Fréttablaðið - 12.08.2004, Page 62
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Viktoría Áskelsdóttir.
801 milljón.
Valur.
Takk fyrir stuðninginn
„Mér líður miklu betur en ég hefði
búist við,“ segir Árni Valdimar
Bernhöft en hann hefur nú í heila
viku eingöngu borðað á Boozt
barnum í Kringlunni. „Ég er
kraftmeiri og léttari en áður en ég
byrjaði að borða bara Boozt og
þetta er alveg magnað. Annað
hvort er líðanin svona góð vegna
þess að ég hef hvorki borðað rusl-
fæði né drukkið kók eða vegna
þess að Booztið er einfaldlega
svona hollt fyrir rmann.“
Árni borðar lágmark þrjú
Boozt á dag. „Ég hef farið alveg
upp í sex og svo fylgja speltbrauð
með Booztinu. Uppáhalds Booztið
mitt er Tropical en ótrúlegt en
satt þá er ég ekki kominn með
ógeð á neinum rétti og hlakka enn
til að fá mér Boozt á hverjum
degi. Þetta er þó erfitt að því leyti
að ég er svo fljótur að melta þetta
og því var ég svengri en vanalega,
sérstaklega fyrstu dagana. Svo er
maður vanur að borða bara það
sem er fyrir framan mann og það
eru því viðbrigði að þurfa að
passa upp á mataræðið.“
Tilraunin er gerð í tengslum
við kvikmyndina Super Size Me
sem sýnd verður hér á landi von
bráðar. „Myndin er um Morgan
Spurlock sem borðaði bara
McDonalds í heilan mánuð og á
fjórða degi var hann kominn með
mígreni og orðinn slappur. Á
frumsýningunni hér á landi 25.
ágúst hitti ég Spurlock og ber
saman líkamsástand mitt við hans
á 21. degi tilraunarinnar. Á þeim
degi var honum ráðlagt af lækn-
um að hætta samstundis því þá
var hann nær dauða en lífi. Það er
greinilegt að það er eitthvað að
matnum á McDonalds.“ ■
Aldrei betri eftir Boozt í heila viku
ÁRNI VALDIMAR
Hittir Morgan Spurlock á frumsýningu
myndarinnar Super Size Me til að bera
saman tilraunirnar.
46 12. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
... fær Viktoría Áskelsdóttir fyrir
að synda yfir Breiðafjörð til
styrktar Barnahjálp Sameinuðu
Þjóðanna.
HRÓSIÐ
Tomas kom hingað til lands fyrir
viku síðan og fer aftur út í dag.
Hann hefur unað sér ákaflega vel
hér á landi og gert marga skemmti-
lega hluti.
„Ég er búinn að hafa það mjög
gott. Ég fór á hestbak, fór á Esjuna
og söng á Gay Pride. Það var rosa-
lega gaman og gott að heyra fólk
klappa fyrir mér,“ segir Tomas,
sem talar ágæta íslensku. Hann
söng líka á skemmtistaðnum Nasa
og vakti mikla lukku viðstaddra.
„Ég er mjög ánægður með viðtök-
urnar. Fólk kom upp að mér allt
kvöldið og heilsaði mér. Það var
mjög góð tilfinning.“
Fyrsta sólóplata Tomasar, Sig
det’ logn, kemur út á mánudag.
Þetta er fyrst og fremst poppplata
með latin- og fönkáhrifum. Þar er
meðal annars að finna lagið Shame
on You sem Tomas söng svo eftir-
minnilega í undankeppni Evró-
vision.
Að sögn Tomasar var Evró-
vision-keppnin góður stökkpallur
þrátt fyrir að hann hafi ekki komist
áfram í úrslitin. „Þetta var gott
tækifæri til að sýna mig og tónlist-
ina mína. Það voru vonbrigði að
komast ekki áfram en aðalatriðið
var samt að komast í keppnina. Ég
fékk mikla athygli og er mjög
ánægður með að hafa tekið þátt.“
Hann útilokar ekki að keppa aftur í
Evróvision. „Hver veit? Ef ég fæ
gott tilboð og gott lag til að syngja,
það kemur bara í ljós.“
Faðir Tomasar er íslenskur en
býr úti í Danmörku. Amma hans
býr hins vegar hér á landi eins og
hálfbróðir hans. Tomas er að koma
hingað til lands í fjórða sinn en
vonast til að koma oftar á næst-
unni, bæði til að hitta skyldmenni
sín og til að syngja fyrir landann.
„Ég væri til í að halda hér flotta
tónleika. Ég er með frábæra
hljómsveit heima sem ég væri til í
að koma með,“ segir hann. Tomas
útilokar ekki að vinna með ís-
lenskum tónlistarmönnum í fram-
tíðinni. „Ef þeir eru að syngja
svipaða tónlist og ég þá væri það
gaman. Kannski væri sniðugt að
syngja jólalag eða eitthvað annað,
ég er opinn fyrir öllu.“ Hann seg-
ist ekkert hafa hlustað á íslenska
tónlist þegar hann var yngri en er
nú farinn að hlusta á Bubba, Stuð-
menn og Í svörtum fötum. Jónsi
tók einmitt þátt í Evróvision á
sama tíma og Tomas og eru þeir
góðir kumpánar.
Að lokum vill Tomas þakka Ís-
lendingum kærlega fyrir stuðning-
inn í kringum Evróvision og fyrir
þær frábæru viðtökur sem hann
hefur fengið hér á landi. „Ég er
mjög ánægður og þakklátur. Takk,
Íslendingar, fyrir að vera til staðar
fyrir mig og að hugsa ennþá um
mig eftir svona langan tíma. Það
var gott að vera uppi á sviði og
finna stuðninginn.“
freyr@frettabladid.is
TÓNLIST
TOMAS THORDARSON
■ Íslensk-ættaði Daninn sem söng í
Evróvision, er staddur hér á landi til að
kynna fyrstu sólóplötu sína.
TILRAUN
ÁRNI VALDIMAR BERNHÖFT
■ Hefur borðað búst í heila viku og seg-
ist léttari og kraftmeiri en áður.
TOMAS THORDARSON
Tomas hefur skemmt sér vel hér
á landi og vonast til að koma
aftur hingað sem allra fyrst.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
M
YN
D
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
TÓNLISTIN Sem stendur er ég að hlusta á demo diskinn af lög-
unum sem við erum að fara að gefa út á plötu. Það kemst lít-
ið annað að þessa dagana þar sem við erum í stúdíói að taka
upp.
BÓKIN Ég er að lesa bók sem heitir Engin miskunn. Þetta er
baráttusaga konu sem er að reyna að ná dætrum sínum til
baka eftir að þær voru seldar í hjónaband frá Englandi til
Jemens.
BÍÓMYNDIN Fór seinast á The Village og mér fannst hún bara
svona allt í lagi.
BORGIN Var í Lyon í Frakklandi síðast. Þar var ég að heim-
sækja fólk sem ég kynntist eftir að hafa verið skiptinemi í
Roanne í fyrra, bæ sem er um klukkutíma frá Lyon.
BÚÐIN Versla föt í Sautján Jeans á Laugaveginum en þegar ég
fer erlendis kaupi ég alltaf föt í H&M. Ég verslaði meðal ann-
ars mikið þar þegar ég var í Frakklandi.
VERKEFNIÐ Að ljúka við tökur á þáttunum um Nylon á Skjá
einum. Næstsíðasti þátturinn verður í kvöld og þar er sýnt frá
því sem átti sér stað hjá okkur um verslunarmannahelgina, En
framundan er svo bara að taka upp plötuna með Nylon og
fara á fullt í að koma sér í gott form fyrir útgáfutónleikana
sem haldnir verða í október.
AÐ MÍNU SKAPI
ALMA GUÐMUNDSDÓTTIR SÖNGKONA Í NYLON
Les baráttusögu og verslar í H&M Lárétt: 2 örg, 6 ending, 8 gruna, 9 lín, 11í röð, 12 líffæri, 14 máni, 16 utan, 17
kjáni, 18 málmur, 20 á nótu, 21 elskaði.
Lóðrétt: 1 káf, 3 kyrrð, 4 kraftlaus, 5
ambátt, 7 fíknin, 10 konunafni, 13 sendi-
mær Friggjar, 15 uppspretta, 16 fæðu, 19
ónefndur.
Lausn.
Lárétt:2gröm, 6in, 8óra, 9tau, 11mn,
12lunga, 14tungl, 16án, 17áni, 18tin,
20an, 21unni.
Lóðrétt: 1fitl, 3ró, 4örmagna, 5man, 7
nautnin, 10unu, 13gná, 15lind, 16átu,
19nn.
62-63 (46-47) Folk 11.8.2004 21:20 Page 2