Fréttablaðið - 01.09.2004, Page 39
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson var
valinn sem hægri skytta í úrvalslið
Ólympíuleikanna í Aþenu. Það
voru Bengt Johansson, fyrrver-
andi landsliðsþjálfari Svía, og
Frakkinn Daniel Costantini sem
völdu liðið í samvinnu við lands-
liðsþjálfara þátttökuþjóðanna í
Aþenu.
Aðrir í liðinu eru Carlos Perez
frá Ungverjalandi, Juan Garcia frá
Spáni í vinstra horni, Mirza
Dzomba frá Króatíu í hægra horni
og Christian Schwartzer frá
Þýskalandi á línuna. Henning Fritz
frá Þýskalandi var markmaður
mótsins en leikstjórnandi var val-
inn Ivano Balic frá Króatíu sem
jafnframt var valinn besti leik-
maður Ólympíuleikanna.
MIÐVIKUDAGUR 1. september 2004
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
29 30 31 1 2 3 4
Miðvikudagur
SEPTEMBER
■ ■ LEIKIR
16.45 Bikarkvöld á RÚV. Endur-
sýndur þáttur frá þriðjudags-
kvöldi.
■ ■ SJÓNVARP
17.20 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði
heima og erlendis.
17.30 Valur og KR mætast að
Hlíðarenda í fjórðungsúrslitum
Visa-bikarkeppninnar.
18.35 Meistaradeildin á Sýn. Gull-
leikur. Barcelona og Manchest-
er United hafa háð nokkra hildi
á knattspyrnuvellinum í gegnum
árin. Sigur Rauðu djöflanna á
Börsungum í úrslitaleik Evrópu-
keppni bikarhafa 1991 er með
þeim eftirminnilegri.
20.15 Meistaradeildin á Sýn. Úr-
slitaleikurinn í Evrópukeppni
meistaraliða árið 1994 þegar
Barcelona og AC Milan mæt-
tust. Leikurinn var háður í Aþenu
í Grikklandi. Flestir bjuggust við
jöfnum og spennandi leik enda
frábærir leikmenn í báðum lið-
um.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
23.10 Bikarkvöld á RÚV. Sýnt úr
leik í undanúrslitum bikarkeppni
kvenna.
23.15 Ryder Cup 2004 á Sýn. Það
eru lið Bandaríkjanna og Evr-
ópu sem leika um Ryder-bikar-
inn í golfi. Í þessari þáttaröð er
fylgst með kylfingunum sem þá
verða í eldlínunni og rætt við
fyrirliðana, Hal Sutton og Bern-
hard Langer.
23.45 HM-hálandaleikar á Sýn.
Sýnt frá skosku Callander-há-
landaleikunum. £
Ólympíuliðið á Aþenu:
Ólafur í úrvalsliðið
ÓLAFUR STEFÁNSSON
Ólafur var sjötti markahæsti leikmaður
mótsins með 57 mörk og var í þriðja sæti
yfir flestar stoðsendingar, 23 talsins.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Þýski knattspyrnuþjálfarinn RudiVöller hefur átt í samræðum við
forráðmenn Róma í ítölsku úrvals-
deildinni en
hann lék á árum
áður með liðinu.
Þá hefur Bayer
Leverkusen sýnt
Völler áhuga en
hann var á mála
hjá félaginu
undir lok síðasta
áratugar. Sam-
kvæmt ítölskum
blöðum hefur
Róma boðið Völler eins árs samning
sem hljóðar upp á 140 milljónir
íslenskra króna. „Það styttist í að
ákvörðun verði tekin í þessu máli. Ég
þarf að funda um þetta með fjöl-
skyldunni“ sagði Völler.
Charles Barkley, fyrrum NBA-leik-maður, er sagður hafa ráðist á
konu á ósiðlegan hátt í Fíladelfíu á
mánudagskvöldið. Árásin átti sér
stað á næturklúbbnum 32 Degrees.
Rannsókn stendur nú yfir á málinu
en engin niðurstaða hefur fengist.
Lögreglan í Fíladelfíu lagði áherslu á
að formleg kæra hefði ekki átt sér
stað og að málið væri á rannsóknar-
stigi. Barkley lék lengst af með Phila-
delphia 76'ers, færði sig þaðan til
Phoenix Suns og loks Houston
Rockets, þar sem hann endaði feril-
inn. Hann hefur níu sinnum verið í
Stjörnuliði NBA og var valinn besti
leikmaður tímabilsins 1993. Hann
vinnur nú sem íþróttaþulur á sjón-
varpsstöðinni TNT.
Bandaríska tennisstjarnan SerenaWilliams byrjaði vel á opna
bandaríska meistaramótinu í tennis.
Williams mætti
S a n d r a
Kleinova og átti
ekki í neinum
v a n d r æ ð u m
með andstæðing
sinn. Williams
vann 6-1 og 6-3
og virðist vera í
ágætis formi.
Tennisstjarnan
hefur haft
hægt um sig síðan í byrjun sumars
þegar hún meiddist á vinstra hné.
„Ég er nánast orðin fullbata“ sagði
Williams. Þess má geta að hún hætti
á síðustu stundu við þátttöku í
Ólympíuleikunum í Aþenu til þess að
ná geta náð fullum styrk.