Fréttablaðið - 08.09.2004, Page 18
„Hér starfa sérfræðingar á öll-
um sviðum og okkur langaði til
þess að miðla þekkingu þeirra til
almennings,“ segir Hrefna Guð-
mundsdóttir, fræðslu- og upplýs-
ingafulltrúi Umhverfisstofnun-
ar.
Á þriðjudag í næstu viku hefst
fyrirlestraröð stofnunarinnar.
Sérfræðingar stofnunarinnar á
ýmsum sviðum taka þar fyrir
ýmis málefni sem tengjast sviði
Umhverfisstofnunar, á sviði
matvæla, efnavara, dýravernd-
unarmála, mengunarmála og
náttúruverndar. „Fyrirlestrarnir
verða á léttu og aðgengilegu
formi,“ segir Hrefna. „Umhverf-
isstofnun er tveggja ára gömul
stofnun, hér er mikil þekking til
staðar sem við viljum gefa al-
menningi kost á að njóta.“
Sigurður Örn Guðleifsson,
lögfræðingur Umhverfisstofn-
unar, og Ólafur Árnason, sér-
fræðingur á framkvæmda- og
eftirlitssviði Umhverfisstofnun-
ar, ríða á vaðið á þriðjudaginn
með erindi sem þeir nefna „Akst-
ur utan vega“. Fyrirlestrarnir
hefjast klukkan 15. Aðgangur er
öllum ókeypis. Fyrirlestrarnir
fara fram í húsakynnum Um-
hverfisstofnunar, Suðurlands-
braut 24. Fyrirlestrarnir verða
aðra hverja viku og lýkur röðinni
7. desember. ■
Minnisbók í vasa þar sem hægt er að nálgast hana öllum stundum get-
ur haldið lífi í góðum hugmyndum. Hægt er að punkta í hana allt sem
viðkemur þeim verkefnum sem tekist er á við í náminu. Um leið og
maður man eittthvað mikilvægt eða dettur eitthvað í hug er ráð að rita
það strax í bókina og þannig gleymist það ekki.
ENSKA ER OKKAR MÁL
• Talnámskeið - 7 vikur
• Viðskiptanámskeið
• Einkatímar
• Enskunám erlendis
• Kennt á mismunandi stigum
• Barnanámskeið (5-15 ára)
• Málfræði og skrift
• Þjóðfélagsleg umræða
• Kvikmyndaumræða
• Frítt kunnáttumat og ráðgjöf
Enskunámskeið að hefjast
Hringdu í síma 588 0303 • FAXAFENI 8 • www.enskuskolinn.is
Skráning í síma 891 7667 (Bjarni) og 896 1248 (Þuríður).
Reiðskólinn Þyrill – Reiðhöllinni Víðidal.
Næsta námskeið 25. september
Barnatímar kl.17.00
Byrjendur fullorðnir kl. 18.00
Framhaldstímar kl. 19.00
REIÐSKÓLINN ÞYRILL
Uppl. og
skráning
í síma
588 7887
og 899 4600
„Þetta er nítjánda eða tuttugasta árið sem við erum
með prjónanámskeið,“ segir Malín Örlygsdóttir, eig-
andi garnverslunarinnar Storksins í Kjörgarði. „Nú
er þetta eiginlega orðinn handavinnuskóli,“ segir
hún og hlær, og það eru orð að sönnu því í haust
verða haldin þar fjögur prjónanámskeið, fimm búta-
saumsnámskeið og þrjú heklnámskeið en bæði búta-
saumurinn og heklið eru nýjungar.
Malín segir konurnar sem koma á námskeiðin
vera afar misjafnlega á vegi staddar og í raun sé um
einstaklingskennslu að ræða enda hóparnir fámenn-
ir. „Konurnar kynnast líka innbyrðis og stundum
hafa orðið til saumaklúbbar upp úr námskeiðunum
hjá okkur.“
Malín segir kennsluna á prjónanámskeiðunum
byggja á prufum. „Ef maður rekst á eitthvað erfitt í
blöðunum, eitthvað rætið og andstyggilegt, þá hugs-
ar maður strax að þetta sé upplagt viðfangsefni á
prjónanámskeiðinu.“
Kaffe Fasset, sem er aðalhönnuðurinn í Rowan-
garninu, gaf út fyrstu bútasaumsbókina sína fyrir
nokkrum árum. Fljótlega fór hann svo að hanna öll
sín efni sjálfur. „Kaffe Fasset fer aldrei troðnar slóð-
ir og hikaði til dæmis ekki við að nota 40 til 50 liti í
peysu. Hann er alger litasnillingur og efnin hans eru
ótrúlega falleg í litunum. Svo hreinlega spýtir hann
þeim út.“ Bútasaumsnámskeiðin miðast við efni
Kaffe Fasset og eru sett upp utan um ákveðin verk-
efni sem gert er ráð fyrir að lokið sé við á námskeið-
inu. Þess vegna líða tvær vikur á milli skipta á þess-
um námskeiðum. „Fátt er jafn svekkjandi og hálf-
kláruð verkefni af handavinnunámskeiðum sem
daga uppi í plastpokum inni í skáp.“
Heklið er vinsælt um þessar mundir en sjálf segist
Malín hafa hafið handavinnuferil sinn á hekli. „Það er
svo einfalt að hekla og maður er í raun miklu frjálsari
með heklunál en prjóna.“ Á heklnámskeiðinu verður
tekist á við grunnatriði í hekli. Heklaðar eru dúllur
sem heklaðar eru saman ásamt mörgu öðru.
„Handavinna er svo skapandi og skemmtileg,“
segir Malín. „Það er verst að karlarnir skuli ekki
vera í þessu líka, fyrir þá.“ ■
Handavinnuskóli í Storkinum:
Skapað úr garni og efnum
Malín Örlygsdóttir tók við rekstir Storksins af móður sinni fyrir um 20 áru og byrjaði þá að halda prjónanámskeið.
Prjónanámskeið
6 skipti 4 kennslu-
stundir í senn, einu
sinni í viku.
Heklnámskeið
3 skipti 4 kennslu-
stundir í senn, einu
sinni í viku.
Bútasaums-
námskeið
2 til 3 skipti (eftir
viðfangsefnum), á
tveggja vikna fresti.
Fyrirlestraröð Umhverfisstofnunar:
Vísindin gerð aðgengileg
Dagskrá haustið 2004
14. sept.: Akstur utan vega
28. sept.: Samsetning og öryggi skóla-
máltíða
5. okt.: Varnir gegn mengun sjávar og
stranda
26. okt.: Meindýravarnir
9. nóv.: Vefgátt fyrir landupplýsingar
23. nóv.: Erfðabreytt matvæli
7. des.: Svanurinn - leið til betri heilsu
Hrefna Guðmundsdóttir segir mikilvægt
að miðla þekkingu Umhverfisstofnunar
til almennings.
Á FÖSTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -