Fréttablaðið - 12.07.2004, Síða 6
6 12. júlí 2004 MÁNUDAGUR
SKOÐANAKÖNNUN Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands,
segir að augljóst sé á niðurstöðu
könnunar Fréttablaðsins um hvort
Davíð Oddsson eigi að hætta af-
skiptum af stjórnmálum 15. sept-
ember, að stór hluti sjálfstæðis-
manna sé sáttur við foringja sinn.
„Maður hlýtur hins vegar að
velta því fyrir sér hvort þetta sé
ásættanleg niðurstaða fyrir jafn
sterkan formann og Davíð hefur
verið. Ef þessi könnun hefði verið
gerð fyrir einu ári eða tveimur
hefði Davíð eflaust fengið mun af-
dráttarlausari stuðning frá flokks-
mönnum,“ segir Gunnar Helgi.
„Hafa verður í huga að fylgi við
flokkinn er í lágmarki og þarna er
því um harðasta kjarnann að ræða.
Það er umhugsunarvert að jafnvel í
þeim hópi telji 30 prósent að for-
maður flokksins eigi að hætta af-
skiptum af stjórnmálum,“ segir
Gunnar Helgi en bætir við: „Á hinn
bóginn má segja að niðurstaðan
sýni að flokkurinn hafi ekki snúið
baki við Davíð“. ■
68 prósent vilja að Davíð
hætti alveg 15. september
Tæplega þriðjungur kjósenda vill að Davíð Oddsson haldi áfram í stjórnmálum eftir 15. septem-
ber. Rúmlega 30 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins vilja að Davíð hætti alveg í haust.
SKOÐANAKÖNNUN Rúmlega 68%
þeirra sem afstöðu taka í nýrri
könnun Fréttablaðsins telja að
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
eigi að hætta afskiptum af stjórn-
málum þegar hann lætur af emb-
ætti forsætisráðherra 15. septem-
ber en 32 prósent telja að hann
eigi að halda áfram í stjórn-
málum.
Í sömu könnun sögðust 32,3
prósent þeirra sem tóku afstöðu
styðja Sjálfstæðisflokkinn. Þegar
litið er til þessara stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins ein-
göngu segja 71 prósent þeirra að
Davíð eigi ekki að hætta afskipt-
um af stjórnmálum 15. september
en 29% af stuðningsmönnum
flokksins töldu að hann ætti að
hætta á þeim tímapunkti.
Samkvæmt samkomulagi for-
manna stjórnarflokkanna mun
Davíð láta af embætti forsætis-
ráðherra 15. september og Hall-
dór Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, setjast í þann
stól. Á sama tíma færist um-
hverfisráðuneytið frá Framsókn-
arflokki yfir til Sjálfstæðisflokks.
Davíð Oddsson hefur gengt em-
bætti forsætisráðherra í rúm
þrettán ára, frá 30. apríl 1991,
lengst allra íslenskra ráðherra.
Davíð hefur sjálfur ekki gefið
uppi hvort hann hyggist halda
áfram í stjórnmálum eftir 15.
september.
Enginn munur var á afstöðu
kynja í könnun Fréttablaðsins en
marktækur munur var á afstöðu
fólks eftir búsetu. Á landsbyggð-
inni töldu 72,4 prósent að Davíð
ætti að hætta en 65,1 prósent
voru þeirrar skoðunar í þéttbýli
af þeim sem afstöðu tóku.
Könnun Fréttablaðsins var
framkvæmd síðastliðinn föstu-
dag. Hringt var í 800 manns, skipt
jafnt milli kynja sem og lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðis,
og tóku 91,8% afstöðu til spurn-
ingarinnar sem var svohljóðandi:
„Telur þú að Davíð Oddsson eigi
að hætta afskiptum af stjórnmál-
um þegar hann lætur af embætti
forsætisráðherra 15. september í
haust?“ ■
Danmörk:
Húsbátar
vinsælli en
sumarhús
SUMARHÚS Sífellt fleiri Danir
varpa hugmyndinni um sumarhús
fyrir róða og kaupa sér húsbát í
staðinn en með þeim hætti fæst
eigulegur sumarbústaður með út-
sýn til hafs á mun lægra verði en
dýr eign á landi. Er farið að tala
um sprengingu í þessu sambandi
enda eru kostir húsbáta æði marg-
ir fram yfir sumarhúsin. Auðvelt
er að flytja ef þörf krefur, engin
fasteignagjöld eru innheimt af
húsbátum og alltaf er afar stutt á
ströndina. ■
VEISTU SVARIÐ?
1Hvaða fyrirtæki var nýlega úrskurðaðtil bráðabirgða brotlegt gagnvart sam-
keppnislögum af Samkeppnisstofnun?
2Hver skoraði jöfnunarmark Fylkisgegn KR í Landssímadeildinni á
sunnudag?
3Þjóðleikhússtjóri lætur senn af störf-um. Hvað heitir hann?
Svörin eru á bls. 31
Bandaríkin:
Lestur á
undanhaldi
BÓKMENNTIR Innan við helmingur
átján ára og yngri í Bandaríkjun-
um lesa eða hafa lesið bókmenntir
af einhverju tagi. Kemur þetta
fram í könnun sem Hagstofa
Bandaríkjanna stóð fyrir árið
2002. Þar kemur skýrt fram að
þrátt fyrir tímabundnar vinsældir
bókarinnar af og til sé lestur þeir-
ra á miklu undanhaldi í landinu
öllu. Sérstaklega á það við um
skáldsögur, ljóð og leikrit en sér-
fræðinga greinir þó á um hvort
niðurstöðurnar séu í raun slæmar.
„Helmingur landsmanna er að
lesa og ég er ekki frá því að það sé
dágóður árangur,“ segir Kevin
Starr, prófessor í bókmenntum
við háskóla Suður-Kaliforníu. ■
HÆKKANDI FASTEIGNAVERÐ
Borgarnes og Akranes njóta vaxandi
vinsælda sem búsetustaðir enda
tiltölulega stutt frá höfuðborginni.
Vesturland:
Fasteigna-
verð hækkar
FASTEIGNAMÁL Fasteignaverð
hækkaði hlutfallslega mest á
Vesturlandi sé miðað við þróun
fasteignaverðs frá árinu 1990 að
því er kemur fram í héraðsfrétta-
blaðinu Skessuhorni. Er það metið
til marks um að sífellt fleiri líti
það jákvæðum augum að búa í ná-
grenni höfuðborgarinnar en fast-
eignaverð þar sem og á Reykja-
nesi og á Vesturlandi hefur hald-
ist í hendur síðustu árin og hefur
eftirspurn verið umfram framboð
á öllum stöðunum á sama tíma. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
GUNNAR HELGI KRISTINSSON
„Maður hlýtur hins vegar að velta
því fyrir sér hvort þetta sé ásættan-
leg niðurstaða fyrir jafn sterkan
formann og Davíð hefur verið.“
Flokkurinn hefur ekki snúið baki við Davíð, segir prófessor í stórnmálafræði:
Davíð ekki eins sterkur og áður
DAVÍÐ ODDSSON
Rúmlega 70 prósent stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins telja að
Davíð eigi ekki að hætta í stjórnmál-
um 15. september en tæplega 30
prósent telja að hann eigi að hætta
afskiptum af stjórnmálum þá.
Já 68,1%
Nei 31,9%
Já 29%
Nei 71%
ALLIR
Mikill meirihluti þeirra sem afstöðu tóku
töldu að Davíð ætti að hætta alveg.
STUÐNINGSMENN FLOKKSINS
Stuðningsmenn Sjálfstæðsflokks
skiptast í afstöðu sinni.