Fréttablaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 10
Samkeppnisstaða íslenskra fyrir- tækja mun skerðast miðað við það sem tíðkast í nágrannalöndunum ef tillögur nefndar viðskiptaráð- herra um íslenskt viðskiptaum- hverfi verða að lögum. Þetta er mat Þórdísar J. Sigurðardóttur, eins nefndarmanna og fram- kvæmdastjóra Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík, Ara Ed- wald, framkvæmdastjóra Sam- taka atvinnulífsins, Þórs Sigfús- sonar, framkvæmdastjóra Versl- unarráðs, og Þórðar Friðjóns- sonar, forstjóra Kauphallarinnar. Í skýrslunni er lagt til að Sam- keppnisstofnun verði veitt heim- ild til þess að krefjast uppstokkun á fyrirtækjum teljist þau „hafa brotið gegn ákvæðum samkeppn- islaga eða skapað aðstæður sem hafi skaðleg áhrif á samkeppn- ina“. Tekið er fram að tillagan sé í samræmi við breytingar sem ný- lega voru gerðar á samkeppnis- reglum Evrópusambandsins og norskum samkeppnislögum. Þá segir að sambærilegar heimildir sé að finna í fleiri löndum. Einnig er bent á að Samkeppnisstofnun hafi þegar heimild til þess að beita ákvæði sem þessu varðandi opinberar stofnanir sem stunda samkeppnisrekstur. Ekki leyft í öðrum löndum Þórdís heldur því þó fram í sér- áliti sínu í skýrslunni að heimild ESB gildi einungis þegar um sé að ræða viðskipti milli aðildarríkja sambandsins. ESB hafi ekki rétt á að fara inn í einstök ríki og krefjast uppstokkunar á fyrirtækjum sem starfi einungis á heimamarkaði. Þórdís bendir á að Svíar og Finnar hafi sérstaklega tekið þá ákvörðun að færa þetta úrræði ekki í lög. Samtök atvinnulífsins telja ekki þörf fyrir heimild Samkeppnis- stofnunar til að brjóta upp fyrir- tæki, að sögn Ara Edwald. „Menn hljóta að gjalda varhug við svo rót- tækum heimildum. Þetta er ekki nokkuð sem Norðurlöndin hafa verið að taka upp í landslögum sínum. Samkeppnisyfirvöld eiga að bregðast við ólögmætu atferli en ekki að ráðskast með uppbyggingu atvinnulífsins. Þau eiga að bregðast við framgöngu en ekki stærð,“ segir Ari. Þór Sigfússon segir að í Noregi sé ekki sátt um hvernig túlka eigi þetta nýja ákvæði í samkeppnislög- unum þar. „Það er hins vegar aug- ljóst að reglur ESB túlkast þannig að um sé að ræða fyrirtæki sem eru að misnota markaðsaðstöðu á stærri fjölþjóðlegum mörkuðum og eiga þær því ekki við um Ísland,“ segir Þór. Þórður Friðjónsson segir að með heimildinni kunni að vera gengið lengra en önnur lönd hafa gert. „Við þurfum að hugsa okkur um tvisvar ef tillögur og hugmyndir nefndar- innar skerði samkeppnisaðstöðu ís- lenskra fyrirtækja. Það er brýnt að koma í veg fyrir að við tökum hér upp reglur sem ganga lengra en annars staðar er gert,“ segir hann. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að þess- ar áhyggjur séu byggðar á misskiln- ingi. „Tillögur nefndarinnar eru í samræmi við það sem tíðkast í lönd- unum í kringum okkur og Evrópu- sambandið hefur þennan rétt. Ákvæðið verður tekið inn í EES- samninginn og því mun Eftirlits- stofnun EFTA, ESA, fylgjast með því að þessu verði framfylgt á EES- svæðinu. Það verður að setja þetta í íslensk lög svo hægt verði að setja þetta inn í íslenskan rétt en Norð- menn hafa þegar gert það. Nefndin er fyrst og fremst að setja fram þessar tillögur svo regluverkið verði í samræmi við viðskiptalönd 10 1. september 2004 MIÐVIKUDAGUR FLÓÐ Í RÉNUN Flóðin sem kostuðu á þriðja þúsund manns lífið í Indlandi, Bangladess og ná- grannalöndum er í rénun þótt enn sé vatnsmagnið mun meira en fólk á að venj- ast utan regntímans. Líf fólks er þó smám saman að komast í samt lag eftir erfiðleika síðustu vikna. Óánægja með úthlutun parhúsalóða í Kópavogi: Yfir 100 sóttu um en einn fékk tvær HÚSNÆÐISMÁL Einn aðili fékk tveimur samliggjandi parhúsalóð- um í Kópavogi úthlutað nú ný- verið, en umsækjendur voru vel á annað hundrað talsins. Mikillar óánægju hefur gætt meðal þeirra umsækjenda sem ekkert fengu og gagnrýna þeir harðlega, að bæjar- ráð skyldi úthluta einum manni tveimur lóðum, þegar ásókn í þær var svo mikil sem raun bar vitni. Flosi Eiríksson, sem sæti á í bæjarráði, sagði að á milli 130 og 140 umsóknir hefðu borist um lóð- irnar sem voru átján talsins. Flosi kvaðst hafa staðið að þeim ákvörðun um úthlutanir sem teknar hefðu verið á fundinum, þar á meðal að Bragi Michaelsson fengi tvær lóðir. „Bæjarráð taldi, eftir að hafa farið yfir allar umsóknirnar, að það væri skynsamlegt að úthluta þeim með þessum hætti,“ sagði Flosi. „Þá taka menn mið af reglum sem liggja fyrir í tíu liðum. Þar kveður á um fjölskyldu- aðstæður, fjármálagetu, hvað menn hafi sótt um og svo framvegis. Ég hefði viljað standa að þessu með öðrum hætti en þetta var til- laga meirihlutans. Það hefur ekki verið venja í þessum lóðaúthlut- unum að láta bóka andmæli heldur hafa menn reynt að ná samstöðu.“ ■ KÓPAVOGUR Megn óánægja er meðal tuga umsækjenda um parhúsalóðir í Kópavogi, sem höfðu ekkert nema fyrirhöfnina upp úr krafsinu, meðan einn aðili fékk úthlutað tveimur lóðum. Heimild til uppstokkunar heftir íslensk fyrirtæki Einn nefndarmanna auk fulltrúa atvinnulífsins og Kauphallarinnar segja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja skerðast verði sett lög sem heimili Samkeppnisstofnun að stokka upp fyrirtæki brjóti þau gegn samkeppnislögum. Viðskiptaráðherra segir þessar áhyggjur byggðar á misskilningi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA OLÍULEIÐSLA Í LJÓSUM LOGUM Uppreisnarmenn hafa sprengt upp olíu- leiðslur í suðurhluta landsins. Olíuleiðslur sprengdar: Lokað fyrir útflutning ÍRAK, AP Uppreisnarmönnum í Írak hefur tekist að loka fyrir alla olíu- flutninga frá Írak, í það minnsta út vikuna. Uppreisnarmenn hafa sprengt upp olíuleiðslur í suður- hluta landsins og þannig komið í veg fyrir að hægt sé að flytja olíu úr landinu á markaði erlendis. Þetta er mikið áfall fyrir stjórn landsins og bágborinn efnahag. Um 90 prósent alls olíuútflutn- ings Íraka er af olíulindum í suður- hluta landsins. Þar eru allar leiðir lokaðar og sömu sögu er að segja í norðurhluta landsins. Þar liggur ol- íuútflutningur til tyrknesku hafn- arinnar Ceyhan niðri. ■ SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING SKÝRSLA VIÐSKIPTARÁÐ- HERRA UM ÍSLENSKT VIÐ- SKIPTAUMHVERFI VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR AÐ LOKNUM RÍKISSTJÓRNARFUNDI Í GÆR Skýrsla viðskiptaráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær. Í henni er lagt til að breytingar verði gerðar á Samkeppnisstofnun og hún efld. Stofnunin fái heimild til að stokka upp fyrirtæki brjóti þau gegn samkeppnislögum. Þá er gert ráð fyrir að Samkeppnisráð verði lagt niður en Samkeppnisstofnun fari með núverandi hlutverk þess. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.