Tíminn - 04.08.1973, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Laugardagur 4. ágúst 1973.
Fótboltakarlar
Tip og Tap heita þessir fótbolta-
strákar, en þeir eru opinberir
verndarvængir heimsmeistara-
keppninnar i fótbolta, sem fram
á að fara i Vestur-Þýzkalandi
árið 1974. Þessir kátu karlar
verða til sölu um allan heim.
Þeir munu m.a. hanga á lykla-
kippum eða vera seldir sem
styttur og dúkkur. Stærðin verð-
ur misjöfn, eftir þvi til hvers
þeir verða ætlaðir, allt frá 2.5
cm 150 cm. Allir verða karlarnir
úr plasti, plusi, efnum ýmiss
konar eða málmi.
Atómraforkustöð
Allt er tilbúið til að fyrsti hluti
atómrafstöövar (440.000 kw),
sem verið er að byggja i ná-
grenni Múrmansk, verði tekinn
til notkunar. Mannvirki þetta er
hið stærsta sinnar tegundar i
Norður-Evrópu og með há-
spennulinu verður raforkuverið
tengtkerfinu, sem nær yfir Evr-
ópuhluta Sovétrikjanna.
★
Verksmiðjur loka
Stjórnin I Sovétlýðveldinu Azer-
badsjan hefur ákveðið að loka
oliuhreinsun og verksmiðju,
sem gefur frá sér mikinn reyk
og ryk. Bæði þessi fyrirtæki eru
I höfuðborg lýðveldisins Bakú.
Oliubryggjurnar i Bakú verða
lagðar niöur og nýjar koma i
1 stað þeirra og eru þær staðsett-
ar talsvert frá ibúðarhverfun-
um á austurodda Apsjaron-
skagans. Þar eiga tankbátarnir,
sem koma með oliu frá Túrk-
meniu og Kasakhstan, þvert yf-
ir Kaspiahafiö, að losa oliuna og
þar verður komið fyrir nýtizku
hreinsitækjum. 1 tílkynningu frá
Oliumálaráðuneyti Azerbajdsj-
an er lögð áherzla á, aö lokun-
inni og aðrar ráðstafanir muni
ekki hafa i för með sér skaða
fyrir framleiðsluna. Það gengur
hratt og vel að endurnýja oliu-
framleiðsluna og steinoliuiðn-
aðinn og það er- áætlaö, að helm-
ingur fyrirtækja haldi minnst
sömu framleiöslu og áöur. Allir
þeir, sem missa atvinnu, þegar
endurbæturnar fara fram, fá
aðra atvinnu með sömu launum
og áður.
★