Fréttablaðið - 12.07.2004, Blaðsíða 19
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 24
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 110 stk.
Keypt & selt 28 stk.
Þjónusta 52 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heilsa 12 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 7 stk.
Húsnæði 18 stk.
Atvinna 18 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Stokkaðu upp fjármálin
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum
lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu
greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið er
veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign.
Fasteigna- og framkvæmdalán Frjálsa fjárfestingarbankans eru
einnig hentug leið fyrir þá sem standa í húsbyggingum eða fast-
eignakaupum.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
www.frjalsi. is
– með hagstæðu fasteignaláni
Hólmgeir Hólmgeirsson rekstrarfræðingur
er lánafulltrúi og ráðgjafi á viðskiptasviði
9
0
4
0
4
4
2
H
im
in
n
o
g
h
a
f-
9
0
4
0
4
4
2
80%veðsetningarhlutfall
5,40% 5,95% 6,50% 7,50% 8,00%
5 ár 19.050 19.300 19.570 20.040 20.280
15 ár 8.120 8.410 8.710 9.270 9.560
30 ár 5.610 5.960 6.320 6.990 7.340
40 ár 5.090 5.470 5.850 6.580 6.950
2 4.500 4.960 5.420 6.250 6.670Afborgunar-laust *
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir %
Góðan dag!
Í dag er mánudagur 12. júlí,
194. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.33 13.33 23.32
Akureyri 2.44 13.18 24.48
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Fasteignasölur
101 Reykjavík 13
Akkúrat 22
Ás 26–27
Draumhús 10-11
Eign.is 16
Eignalistinn 24
Eignaumboðið 25
Fasteignamarkaðurinn 23
Fasteignamiðlun 15
Fasteignam. Grafarv. 14
Heimili 3
Híbýli 20
Hraunhamar 8–9
Lyngvík 4
Mótás 12
Nethús 18–19
Remax Stjarnan 6
X-hús 25
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
„Dökkir litir utandyra eru ekki mjög góðir og þeir
veðrast hratt og upplistast. Ljósu litirnir eru betri
og endast lengur,“ segir Valdimar Gunnar Sig-
urðsson, sölumaður, málameistari og ráðgjafi hjá
Slippfélaginu Litalandi.
„Fyrir tveimur til þremur árum voru dökkir
litir utan dyra mikið í tísku en nú er fólk farið að
sjá hvernig húsin veðrast illa. Það voru miklu
sterkari litir í gangi hér áður fyrr en ljósir litir
endast betur. Nú reynum við að hvetja fólk til að
velja ljósa liti utandyra og það er til mikið úrval
af þeim,“ segir Valdimar, en vinsælast er að mála
í grábrúnum lit utandyra og hafa hvíta glugga.
Skærir og sterkir litir innandyra eru mjög
áberandi í erlendu tímaritum og svo virðist sem
fólk sé farið að taka meiri áhættur í litavali. „Fólk
tekur mikið skæran lit á einn vegg í rými en lítið
er um að fólk máli heilt herbergi í sama skæra
litnum. Við seljum mjög mikið af málningu bara á
einn vegg og fólk notar litina aðeins til að lífga
upp á rými. Vinsælustu litirnir innandyra eru
jarðbrúnt, grágrænt og skær litur út í appel-
sínugult,“ segir Valdimar en hann aðstoðaði Völu
Matt í Innlit/Útlit nýlega. „Við notuðum litinn Teit
mikið í Innlit/Útlit og hann er millidökkur og grá-
grænn. Síðan er kominn nýr litur hjá okkur sem
heitir Esja og er út í brúnt.“
„Fólk er orðið aðeins kaldara við að velja sér
liti og velur þá liti sem það hefur smekk fyrir.
Litir eru einstaklingsbundnir og eiga að vera
það,“ segir Valdimar og bætir við að útimálning
sé mikil á sumrin. „Innimálning er hins vegar
jöfn allan ársins kring og notar fólk yfirleitt frí-
tíma sinn til að mála.“
Valdimar er um þessar mundir að vinna að lita-
korti með Guðlaugu Halldórsdóttur í versluninni
Má Mí Mó. „Við tökum liti úr náttúrunni og köll-
um þá nöfnum eins og hafið eða mýrin,“ segir
Valdimar, en spennandi verður að sjá litakortið
þegar það er fullbúið. ■
Stíll húsa ræður gjarnan litavali
fólks nú til dags er það velur ut-
anhússmálningu, að
sögn Vigfúsar Gísla-
sonar, sölustjóra hjá
Hörpu Sjöfn. Enn
fremur segir hann
vissa hófsemi ráða í
litavali nú sem lýsi sér í því að
ef tekinn sé áberandi litur á út-
veggi sé þakið oft haft í hlut-
lausum lit – og öfugt ef athyglin
eigi að beinast að þakinu. „Þá
hefur húsið sterkari karakter og
hægt er að segja „fólkið í gula
húsinu“,“ bendir hann á. Hann
tekur líka eftir því að fólk spáir í
hvernig næstu hús eru máluð
og hvað fari best við. Allt þetta
finnst honum ánægjuleg þróun.
Sláttarbyrjun fylgir þessum
árstíma hjá þeim sem hafa yfir
einhverjum lendum að ráða.
Þeir sem eiga garða og lóðir
kringum sumarhús
þurfa yfirleitt að fjár-
festa í sláttuvélum
og orfum sem henta
landareigninni en
einnig er hægt að
leigja slík tæki hjá
áhaldaleigum. Hjá
Byko kostar leiga á
bensínsláttuvél 2.068
kr. fyrsta daginn (hálfur
dagur er helmingi ódýrari)
en verðið lækkar um helming
næsta dag og er 1.034 kr. á dag
eftir það. Orf kostar 2.486 kr.
fyrsta daginn og 1.243 kr. upp
frá því. Í Húsasmiðjunni kostar
leiga á bensínvél 1.190 kr. án
poka á dag og 1.590 kr. með
poka og það verð helst óbreytt
en orf eru á 1.800 kr. á dag. Á
báðum stöðum miðast vikan við
fimm daga verð.
Bæjar-
stjórn Vest-
mannaeyja-
bæjar hefur
samþykkt að selja hluta af fast-
eignum bæjarins til eignarhalds-
félagsins Fasteign hf. Líka var
samþykkt að verja hluta af sölu-
andvirði eignanna til hlutafjár-
kaupa í Fasteign hf. Fasteign hf.
er í eigu Íslandsbanka, Reykja-
nesbæjar og fleiri félaga. Fast-
eignirnar sem nú á að selja eru
félagsheimilin, safnahúsið,
grunnskólarnir og listaskólinn
og er söluandvirði þessara eigna
um 1.200 milljónir króna. Vest-
mannaeyjabær hefur einnig
samið við Fasteign hf. að leigja
húsin aftur undir þá starf-
semi sem er þar núna. Sá
samningur er til 30 ára.
Liggur í loftinu
Í fasteignum
Útimálning vinsælust á sumrin:
Ljósir litir endast betur Litir sem vinsælir eru innandyra eru grágrænt,jarðbrúnt og út í appelsínugult. Fólk tekur þá
yfirleitt bara sterkan lit á einn vegg að sögn
Valdimars.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Valdimar Gunnar Sigurðsson hjá Slippfélaginu Litalandi hvetur fólk til að mála hús að
utan frekar í ljósum litum því þeir veðrast betur.
hus@frettabladid.is