Tíminn - 04.08.1973, Síða 11
Laugardagur 4. ágúst 1973.
TÍMINN
n
Svartbakager á Akranesi.
sézt örn i þrjátiu ár, þá muni hann
fara að drepast vestur við Breiða-
fjörð”.
— Það má ekki nota stryknin
lengur, sem var notað til að eitra
fyrir tófur. Það hélt varginum dá-
litið i skefjum, sérstaklega
hrafni. Nú hefur hann magnazt
upp, alveg geysilega, siðan hætt
var að nota stryknin, og auðvitað
svartbakurinn lika.
Nýja svæfingalyfið
reyndist ákaflega illa
Bændur hafa fengið nýtt
svæfingarlyf til að nota i varp-
löndunum, en Arni kvað óskapleg
mistök hafa orðið með það.
Stjórnskipuð nefnd, er átti að
hafa það hlutverk að stuðla að
viðgangi æðarvarps og fækkun á
vargfugli i varplöndum, hefði i
vetur gert tilraunir á Keldum
með nokkur svæfingarlyf og kom-
ið sér að lokum saman um eina
tegund, svonefnt tribrometano.
Voru sett ákvæði um, að þetta
lyf væri aðeins fáanlegt handa
varpeigendum til að setja i egg i
varplöndum. Hins vegar höfðu
tilraunirnar á Keldum leitt i ljós,
þar sem þeir höfðu svartbak i
búrum, að ekki gafst vel að setja
lyfiöiegg. Vildi fuglinn spilla nið-
ur úr eggunum, svo þeir hættu við
þá aðferð. Þá fundu þeir upp á þvi
að setja lyfið i „gelatin-hylki”
(matarlims-belgi), sem þeir sið-
an tróðu i loönu. Svartbakurinn át
siðan loðnuna, sofnaði og dó.
— Þeir virðast hafa haldið, að
allt væri I lagi að láta bændurna
fá lyfið til að setja eingöngu i egg,
enda þótt það hefði ekki blessazt i
tilraunum hjá þeim, sagði Árni.
— Siðan vorum við i æðarræktar-
félaginu búnir að skrifa varp-
bændum út um allt land og mæla
með þessu ágæta lyfi, sem væri
miklu hagkvæmara en það lyf
(fenemal), sem notað hefur verið
2-3 siðustu ár.
— Brátt fóru svo kvartanir að
berast frá bændum, sem keypt
höfðu þetta nýja lyf, sem var
miklu dýrara en fyrri lyf. Gafst
það mjög illa. Rannsóknanefndin
haföi sagt okkur, að þetta væri
mjög auðleysanlegt lyf. Hins veg-
ar kom það á daginn, að það
leystist alls ekki vel uppi eggi.
(Bændurnir setja duftið i eggið
meö þvi að brjóta gat á hlið þess).
Settist það yfirleitt á botn eggsins
eins og illa uppleystur sykur i
kaffibolla- Svartbakurinn drakk
svo bara eggið ofan af. Ég hitti að
visu bónda, sem sagðist hafa
hrært i fimm minúturi eggi, og þá
ekki orðið var við botnfall!
En....
„Þetta er ,,dóp”!
— Svo að reynslan af þessu nýja
lyfi var vægast sagt ákaflega lé-
leg almennt, sagði Arni. — Og
bændur mjög reiðir yfir þvi að
hafa verið gabbaðir til að kaupa
rándýrt lyf, sem gaf svo tak-
markaðan árangur. En varga-
gangur var mjög mikill i vor,
ýmist drukkið úr eggjum eða þau
hurfu. Hrafninn tók mörg. I ein-
staka tilfellum töldu bændur, að
vargurinn hefði fælzt varpið
Glava
glerullar-
hólkar
Hlýindinaf góðri
hitaeinangrun
vara lengur en
ánægjan af
"lágu'verði
Svartbaksungi: Er hann ■
vinalaus? Nei, ekki alveg.
vegna eitrunarinnar i eggjunum.
En sumir sögðu, að hann hefði
bara orðið brattari yfir og sótt
kannski enn þá gráðugar i þau, en
þetta er eins konar fiknilyf. Þetta
er „dóp”. —Stp
AUKIN AFKOST
MEÐ
Bifreiða-
viðgerðir
Fljótt og vel af hendi
leyst.
Reynið viðskiptin.
Bifreiðastillingin
Grensásvegi 11, simi
81330.
(Timamyndir: Gunnar).
VATNS-
HITA-
lagnir
og síminn er
2-67-48
Brotið er gat á eggið og svæfingarlyfinu, f duftformi, komið þannig inn f eggið. En það vili ekki leysast upp
Hundruð þúsund bænda um heim allan
hafa náð framúrskarandi árangri
með þessum heyvinnuvélum.
Þér getið einnig orðið
reynslunni rikari!
ÞORHF
REYKJAVIK SKOLAVOROUSTIG 25
TRAKTORAR
heldur scztá botninn.