Fréttablaðið - 20.08.2004, Blaðsíða 6
6 20. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR
Útgönguspá í miðdepli deilna um kosningasvindl:
Spáðu þvert á úrslitin
VENESÚELA, AP Útgönguspá sem
bandarískt fyrirtæki gerði meðan
kosningarnar í Venesúela voru
enn í fullum gangi er nú í mið-
depli deilna um hvort brögðum
hafi verið beitt til að tryggja
Hugo Chavez forseta áframhald-
andi völd. Samkvæmt spánni
vildu 59 prósent kjósenda binda
enda á kjörtímabil forsetans en
talning atkvæða sýndi að 59 pró-
sent vildu hafa hann áfram.
Erlendir kosningaeftirlits-
menn segjast ekki hafa orðið var-
ir við neitt sem gefi til kynna að
kosningasvindl hafi átt sér stað.
Þrátt fyrir það halda stjórnarand-
stæðingar því fram fullum fetum
og vísa til útgönguspárinnar.
Bannað var að birta niðurstöð-
ur skoðanakannana eða útgöngu-
spár fyrir lokun kjörstaða. Fjór-
um tímum áður en kjörstöðum
lokaði sendi bandaríska fyrirtæk-
ið Penn, Schoen og Berland þó út-
gönguspá sína til fjölmiðla. Síðan
hefur komið í ljós að fyrirtækið
réði Sumate til að hafa umsjón
með útgönguspánni. Sumate
skipulagði undirskriftaherferð
þar sem krafist var atkvæða-
greiðslu um framtíð forsetans.
Samtökin fá einnig styrki frá
bandarískum samtökum sem
njóta stuðnings Bandaríkjaþings
og hefur Chavez notað það til
stuðnings ásökunum sínum um að
Bandaríkjastjórn reyni að koma
honum frá völdum. ■
VIÐSKIPTI Viðsnúningur í rekstri
níu af tíu stærstu fyrirtækjanna í
Kauphöll Íslands nemur 21,5
milljörðum króna á fyrstu sex
mánuðum ársins.
Af tíu stærstu fyrirtækjunum
á aðeins Samherji eftir að birta
uppgjör. Af þessum níu fyrirtækj-
um er aðeinst eitt sem ekki bætir
afkomu sína. Það er Bakkavör, en
í reikningum síðasta árs er sölu-
hagnaður af sjávarútvegshluta
fyrirtækisins. Hagnaður vex hins
vegar af reglulegri starfsemi
Bakkavarar.
Burðarás er það félag sem skil-
aði mestum hagnaði á fyrri hluta
ársins. Þar er einnig mestur við-
snúningur. Hagnaðurinn jókst um
6,8 milljarða króna, úr 134 millj-
ónum í tæpa sjö milljarða króna.
Skýringin á þessari miklu
aukningu hagnaðar Burðaráss
liggur í söluhagnaði af eignum og
óinnleystum gengishagnaði af
verðbréfaeign.
Viðsnúningurinn er mestur í
bönkum og fjárfestingarfélögum
og er skýringin á svo miklum af-
komubata hækkandi gengi hluta-
bréfa og hagstætt umhverfi á fjár-
málamarkaði. „Gengishagnaður er
ekki mjög áberandi hjá KB banka
og hjá Íslandsbanka er mikill hluti
hans innleystur,“ segir Katrín
Friðriksdóttir hjá greiningardeild
Landsbankans. Hún segir að í upp-
gjörum Íslandsbanka og Lands-
bankans hafi vel mátt greina betri
afkomu í undirliggjandi rekstri á
milli fyrsta og annars ársfjórð-
ungs. Katrín segir dreifingu eigna
bankanna töluverða og þeir því í
stakk búnir til þess að taka áföllum
ef þau yrðu. Hún segir að bankarn-
ir hafi samhliða miklum gengis-
hagnaði aukið afskriftir útlána og
þar með búið í haginn fyrir fram-
tíðina. „Ég hef því ekki miklar
áhyggjur af þessu.“
Bæði bankarnir og fjárfesting-
arfélög hafa boðað frekari áher-
slu á fjárfestingar erlendis. Með
slíkum fjárfestingum verður af-
koman minna háð innlendri hag-
sveiflu. Einkum hafa menn horft
til Bretlands og Norðurlandanna.
„Þar er örugglega töluvert af fé-
lögum sem eiga hækkun inni.“
haflidi@frettabladid.is
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 70,88 -0,30%
Sterlingspund 129,64 -0,23%
Dönsk króna 11,79 -0,05%
Evra 87,66 -0,03%
Gengisvísitala krónu 121,96 -0,04%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 315
Velta 1.882 milljónir
ICEX-15 3.195 -0,48%
Mestu viðskiptin
Burðarás hf. 485.299
Actavis Group hf. 297.589
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 283.400
Mesta hækkun
Kögun hf. 1,44%
Flugleiðir hf. 1,22%
Mesta lækkun
Sæplast hf. -3,64
Straumur fjárfestingarbanki -2,47%
Össur hf. -1,91%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ * 10.047,8 -0,35%
Nasdaq * 1.826,4 -1,27%
FTSE 4.362,6 0,17%
DAX 3.723,0 -0,09%
NIKKEI 10.903,5 1,20%
S&P * 1.092,7 -0,22%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir formaður Knattspyrnu-sambands Íslands?
2Hvað heitir fasteignafélagið sem keypthefur Egilshöll?
3Hvaða heimsfræga tónlistarhátíðverður haldin í Reykjavík innan tíð-
ar?
Svörin eru á bls. 54
Danmörk:
Nýr lífsstíll
plagar konur
LÍFSSTÍLL Fimmta hver kona í Dan-
mörku hefur of mikið af kyn-
hormónum í líkamanum en slíkt
getur verið vandræðalegt og
hættulegt í senn. Það getur í ver-
stu tilfellunum þýtt að hárvöxtur
eykst á röngum stöðum en veldur
hármissi á höfðinu. Konur geta
fengið skegg og hár á brjóstin og
einkennin ágerast ef konan er yfir
kjörþyngd. Sífellt fleiri konur í
Danmörku leita sér hjálpar vegna
þessa og telja sérfræðingar eina
meginástæðuna vera þá að konur
hreyfi sig einfaldlega of lítið. ■
DEILT UM ÚRSLITIN
Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Nelson
Rampersad heldur á lofti útreikningum um
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um fram-
tíð forsetans.
Repúblikani á
Bandaríkjaþingi:
Íraksstríð
óréttmætt
NEBRASKA, AP Doug Bereuter, þing-
maður Repúblikanaflokksins í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings,
segir að það hafi verið mistök að
ráðast inn í Írak. Bereuter er
varaformaður þingnefndar um
leyniþjónustumál og studdi inn-
rásina í Írak þegar málið var lagt
fyrir Bandaríkjaþing.
Bereuter segist nú telja að
upplýsingar frá leyniþjónustunni
hafi verið gallaðar en segist ekki
geta sagt til um hvort þar hafi
verið um mistök eða vísvitandi
rangindi að ræða. ■
HAGNAÐUR FYRRIHLUTA ÁRSINS:
Janúar til júní 2004 Janúar til júní 2003 Mismunur
KB banki 6.158 3.065 3.093
Actavis Group hf.* 2.990 2.736 254
Íslandsbanki hf. 6.825 2.404 4.421
Landsbankinn 6.035 1.221 4.814
Burðarás hf. 6.964 134 6.830
Bakkavör Group hf.* 693 1.089 -396
Straumur fjárfestingarbanki 3.137 867 2.270
Össur hf.* 506 235 271
Flugleiðir hf. 12 -903 915
Samtals: 33.308 11.751 21.557
allar upphæðir í milljónum króna
* Uppgjör í erlendri mynt umreiknað á núverandi gengi íslensku krónunnar.
STJÓRNENDUR METHAFANS
Burðarás er methafinn þegar horft er til uppgjöra fyrstu sex mánaða ársins. Félagið skilaði
bæði mestum hagnaði skráðra félaga í Kauphöllinni og mestri hagnaðaraukningu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Vöxtur hagnaðar á
þriðja tug milljarða
Verulegur viðsnúningur er í afkomu stærstu fyrirtækja í Kauphöll Ís-
lands fyrstu sex mánuði ársins. Gengishagnaður einkennir uppgjör fjár-
málafyrirtækja. Hluti hans er innleystur og bati er í rekstrinum.
KÝR DRÁPUST Í TUGATALI Elding-
ar bönuðu 31 kú danska bóndans
Kurt Nielsen þegar óveður gekk
yfir landareign hans. Kýrnar leit-
uðu skjóls fyrir rigningu og eld-
ingum undir trjám en það varð
þeim ekki öllum til lífs. Eldingum
laust niður í trén og aðeins 54 af
85 kúm bóndans lifðu þrumu-
veðrið af.
SPORNA GEGN UNGMENNA-
DRYKKJU Finnskir lögreglumenn
og heilbrigðisstarfsmenn hafa
óskað eftir nánara eftirliti með
áfengissölu til að sporna gegn
ungmennadrykkju. Ofdrykkja
ungmenna hefur aukist um tíu
prósent á því hálfa ári sem er lið-
ið frá því að álögur á áfengi voru
lækkaðar um allt af 44 prósent
eftir tegundum.
■ NORÐURLÖND
MENGUNARSKÝ
Útlínur Hong Kong dofna í skýinu.
Átta árekstrar:
Mengun í
Hong Kong
HONG KONG, AP Mengunin í Hong
Kong hefur verið svo mikil síð-
ustu daga að hún byrgir mönnum
sýn. Útsýni er á köflum svo lítið
að það er talið ástæðan fyrir
árekstrum átta skipa í höfn Hong
Kong og nágrenni. Ekki mátti
miklu muna að illa færi í einu til-
felli. Þá féll skipverji útbyrðis í
árekstri tveggja skipa en félögum
hans tókst að bjarga honum um
borð.
Mengunin er fjarri því hættu-
laus og hafa yfirvöld varað fólk
sem á við hjartasjúkdóma að
stríða eða á erfitt með andardrátt
við því að vera á ferli utandyra. ■
06-07 19.8.2004 20:52 Page 2