Tíminn - 09.06.1973, Side 7
Laugardagur 9. júni 1973.
TÍMINN
7
mín komin heim,
i Júlíana
þegar hún heimsótti
r ■ •
var klædd íslenzkri
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Islenzks markaðar hf. síðan 1. janúar 1971. Jón er fæddur i Ólafsvík
og stundaði verzlunarnám i Reykjavik og siðar i Bretlandi. Hann starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum,
áður en hann gerðist Framkvæmdastjóri tsl. markaðar hf. Jón starfaði hjá Verzlunar og þróunarstofn-
un SÞ, UNCTAD og hjá ICT, sem rekin er sameiginlega af Gatt og Sameinuðu þjóðunum.
með ferðum manna inn i landið.
Þetta eru að lengmestu leyti
venjulegir ferðamenn, sem vita
oftast litið um land og þjóð. Það
virðistkoma flatt upp á þá flesta,
að hér skuli vera glæsileg verzlun
með miklu úrvali af sérstæðum,
þjóðlegum varningi og tizku-
vörum, sem hugur og hönd hefur
búið úr innlendum, oft sjald-
fengnum hráefnum. Mér virðist
að menn kaupi mest til eigin
þarfa, bæði flikur og matvörur.
Þeir kaupa sér kannski hand-
prjónaðar peysur úr lopa og
islenzkt lambakjöt i sunnudags-
matinn, osta og kaviar, en svo eru
það aðrir, sem kaupa gjafir eða
vörur, sem oft eru ætlaðar til
gjafa eins og skartgripi og
keramik, svo eitthvað sé talið
upp. Lika kemur það fyrir að við
erum spurðir um íslendinga-
sögurnar, um Njálu og um
kennslubækur á islenzku. Þess
vegna reynum við að hafa á boð-
stólum þær fornsögur, sem fáan-
legar eru á erlendum málum i
pappirskiljum.
Heimsfrægt fólk meðal
viðskiptavina
Viðskiptamenn okkar eru frá
öllum heimshlutum. Það er
óþarft að leyna þvi, að það hefur
mikið að segja fyrir framleiðslu
okkar að svo er. Hver einasti
viðskiptavinur, sem kaupir hér
muni, kynnir Island erlendis á
sinn hátt. Þess vegna er það
mikið atriði, að vandað sé til
framleiðslunnar ogaðaðeins séu
úrvals vörur á boðstólnum.
Algengast er að ferðamaður
verzli fyrir 20-200 dollara, en
siöarnefnda verðið er á mokka-
kápunum, sem hér eru mikið
seldar. Það má geta þess að
þegar Júlianna Hollands-
drottning kom hér við á dögunum
á leiðsinnii einkaþotu yfir hafið,
þá tókum við eftir að hún var i is-
•lenzkri mokkakápu. Drottningin
kom og skoðaði sig um i verzlun-
inni og hafði orð á þvi þegar hún
sá kápurnar okkar, að nú væri
„sin kápa komin heim.”
Drottningin dáðist mjög að is-
lenzku vörunum og þegar hún
kvaddi færðum við- henni að gjöf
handprjónað sjal úr þellopa og
litla silfurnælu i fornum stil.
Mikið er um að heimsfrægt fólk
komi i verzlun okkar og meðal
„fastra” viðskiptavina eru ýmsir
frægir leikarar og skemmtikraft-
ar. Nixon og Pompidou komu þvi
miður ekki til að verzla hjá okkur,
en blaðamennirnir, sem fylgdu
þeim, hreinsuðu bókstaflega allar
matvörur úr búðinni, svo við urð-
um að fá aukasendingu i einum
hvelli.
Starfslið og fram-
leiðendur
Hjá Islenzkum markaði h.f.
starfa þegar flest er um 46
manns. Við fjölgum yfir sumar-
mánuðina, þegar mest er að gera
og flugumferðin er i hámarki.
Arið 1972 komust um 90 manns á
launaskrá hjá okkur.
Við gerum ákveðnar sérkröfur
til þeirra, sem hér vinna. Krafizt
er almennrar menntunar og
góðrar tungumálakunnáttu . Hér
eru töluð Norðurlandamálin,
enska, þýzka og franska. Einnig
þarf starfsfólkið að hafa hæfileika
til að umgangast fólk af ólikum
þjóðernum. Ég er mjög ánægður
með starfsliðið hér. Þetta er úr-
valsfólk og gæti ekki verið betra.
Starfsmenn búa svo til allir hér i
nágrenninu, i Keflavik og á
Suðurnesjum. Starfsþjálfun fer
að mestu fram hér i verzluninni.
Heimsóknir framleiðenda eru
tiðar og þær eru mjög mikils
virði. Þeir kynna fólkinu nýjar
vörur, og jafnframt fá fram-
leiðendur oft dýrmætar upp-
lýsingar um óskir viðskiptavin-
anna frá starfsfólkinu hér og ég
veit dæmi þess,að fjöldafram-
leiddar hafa verið vörutegundir,
að undirlagi starfsmanna Isl.
markaðar h.f. sem siðan seldust
með afbrigðum vel.
Póstverzlun og kynn-
ingarrit. 25.000 adressur
Einn veigamesti liðurinn i
starfsemi okkar er póstverzlun.
Við sendum vörur i pósti út um
allan heim.
Strax i upphafi var gert ráð
fyrir þessari verzlun. Undir-
búningur undir slika verzlun
tekur hins vegar mörg ár. Það
þarf að prenta bæklinga
(catalouge) og pöntunar-lista og
það þarf að koma sér upp
adressum, en svo nefnast við-
skiptavinirnir þar. Þegar ég kom
til starfa höfðum við auðvitað
engar adressur. Nú höfum við
hins vegar 25.000 adressur.
Adressurnar fáum við með
ýmsu móti. Menn skilja eftir
nafnið sitt hér i búðinni og biðja
um að fá senda pöntunarlista i
haust, þegar nýjar vörur koma.
Framleiðendur fá fyrirspurnir og
við sendum myndalista. Þannig
hefur safn okkar farið vaxandi og
við höfum þegar sent um 6000
pantanir til útlanda fyrir um 13
milljónir króna. Við höfum ekki
hagnazt af þessu enn sem komið
er, en að þvi kemur, að þetta
verður arðbær verzlun.
Pöntunarlisti i 100.000
eintökum
Pöntunarlisti okkar er lit-
prentaður i 100.000 eintökum. 3.
útgáfa kemur i haust. Hann hefur
hlotið viðurkenningu erlendis,-
bæði er hans getið vinsamlega i
Catalouge of Catalougesog siöast
en ekki sizt i Family Circle, þar
sem birzt hefur mjög lofsamleg
grein um myndlista okkar. Enn-
fremur höfum við haft söluher-
ferðir. t.d. Santa service, en það
eru ,gjafasendingar frá sjálfum
jólasveininum, sem almennt er
talið að búi á Islandi. Erlendum
mönnum þykir af þvi nokkur
fengur, að fá senda jólagjöfina
sina frá Islandi.
Útgáfa litprentaðra bæklinga
er mjög timafrek og kostnaðar-
söm. Við dreifum bæklingi okkar
um allan heim. Við sendum hann
á adressur og honum er dreift
eftir öðrum leiðum. íslenzku
sendiráðin nota bækling okkar
mikið við kynningu á landinu og
það sama gera ýmsir aðrir aðilar,
sem erlendis starfa. Sú útgáfa, er
nú er unnið að, kostar 3-4 mill-
jónir króna.
Gjaldeyrisöflun tsl.
inarkaðar hf.
Það er rétt að minnast þess hér,
að nær allar okkar vörur eru
borgaðar með gjaldeyri. Þegar
gjaldeyrisskil ferðamálaiðnaðar-
ins eru skoðuð, kemur i ljós að við
erum þriðji hæsti aðilinn af þeim
er afla gjaldeyris (netto).
Komum næst á eftir stóru flug-
félögunum tveim og skiluðum við
bönkunum um 84 milljónum
króna árið 1972. Þetta er þeim
mun meira, þegar þess er gætt,
að okkar vörur eru svo til allar
unnar úr innlendum hráefnum,
svo gjaldeyrisnotkun við fram-
leiðslu þeirra er hverfandi litil.
Vörur frá 137 framleið-
enduin.
Eins og áður hefur komið hér
fram, voru það framleiðendur
iðnaðarvöru, er stofnuðu
tslenzkan markað hf. Nokkur
er hið mikla kynningarstarf, sem Islenzkur
isl. markaður byggði
verzlunarhús
tslenzkur markaður hf.
byrjaði með þvi aö reisa 600
fermetra verzlunarhús á
Keflavikurflugvelli i tengslum
við sjálfa flugstöövarbygging-
una. Þar er nú 465 fermetra
sölubúð, en auk þess skrif-
stofur og lager. Byrjað var að
reisa verzlunarhúsið 12. mai
1970 og var húsið tekiö i notkun
1. ágúst sama ár.
Bygging hússins tók óvenju
skamman tima. Undirstöður
eru steyptar, en sjálft húsið er
stálgrindarhús, en útveggir
eru úr gleri og timbri.
Verzlunarhúsið er hannað af
Teiknistofunni Ármúla 6, en
innréttingar eru teiknaðar af
Hákoni Hertervig, arkitekt
hjá teiknistofu SIS.
Um framkvæmdir sáu
Keflavikurverktakar, en yfir-
umsjón með smiði.hússins af
hálfu Isl. markaðar hf„ hafði
Svavar Jónatansson, verk-
fræðingur.
Þessir aðilar unnu mikið
afrek, þvi smiði hússins tók
raunverulega aðeins um 10
vikur, sem er mjög skammur
byggingatimi, en verkföll
töfðu fyrir verkinu. Húsið
hefur reynzt mjög hagkvæmt
og er i tengslum við „transit”
sal flugstöðvarinnar og við
Frihafnarsvæðið.
Sjálf verzlunin var skipu-
lögð með sölu og kynningu i
deildum, sem voru þessar,
lesendum til glöggvunar:
1) Ullar og skinnavörur
2) Tilbúinn fatnaður.
3) Keramik.
4) Skartgripir.
5) Kort, myndir og bækur.
6) Matvörur og sælgæti.
7) Útstillingar.
8) Húsgögn og húðir.
9) Loðskinn.
Þetta gefur nokkrar upplýs-
ingar um starfsemina.
Gott samstarf —
aukiö hlutafé —
Það sem einkum verður að
teljast markvert, er hið mikla
kynningarstarf, sm lslenzkur
markaður hefur unnið á
islenzkum iðna-rvörum og svo
svo hitt, hve vel allt samstarf
hefur tekizt. Við stofnun þessa
fyrirtækis er i rauninni farið
inn á nýjar brautir. Fyrirtæki,
sem höfðu litla eða enga sam-
vinnu áður, hafa nú gengið til
samstarfs og hafa sameinazt
um stofnun, sem likleg er til
að örva útflutning, til muna og
afla nýrra markaða fyrir is-
lenzkar iðnaðarvörur.
Hlutafé hefur nú verið aukið
i 10 milljónir króna. Stjórn
félagsins skipa nú þessir
menn:
Formaður, Oskar Gunnars-
son, framkvstj. Osta- og
smjörsölunnar, en aðrir i
stjórn eru: Pétur Pétursson,
Einar Eliasson, Jón Arnþórs-
son, Jón H. Bergs, Gerður
Hjörleifsdóttir og Guðjón Guð-
jónsson.
Mjög gott samstarf hefur
verið hjá stjórninni og áhugi
stjórnarmanna er mikill, segir
Jón Arnþórsson að lokum.
— JG
Jón Arnþórsson, sölustjóri utfl.
hjá Iðnaðardeild SiS. Stjórnar-
maður isl. markaðar frá upphafi.