Tíminn - 09.06.1973, Page 11
Laugardagur 9. júni 1973.
TÍMINN
11
Landsbankinn
á Akranesi í
í nýju húsi
Heildarvelta útibús Landsbankans á
Akranesi 8.000 milljónir. Hefur
fjórfaldazt á átta árum
Landsbankaútibúið á
Akranesi flutti í nýtt
húsnæði i gær og var gest-
um boðið til að skoða húsa-
kynni og starfsemi bankans
síðastliðinn fimmtudag.
Þar voru viðstaddir, auk
bankastjóra aðalbanka
Landsbankans og ýmissa
forráðamanna hans, ýmsir
þeir er unnið höfðu að smíði
hússins.
1 ræðu, sem Björgvin Vil-
mundarson bankastjóri flutti við
þetta tækifæri, sagði hann meöal
annars á þessa leið:
Björgvin Vilmundarson, banka-
stjóri flytur ræðu við opnun
Landsbankaútibúsins á Akranesi.
Ræða bankastjórans
Svo sem kunnugt er hóf Lands-
bankinn rekstur útibús á Akra-
nesi með yfirtöku Sparisjóðs
Akraness 31. október 1964. Starf-
semi útibúsins hefur aukizt jafnt
og þétt með hverju ári sem liður
og var heildarvelta útibúsins 8
milljarðar kr. á árinu 1972 og
hafði hún þá aukizt um 22% frá
árinu áður og fjórfaldazt á þvi 8
ára timabili, sem liðið er frá þvi
að Landsbankinn yfirtók starf-
semi Sparisjóðs Akraness. Þaö
var ljóst frá upphafi, að hinn öri
vöxtur i starfsemi útibúsins
krafðist bættra húsakynna og
aukins húsakosts. 1 lok september
árið 1970 var hafizt handa viö
byggingu þessa húss og þvi valinn
staður við hliö gamla bankahúss-
ins við Akratorg.
Ég hef ekki hugsað mér að lýsa
þessum glæsilegu húsakynnum,
þar sem flestir þeirra, sem hér
eru viðstaddir hafa á einn eða
annan hátt átt þátt i þvi að
byggingin yrði til.
Ég vil þakka arkitektum,
verktökum og verkafólki, sem
hér hefur starfað fyrir vel unnin
störf.
Ég býð leigjendum okkar hjá
bæjarfógetaembættinu vel-
komna. Ég óska útibússtjóranum
Sveini Eliassyni, og starfsliði
hans, til hamingju með þessi
glæsilegu húsakynni, sem nú
verða tekin i notkun.
Ég leyfi mér að vona^að bætt
starfsaðstaða og aukinn húsa-
kostur útibúsins verði viðskipta-
mönnum þess til hagræðis og að
okkur reynist unnt, að bæta þjón-
ustuna við þá, við bætt starfsskil-
yrði.
Landsbankinn á Akranesi
nýja húsiö
Bygging þessa nýja húss hófst i
lok september 1970. Hér er um að
ræða þriggja hæða steinhús með
kjallara. Grunnflötur fyrstu hæð-
ar er rúml. 300 ferm. heildar-
flatarmál 1.300 ferm. og alls er
húsið ruml. 4.000 rúmmetrar.
TAIKO T 805
I stereo
E segul
bands
I tæki
í bílinn
fyrir
ferða-
lagið
L Á
ARMULA 7 - SIMI 84450
Óskum eftir að ráða strax.
enskan einkaritara
til starfa við stærsta innflutningsfyrirtæki
landsins. Þarf helzt að geta hraðritað.
íslenzkukunnátta ekki nauðsynleg.
Vinsamlegast leggið inn nafn og
simanúmer til blaðsins fyrir 15. júni n.k.
merkt 1938. — Þagmælsku heitið.
Starfsfólk Landsbankans á Akranesi, ásamt bankastjóranum
Afgreiðslusalur bankans og öll
vinnuaöstaða er á fyrstu hæð
hússins, auk tveggja bókhalds-
herbergja og kaffistofu starfs-
fólksins á annarri hæð.
t kjallara -eru verðmæta-
geymslur bankans, rammger
hvelfing með öryggishólfum til
afnota fyrir viðskiptamenn svo og
almennar geymslur og herbergi
fyrir hita- og loftræstitæki.
Bæ j a r f ógeta skr i f sto f a n
flytur
A annarri hæð er auk þess sem
áður er nefnt, um 200 ferm rými,
sem fyrirhugað er að bæjar-
fógetaembættið á Akranesi flytji
i.
A þriðju hæð er ibúð útibús-
stjóra, gistiaðstaða fyrir aðkom-
andi starfsmenn og um 70 ferm.
skrifstofurými.
Teikningar og aðalumsjón með
byggingunni annaðist Arkitekta-
stofan s.f., Ormar Þór Guð-
mundsson og Ornólfur Hall, arki-
tektar F.A.Í.
Af hálfu Arkitektastofunnar s.f.
hafði Gunnar G. Einarsson
innanhússarkitekt umsjón með
innréttingum hússins.
Listskreytingu úti og inni gerði
Snorri Sveinn Friðriksson.
Hönnun burðarvirkja og hita-
loftræsi og hreinlætislagna, svo
og daglegt eftirlit annaðist Njörð-
ur Tryggvason verkfræðingur,
Vérkfræði- og teiknistofunni s.f.
Akranesi.
Teikningar raflagna gerði
Magnús Oddsson, tæknifræðing-
ur.
Af hálfu Landsbankans var
stjórnun framkvæmda á höndum
skipulagsdeildar bankans.
Verktakar og meistarar voru:
Verktaki að fokheldu húsi:
Trésmiðja Guðmundar
Magnússonar.
Húsameistari hússins:
Narfi Sigurþórsson, múrara-
meistari.
Auk þess vann fjöldi iðnaðar-
manna og iðnfyrirtækja á Akra-
nesi að smiði hússins, sem er
mjög vönduð.
J.G.
Gólfdúkur
Hollenzk og amerísk gæðavara
Fagmenn á staðnum.
I
jlaver
Grensásvegi