Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 29
Laugardagur 9. júni 1973.
TÍMINN
29
AAarilyn Monroe fannst nakin í rúmi sínu, með
höndina kreppta um símtólið, kl. 3,30 f.h.
á sunnudegi í ágúst
Marilyn og J.F.K.
Bók eftir Norman AAailer, sem
mun koma öllum til að blöskra
NOHMA JEAN BAKER, sem
liaffti hafizt upp af engu til þess aö
verða mesta kyntákn eftirstriös-
áranna, var dáin.
Á dánarvottorði frá lögreglunni
stóð, að dánarorsökin hafi verið
„liklega sjálfsmorö” og
krufningsskýrsla sýndi, að hún
hafi tekið of stóran skammt af
barbiturtöflum.
í margar vikur gekk ekki á öðru
en feikna heilabrotum um raun-
verulega orsök að dauða Marilyn
og um kringumstæðurnar.
Núna, meira en áratug seinna,
er þetta aftur orðið eitt mesta
hitamál i blaðaheiminum.
Norman Mailer, ákafasti kross-
ferðarriddari Ameriku, vakti
þessar nýju ritdeilur, en hann
hefur hingað til verið meir
kenndur við pólitisk mál, en
málefni skemmtanaiðnaðarins.
En nýjasta verk Mailers þessa
og það, sem öruggt er, að muni
gera hann að einum af mest um-
töluðu mönnum i heiminum, er
95.000 orða ritgerð, sem nefnist
„Marilyn Monroe — þjóðsögnin
og sannleikurinn”.
Hann er sagður hafa heillazt
svo af verkefni sinu, að einn vinur
hans hefur látið þau orð falla, að
hann sé orðinn ástfanginn af
minningu Marilynar.
En eftir þvi, sem sagt er i New
York, hefur Mailer gert meira en
það. Hann hefur kannað tvær
óvæntar kenningar um siðustu
ævidaga Marilynar.
Sú fyrri er, að aðdáandi hennar
og elskhugi i Kennedyættinnin
hafa ekki verið Robert Kennedy,
eins og margir höfðu getað sér til,
heldur bróðir hans, Jack, þáver-
andi forseti Bandarikjanna.
Seinni kenningin hljóðar svo, að
dauði Marilynar kunni eftir allt
saman ekki að vera af völdum
sjálfsmorðs, heldur hafi hún verið
myrt af launmorðingjum i undar-
legu samsæri.
Heimildir herma, að dauði
hennar kunni að hafa fylgt á eftir
ótrúlegum kafla atburða, þar sem
Marilyn hafi verið notuð af mönn-
um, hliðhollum erlendu veldi.
Þeir hafi komizt að ástarævintýri
hennar og forsetans, og að þeir
hafi gert sér fulla grein fyrir
þeirri geysilegu klipu, sem hótun
um uppljóstrun gæti komið Hvita
húsinu i.
Sagan segir, að Bobby Kenn-
edy, sem þá var rikissaksóknari,
hafi einnig heyrt um, að Marilyn
væri óvitað flækt i málið.
Hann heimsótti hana jafnvel
skömmu fyrir dauða hennar og
talaði um fyrir henni, þar sem
hann varaði hana við hættunni af
minnstu óvarkárni, sem hún
kynni að hafa i frammi við vini
sina.
En aðrir aðilar innan
leyniþjónustunnar höfðu einnig
heyrt um bendingu i þessa átt.
öryggi forsetans
Og þar sem öryggi forsetans og
þjóðarinnar var i veði, nægðu
þeim ekki fortölur.
Það er gefið i skyn, að dauða
Marilynar hafi verið komið i
kring svo litið bar á og með
góðum árangri seint á laugar-
dagskvöldið þriðja ágúst, þegar
hún kom ekki i pókerboð til Peter
Lawford.
Vafalaust hefur Mailer hugleitt
lengi möguleikana á þessum
kenningum. Reyndar segir einka-
ritari hans : „Hann er ennþá að
endurskoða lokauppkastið að
handriti sinu”.
Það eru vissulega þættir i
Monroe-skýrslunni, sem benda til
að Marilyn kunni ekki að hafa átt
sök á dauða sinum.
Það hefði ekki verið erfitt fyrir
náinn vin, sem hún hafði reynt að
þvi að vera ráðhollan, að koma
dauða hennar þannig fyrir, að
hann liti út sem sjálfsmorð. Það
var vitað að hún átti vanda til að
nota svefnpillur vegna þess, hve
hún var þunglynd.
Þegar hjúkrunarkona Marilyn-
ar fann hana um siðir látna, var
siminn ekki á, en hönd hennar
krepptist utan um hann. Það
hefurverið ætlað, að siðasta sim-
talið hafi verið við Peter Law-
ford.
Samkvæmt bók eftir dálka-
höfundinn, Earl Wilson, sagði
Marilyn: „Skilaðu kveðju til Pat,
skilaðu kveðju til forsetans og ég
bið að heilsa þér sjálfum þvi að þú
ert viðkunnanlgur náungi.
Lawford brá við þessi tiðindi,
vildi fara strax heim til hennar,
en umboðsmaður hans, Milt Ebb-
ins, dró úr honum kjark til þess og
bar þvi við, að hann væri mágur
forseta Bandarikjanna og að kon-
an hans væri að heiman. „Láttu
mig hafa samband við lögfræðing
hennar eða lækni,” sagði
Ebbings.
Var simtalið við Lawford i raun
og veru hið siðasta? Nuddlæknir
hennar, Ralph Roberts, telur af
og frá, að um verkun af of mörg-
um svefnpillum hafi verið að
ræða. Eftir á sagði hann, aö
kona,sem hafi talað mjög undar-
lega, hafi hringt i simastúlku
hans þetta kvöld.
Hann hélt, að það hafi verið
Marilyn.
Fjörráð
Annar maður , sem var
trúnaðarvinur hennar, sagðist
lika hafa talað við hana og hélt
þvi fram, að hún hafi verið að
reyna aö ná sambandi við þjóð-
fræga persónu af viðkunnri ætt,
rétt áður en hún dó.
Var hún að reyna af öllum
mætti að segja Bobby Kennedy —
eða jafnvel forsetanum — frá
banatilræði við sig?
Það var yitað, að hún var náin
vinkona Bobby. Hún hafði komizt
i kunningsskap við Kennedy-fólk-
ið vegna vináttu sinnar við Law-
ford.
Hver var aðdáandinn
En var hin raunverulega vin-
átta bundin Bobby? Margir
halda, að svo hafi ekki verið.
Heldur hafi hennar raunverulegi
og langtum varkárari aðdáandi
verið forsetinn sjálfur.
Henni var boðið til að syngja
„Happy birthday” i
afmælisveizlu John F. Kennedy i
Marlyn Monroe. Fórnarlamb
pólitisks samsæris?
Madison Square Garden 1962,.og
lék svo hlýlega, að einn viðstadd-
ur lýsti söngnum svo, að hann
hafi verið eins og faðmlag.
Kennedy sagði á eftir: „Nú get
Jackie Kenncdy. Var forsetinn
leynilegur elskhugi hennar?
ég dregið mig i hlé frá stjórnmál-
um, eftir að „Happy birthday”
hefur verið sungið fyrir mig af
svona indælli stúlku.
Framhald á bls. 39.
Électronic
Strauvél sem pressar einnig. Búin fullkomnustu
svissneskri tækni. ■ Rafeindarofi hindrar t. d. að þvott-
ur sviðni þótt gleymist að opna pressuna. ■ Einangrun á
jöðrum pressujárnsins fyrirbyggir að þér brennið fing-
urna. BHún er fyrirferðarlítil, létt og auðveld í flutningi,
svo fleiri fjölskyldur geti átt hana saman, ef þær vilja.
Fljótvirk er hún. Hve fljótvirk er betra að sýna yður, en
segja. Kvíðið engu þótt Elnapress Electronic kosti sitt.
Greiðsluskilmálar okkar hjálpa í því efni. Þér getið
gengið að Elnapress Electronic í verzlunum okkar í
Austurstræti og Glæsibæ, skoðað hana og reynt.
JUUeUZUdL
Pat Newcomb. Er skoöun hennar
hin rétta?
Norman Mailer. Maöurinn, sem
leitar að svari.