaðar tæknibrellur
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12
kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 kl. 5.30
HHH
Ó.Ö.H. DV
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.20
kl. 8 og 10.30
NÚ EINNIG MEÐ ÍSLENSKU TALI
LADYKILLERS kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 12
HHH
ÓHT, Rás 2
HHHH "Snilld!"
SK, Skonrokk
"...ég man ekki eftir að hafa
séð betri heimildarmynd um
hljómsveit á ævinni. Búist við
heljarinnar skemmtun."
BÖS, Fréttablaðið
,
ill !
,
... i i
i i il
lj i i i. i i
lj i .
, l i
Forsala hafin! - Frumsynd 9. júlí!
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
H.L. Mbl.
HHH
Kvikmyndir.is
HHH
Kvikmyndir.com
Frábær, gamansöm og spennandi ævin-
týramynd sem byggð er á sígildu skáld-
sögu Jules Verne. Með hinum hressa og
sparkfima Jackie Chan en með honum
leika líka Steve Coogan, Arnold
Schwarzenegger, John Cleese, Rob
Schneider, Owen Wilson og Luke Wilson.
Frábær, gamansöm og spennandi ævin-
týramynd sem byggð er á sígildu skáld-
sögu Jules Verne. Með hinum hressa og
sparkfima Jackie Chan en með honum
leika líka Steve Coogan, Arnold
Schwarzenegger, John Cleese, Rob
Schneider, Owen Wilson og Luke Wilson.
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
Kvikmyndir.is
HHH
H.L. Mbl.
HHH
Kvikmyndir.com
HHH
S.V. Mbl.
HHH
S.V. Mbl.
Ég get seint talist til dyggra unnenda
Fear Factory, hljómur hennar er full
vélrænn fyrir minn smekk. Eftir að
hljómsveitin hafði tímabundið lagt
upp laupana var ákveðið að bassa-
leikarinn, Christian Olde Wolbers,
myndi færa sig yfir á gítarinn og var
Byron Stroud úr Strapping Young
Lad fenginn til að plokka bassa-
strengina. Platan Archetype er af-
rakstur þessarar nýju myndar sem
Fear Factory tók á sig eftir að gítar-
leikarinn Dino Cazares hvarf á
braut.
Tónlistin er sem fyrr í tæknilegri
kantinum, en það gefur manni einna
mest efni til að gleðjast að útkoman
er ekki jafn vélræn og áður. Wolbers
gefur Dino lítið eftir sem gítar-
leikari, þéttleikinn ekkert síðri en á
þeirra fyrri verkum. Hins vegar
hefði hljómborðið alveg mátt missa
sín, finnst það óþarft á köflum og
ekki eiga við.
Sköpun Fear Factory kemur víða
við á þessari plötu, hljómsveitin tek-
ur oft grimma grindcore-keyrslu, á
til að detta niður í melódíska kafla
með ágætum árangri og vélbyssu-
legu gítarriffin eru sem fyrr mjög
áberandi. Söngurinn hjá Burton C.
Bell er þó oft kæfður með bjögunar-
effektum, hefði vafalítið hljómað
betur án þeirra og maður áttar sig
ekki alveg á tilgangi þeirra.
Lagið Human Shields hitti mig þó
beint í mark, en þar fer hljómsveitin
í nettan Deftones-gír sem fer henni
alveg ágætlega. Það hefði verið
gaman að heyra þá félaga gera
meira í þeim stíl á þessari plötu, sem
er að hljómnum undanskildum full
keimlík því sem þeir hafa gert áður.
Archetype er ekkert meistara-
verk, lumar bara á sprettum hér og
þar, en er mér þó meira að skapi en
fyrri verk hljómsveitarinnar.
Smári Jósepsson
Góðir sprettir
FEAR FACTORY:
ARCHETYPE
■ TÓNLIST
■ TÓNLEIKAR
Laugavegi 32 sími 561 0075
Ekki uppselt
á 50 Cent
Miðasalan á tónleika rapparans 50
Cent, sem haldnir verða í Egils-
höll 11. ágúst hófst í gær. Að sögn
skipuleggjenda
var rífandi sala,
en enn eru til
miðar. Mesta eft-
irspurnin er eftir
VIP-miðum, sem
eru þúsundkalli
dýrari en í staðinn fá handhafar
slíkra miða að vera alveg upp við
sviðið. Miðarnir fást í verslunum
Skífunnar og BT á Akureyri og
Egilsstöðum, Hljóðhúsinu Sel-
fossi og Hljómvali Keflavík. ■
Kvikmyndahátíðin í Karlovy
Vary í Tékklandi hefst í dag en
þar verður kvikmynd leik-
stjórans Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, Næsland, frumsýnd 5.
júlí. Friðrik Þór verður viðstadd-
ur frumsýninguna ásamt breska
stórleikaranum Gary Lewis, sem
fer með eitt aðalhlutverkið
i¥myndinni, og framleiðendum
myndarinnar, þeim Skúla
Malmquist og Þóri Snæ
Sigurjónssyni.
Karlovy Vary-hátíðin er á
topplista alþjóðlegra samtaka
kvikmyndaframleiðenda ásamt
ellefu öðrum kvikmyndahátíðum
heims og er þar í hópi með kvik-
myndahátíðunum í Berlín, Cann-
es og Feneyjum. Fimmtán mynd-
ir keppa á hátíðinni en það eitt
að vera valin til keppninnar
þykir mikill gæðastimpill og
vísir á velgengni.
Kaldaljós, kvikmynd Hilmars
Oddssonar eftir samnefndri
skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur,
verður sýnd á hátíðinni í dag-
skrá er nefnist Horizons. Kvik-
myndir sem eru sýndar í þeim
flokki eiga það sameiginlegt að
hafa hlotið verðskuldaða athygli
að undanförnu eða unnið til
verðlauna á alþjóðlegum kvik-
myndahátíðum. Hilmar Oddsson
verður þar í hópi ekki ómerkari
leikstjóra en Pedro Almodovar,
Michel Gondry og Michael
Moore, því kvikmyndirnar La
mala Educacion, Eternal Suns-
hine of the Spotless Mind og
Fahrenheit 9/11 verða einnig
sýndar í þessum sama flokki. ■
Michael Moore, Hilmar
Odds og Friðrik Þór
VIRTAR KVIKMYNDIR
Kaldaljós verður sýnd í sama flokki og kvik-
myndirnar Eternal Sunshine of the Spotless
Mind og Fahrenheit 9/11 á kvikmynda-
hátíðinni í Karlovy Vary sem er sett í dag.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Elton John er að byrjaður að
skipuleggja tónleika til styrktar
liði Heiðars Helgusonar, Watford,
en söngvarinn hefur alla tíð verið
einlægur stuðningsmaður liðsins.
Fjárhagsstaða félagsins er mjög
bágborin og er nú svo komið að
það á ekki einu sinni Vicarage
Road, heimaleikvang sinn. Elton
ætlar að halda tónleikana á
Vicarage Road 18. júní á næsta ári
og hefur hann landað tilætluðum
leyfum nú þegar. Kappinn kom
síðast fram á staðnum árið 1974
og segist eiga ljúfar minningar
frá þeim degi. Hann segist hlakka
mikið til tónleikanna en safna
þarf sex milljónum punda.
Watford neyddist til að selja leik-
vanginn árið 2002 vegna skulda
en á síðasta ári þurftu starfmenn
félagsins og leikmenn einnig að
taka á sig launalækkanir til að
bjarga félaginu. Liðið leikur þó
enn sína heimaleiki á Vicarage
Road en félagið borgar þar leigu.
Elton sagði í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér að hann gerði sér
grein fyrir fjárhagserfiðleikum
félagsins en hann tryði því að það
sigraðist á þeim.
Stjórnarformaður Watford,
Graham Simpson, tekur framtaki
Eltons fagnandi og segir fréttirn-
ar frábærar. Hann segir tón-
leikana ekki aðeins sýna stuðning
Eltons í verki heldur vera frábært
tækifæri fyrir íbúa Watford til að
sjá magnaða tónleika. ■
Elton leikur fyrir Watford
ELTON JOHN
Söngvarinn ætlar að halda tónleika til
styrktar fótboltafélaginu Watford.