Tíminn - 04.08.1973, Side 16
16
TÍMINÍV
ííáugardagur 4. ig’ú’st" 1973.
LlP-úraverksmiðjan
í Frakklandi er sú
elzta þar í landi.
Er nú alveg í
höndum starfs*
manna, eftir að
Starfsmennirnir
settu gjaldþrota fyrir
eigendurnir höfðu
lýst hana gjaldþrota
með milljóna halla.
Frakkland með
allar sínar blóðugu
byltingar að baki
fékk nú loks eina
mjög friðsama.
Er þetta fyrsta fyrir
tækið í Frakklandi,
sem algerlega
er í höndum starfs-
monna.
AAargt bendir til,
að fleiri fylgi
í kjölfarið.
Eigendurnir hafa
tilkynnt, að engin
óbyrgð fylgi
úrunum, sem nú
séu seld.
tæki aftur í gang
Á þingi Franska sósi-
alistaflokksins iGrenoble
fyrir skömmu mátti sjá
þingfulltrúa hópum
saman kaupa úr af gerð-
inni LIP, fá samnefndri
verksmiðju i bænum
Besan^on i Júrafjöllum i
Frakklandi, i grennd við
svissnesku landamærin
(eplin falla ekki langt
frá eikinni!). Að undan-
förnu hafa pantanir
streymt til verksmiðj-
unnar hvaðanæva úr
Frakklandi.
Hver er svo ástæöa fyrir þessari
velgengrii fyrirtækisins, sem fyrir
nokkru var lýst gjaldþrota? Jú,
hér er um stuðning fólks við nú-
verandi skipulag fyrirtækisins og
stjórn að ræða.
Þannig standa málin, að er eig-
endur LlP-verksmiðjunnar lýstu
sig gjaldþrota á dögunum, lokuðu
verksmiðjunni, lýstu yfir 360
milljón króna (isl.) halla og að
einn milljarð þyrfti til að koma
verksmiðjunni af stað, fóru
starfsmenn hennar, 1.300 að tölu,
á stúfana, tóku alla stjórnina i
sinar hendur og komu fyrirtækinu
af stað aftur! Þetta var friðsöm
bylting án lögregluafskipta (Fá-
gætt i Frakklandi, sé litið á sög-
una!). Starfsmennirnir settu
sjálfa sig i trúnaðarstöður, —
æðstu stjórn, stjórn framleiðslu
og sölu o.s.frv. Fyrirtækiö er nú
alveg i þeirra höndum.
LIP er elzta klukkuverksmiðja
Frakklands. Hafði fyrirtækið ætið
veriö rekið á mjög hefðbundin
hátt, en vegnað illa siðustu árin,
með fyrrgreindum afleiöingum.
Salan gengur nú mjög vel eins
og áður sagði. Fyrirtækið á nú
samúð allra ibúa Besancon og
almennings um allt Frakkland aö
þvi er virðist. Hin nýja stjórn
fyrirtækisins lagði hald á 65.000
úr og klukkur, er voru á lager.
Mun hún halda þessum birgðum
og selja þær smám saman, eftir
þvi sem eftirspurn krefst, á 42%
lægra verði en áður var á þessum
hlutum. Dagsframleiðslan er
2.000 úr og telur stjórn fyrirtækis-
ins söluna trygga.
Ekki er þó gott að segja, hver
framtið fyrirtækisins verður, en
þaö er algjörlega i höndum
starfsmanna sjálfra.
En af þessu kunna að skapast
mikil vandamál fyrir eigendurna
(m.a. vegna þess, að um 40%
hlutafjárins er i svissneskum
höndum), verkamenn og verka-
lýðsfélög, stéttarfélög og yfir-
völd. Forsætisráðherra Frakka,
Messmer, kveðst ætla að kanna
málið, en hann er vissulega i mik-
illi klemmu. Ihaldssemi er mikil
meðal franskra þingmanna, en
sjálf er franska þjóðin blóðheit og
„fljótað gripa”. Þannig er ekki ó-
liklegt, að fleiri starfsmenn
freisti þess að fara sömu leið og
þeirhjá LIP, og kynni þá að koma
til blóðugra átaka. Raunar bendir
margt til þess, að senn verði farið
sömu leið með vefnaðarvöru-
verksmiðju i Lorient, sem lokað
hefur verið vegna fjárhagsörðug-
leika.
Stjórnmálaflokkarnir i Frakk-
landi, ekki sizt sósialistar og
kommúnistar, dylja ekki samúð
sina með hinu „mannlega” i að-
gerðum LlP-manna. Starfsmenn-
irnir þrettán hundruð hefðu jú
ella búið við atvinnuleysi. En að
öðru leyti vita stjórnmálaflokk-
arnirekkienn, hvaða afstöðu þeir
eiga að taka. Það er því allt á
huldu með framtið fyrirtækisins.
Eigendurnir láta tal starfs-
mannanna um atvinnuleysi sem
vind um eyru þjóta, en lýsa yfir-
töku þeirra á fyrirtækinu full-
komlega ólöglega. Oralagernum
sé hreint og beint stolið. Kveða
þeir svo fast að orði að segja, að
þeir, sem kaupi LlP-úr og -klukk-
ur eftir umskiptin, geri sig seka
um þátttöku i glæp.
Margir eru þeir Frakkar, sem
þá hafa gerzt lagabrjótar aö und-
anförnu! Jafnvel þingmenn.
Hvað sem framtið LlP-fyrir-
tækisins liður og hver sem áhrif
þess verða á önnur fyrirtæki i
Frakklandi, er atvinnu 1.300
manns bjargað i bili a.m.k.
Grunnlaun hvers starfsmanns á
mánuði i LIP er nú 24 þúsund
krónur.
(Stp tók saman)
LARSEN VARÐ
AAEISTARI
DANSKI stórmeistarinn Bent Larsen tryggði sér sigur á Norður-
iandamótinu I skák í gær, með sigri sinum yfir finnska alþjóða-
meistaranum Heikke Westerinnen. t biðskák sinni gerði Larsen
jafntefli við landa sinn Jakobsen.
Larsen hlaut 9 vinninga á mótinu og tapaði engri skák. Það
voru Norðmennirnir Terje Vibe og Leif östgaard, sem urðu jafn-
ir i öðru sæti með átta vinninga hvor, eftir að hafa gert jafntefli i
siðustu umferðinni.
Lestur ©
en mér lá ekki neitt á, svo að ég
fór að tina steinana af veginum,
þar sem þeir voru öllum til
óþurftar. Þá fór ég, eins og óaf-
vitandi, að segja við sjálfan mig:
Sjálfsagt fækka mundu mein,
meira ljós af degi,
ef við tækum alltaf stein
annars manns úr vegi.
Vlsunni var „hnuplað” frá mér,
það er að segja, hún var lærð, og
hún lenti til Vilhjálms Þ. Gisla-
sonar, en veturinn eftir var hann
einmitt að tala um alþýðukveð-
skap f útvarpinu. Hann brýndi þá
oft fyrir mönnum að leggja þetta
ekki á hilluna, af þvi að það sýndi
svo vel hugsunarhátt þjóðarinnar
á hverjum tima. Hann fór svo
með þessa visu mlna, lauk á hana
lofsorði, og sagði um hana og
tvær aðrar, sem hann fór með, að
ef til vill hlustuðu höfundar þeirra
á sig, og ef til vill væru þeir dánir.
Hann vissi ekki hvort var, en
visurnar vildi hann að geymdust.
Það gerðist lika einu sinni, að
ég heyrði Laufeyju Valdimars-
dóttur tala I útvarp um starfsemi
Mæörastyrksnefndar. Þá varð til
hjá mér kvæðiskorn. Það endar á
þessum linum:
Guð hefur allt af vilja veitt
og vist er hann öllum góður.
Þó gefur hann ekkert og engum
neitt
eins ágætt og göfuga móður.
— Þú sagðir áðan, að þú hefðir
verið að fást við yrkingar allt
fram á þennan dag. Kanntu ekki
eitthvað frá þessum efri árum?
— Getur verið. Þegar ég varð
sjötugur, orti ég visu sem hljóðar
svo:
Heltist ég til hlaupanna.
Hvert eitt brek er farið.
Legg ég þá upp laupana
og lóna i næsta varið.
Með þessari ferhendu ljúkum
við Jón Sigurðsson spjallinu. Ég
stend upp, kveð gamla manninn
og þakka honum stundina.
-VS.
Rannsókn í Skotlandi:
68% sóknarpresta óttu við
geðræn vandamól að stríða
Nýlega fréttist um athyglis-
verða rannsókn, sem gerð hafði
veriðinnan skozku kirkjunnar, og
sem búast má við, að valdi miklu
fjaðrafoki i Skotlandi.
Þessi rannsókn beindist að and-
legri og likamlegri heilbrigði
presta kirkjunnar. Athyglisverð-
asta niðurstaðan var sú, að rúm-
lega tveir þriðju hlutar þeirra
presta kirkjunnar, sem þátt tóku i
rannsókninni, hafa átt við geðræn
vandamál að striða frá þvi þeir
voru vigðir til prests.
Að sögn brezka blaðsins Sunday
Times var rannsókn þessi
framkvæmd af Dr. Hugh Eadie,
sem er sjálfur prestvigður, en
starfar fyrst og fremst að
rannsóknarstörfum. Voru 85
prestar skozku kirkjunnar i þvi
úrtaki, sem rannsakað var og
sem átti að sýna þverskurð af
þeim 1827 sóknarprestum, sem
starfa á vegum kirkjunnar.
Jafnframt hafði Dr. Eadie að-
gang að læknaskýrslum um þessa
sóknarpresta.
Niðurstaða rannsóknarinnar
varð sú, að þótt likamleg heilsa
prestanna væri yfirleitt betri en
almennt gerist, þá höfðu 68% átt
við einhvers konar geðræn
vandamál að etja slðan þeir voru
vlgðir. Meðal þeirra presta, sem
voru 45 ára eða eldri, var þessi
tala enn hærri, eða 75%. Veruleg-
ur hluti, eða 18% höfðu fengið
taugaáfall, en 15% höfðu átt við
enn alvarlegri geðræn vandamál
að striða.
Um orsakir þessara vandræða
segir i skýrslu um rannsóknina,
að þær séu fyrst og fremst miklar
og stöðugar kröfur, sem gerðar
eru til sóknarprestanna, og hið al-
menna sinnuleysi sóknarbarn-
anna. Prestarnir tækju þessi
vandamál nærri sér, og
sannfærðust oft um það, að orsök
þeirra væri mistök hjá þeim sjálf-
um. Þessi tilfinning sektar og
ófullkomnunar væri ein megin-
orsök þeirra geðrænu vanda-
mála, sem skozku sóknar-
prestarnir ættu við að striða. —
EJ.
HELGI Jónsson (Flugskóli Helga Jónssonar) hefur nýlega fengiö nýja fjögurra sæta flugvél af gerðinni
Piper Cherokee 180. Véfin verður notuð tii leigu-, kennslu- og æfingaflugs. Þetta er fimmta vél Helga og
á myndinni er það hann sjálfur, sem stendur við nef hennar. —Tímamynd: Gunnar.
Ný vél til Flugskóla Helga