Tíminn - 09.06.1973, Page 39
Laugardagur 9. júni 1973.
TIMINN
39
0 Nashyrningur
um það: illt var að vera
vakin, þegar sólin var í há-
degisstað!
Það leið góð stund, unz
myndatökumennirnir
þorðu að fara ofan úr
trjánum, og blökkumenn-
irnir komu eki ofan á
jörðina fyrr en Smitt
ógnaði þeim með öllu því
versta, sem yfir þá gæti
komið. Svo var þá dótið tínt
saman og haldið af stað
hljóðlega, en í mesta
skyndi. Þeir kærðu sig ekki
um það, hvort sem þeir
voru hvítir eða svartir, að
bíða þess, að nashyrnan
kæmi öðru sinni á vett-
vang.
® EBE-húsið
vantar alveg listaverk á þá!
Þegar heitt er i vehri, er húsiö
bókstaflega eins og baðstofa og
svo hlaðið statísku rafmagni, að
allt slær gneistum, sem við er
snert.
Borg i borginni
Berlaymont er borg i borginni.
Þar eru sérstakir bilskúrar á
tveimur hæðum neðanjarðar,
sérstök verzlun, þar sem starfs-
fólk getur keypt allt milli himins
og jarðar, og auk þess veitinga-
staðir, sem bæði hvað varðar
gæði og verð, eru með beztu mat-
sölustöðum i Brussel.
Eins og i SÞ-húsinu i New York
er þarna eins konar sameiginleg
kapella fyrir öll trúarbrögð.
Tveimur hæðum undir jörðinni
er sérstök járnbrautarstöð fyrir
Berleymont, i tengslum við járn-
brautarkerfi borgarinnar. Þarna
eru sérstök stéttarfélög, sérstök
lögregla og fleira, alls ótengt þvi
belgiska. t rauninni starfar fólk
þarna i sérstökum heimi og þarf
litið sem ekkert að sækja út fyrir
hann. SB—
0 Marilyn
Earl Wilson segir, að Marilyn
hafi stolizt út, kvöld eitt i New
York, til fundar forsetann, en
honum leið þá illa i bakinu.
„Marilyn átti einn trúnaðarvin
— mann, sem hafði ekki áhuga á
stúlkum,” segir Wilson
. „Hún gat sagt honum, hvað sem
var. Morguninn eftir flissaði hún
dálitiö, þegar hún ræddi gætilega
um siöastliðið kvöld. Vinur
hennar sagði svo aftur mér.”
„Ég held, að ég hafi látið
honum liða betur i bakinu,”sagði
hún.
Einn náinn vinur Marilynar,
sem Mailer talaði viö, var Pat
Newcomb, auglýsingaumboðs-
maður hennar.
Pat hvarf til heimilis
Kennedyanna og Hyannisport
strax eftir þennan harmleik og
hélt siðan i ferð til Evrópu.
Hún neitaöi þeim getgátum hjá
blöðunum, að hún hafi veriö
: „keypt i burtu” til þess að forðast
klaufalega frásögn um siðustu
myndirnar i lifi stjörnunnar.
Pat sagði: „Mailer hitti aldrei
Marilyn. Þessi bók er ekki ævi-
saga, heldur hugdetta, sem hann
fékk við aö tala við vini hennar.
„Við töluöum um Marilyn sem
persónu og dálitið um siðustu
dagana i lifi hennar. Hann spurði
mig, hvort þetta hafi veriö slysa-
tilfelli eða sjálfsmorð af yfirlögðu
ráði.
Min skoðun er, að það hafi verið
j slysatilfelli”.
Sðurningar
Hinn brezki útgefandi Mailers
talaði nýlega um hinar mörgu
spurningar, sem væri ósvarað i
sambandi vjð dauða Marilyn
Monroe.
Michael Attenborough, hinn nýi
tramkvæmdastjóri Hodder &
Stoughton, sem borgaði meira en
30.000 pund fyrir útgáfuréttinn að
bókinni i Bretlandi, og
Samveldinu,sagði: „Mailer lætur
sér detta i hug, að dauði hennar
gæti hafa verið morð.
Hún þekkti vissulega J.F.K.
dável og það eru getgátur um, að
sambandiö gæti hafa verið nán-
ara en vináttan einber.”
Bókin verður gefio út i haust.
~c*.
m
S -r* A
r /
V "t
: *• »
§
Röntgendeild
Borgarspítalans
Aðstoðarlæknar
2 stöður aðstoðarlækna við Röntgen-
deild Borgarspitalans eru lausar nú
þegar, eða eftir samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykja-
vikur og Reykjavikurborgar.
Allar nánari upplýsingar um stöður þessar veitir
yfirlæknir Röntgendeildar Borgarspitalans.Ásmundur
Brekkan.
Reykjavik, 6. júni 1973.
Heilbrigðismálaráð
Reykjavikurborgar.
k
k
i
M
Í’S
§í
S>.7
Í
•y-'
v*>
ÞETTA FÁIÐ ÞÉR í SUNNUFERÐ
TIL MALLORCA
NÝTÍZKU ÍBÚÐIR
í PALMA, ARENAL OG MAGALUF,
ÞÆR BEZTU SEM HÆGT ER AÐ FÁ
Á MALLORCA
EIGIN SKRIFSTOFA SUNNU í PALMA
MEÐ ÍSLENZKU STARFSFÓLKI OG SÍMA
AÐSTOÐAR FARÞEGA SUNNU.
ÞJÓNUSTA SEM ENGIN ÖNNUR ÍSLENZK
FERÐASKRIFSTOFA VEITIR Á ERLENDRI GRUND
BEINT ÞOTUFLUG
BÁÐAR LEIÐIR
BROTTFARARDAGAR: 20. júni, 4. og 18. júli, 1., 8., 15., 22. og 29. ágúst,
5., 12., 19. og 26. september, 10. og 24. október.
ATHUGIÐ að upppantað er i margar ferðirnar og litið pláss eftir i flestum
hinna.
SUNNA annast orlofsferðir fyrir öll aðildarfélög Alþýðusambands Islands, Samband bankamanna og
Bandaiag starfsmanna rikis og bæja.
EFTIRSÓTTUSTU HÓTELIN.
HÓTEL SEM MARGIR ÍSLENDINGAR ÞEKKJA
AF EIGIN RAUN Í SUNNUFERÐUM, OG ENGIR
AÐRIR ÍSLENZKIR AÐILAR HAFA AÐGANG AÐ.
FERflASKBIFSTOFAN SUHNA BANKASTRJETI SlMAR 1640012070
FJÖLBREYTT SKEMMTANALÍF.
SKOÐUNARFERÐIR TIL ALSÍR, BARCELONA
OG FLEIRI STAÐA
FALLEGAR BAÐSTRANDIR
FYRIR SÓLDÝRKENDUR OG ÞÁ, SEM VILJA FÁ SÉR SUNDSPRETT
rOPIÐ
í kvöld til
kl. 20,30
— Annon í
Hvítasunnu
til kl. 01,00
_______