Fréttablaðið - 16.10.2004, Síða 1
● spilar á airwaves
Þórunn Antonía Magnúsdóttir:
▲
SÍÐA 26
Skipar helming
The Honeymoons
● vínþjóna
Sævar Már Sveinsson:
▲
SÍÐA 50
Tók þátt í heims-
meistarakeppni
Meistaradeildin í handbolta:
▲SÍÐA 38
Haukar töpuðu
í Frakklandi
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
OPIÐ HÚS Gjörgæsludeildin við Hring-
braut minnist 30 ára afmælis með ráð-
stefnu og opnu húsi í dag. Ráðstefnan
hefst klukkan 13 og húsið verður opnað
klukkan 14.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
16. október 2004 – 283. tölublað – 4. árgangur
TELJA BROTIN FYRND Olíufélögin
halda því fram að meint brot á samkeppn-
islögum á rúmlega sjö ára tímabili af níu
sem Samkeppnisstofnun rannsakar séu
fyrnd. Sjá síðu 2
REYNDIR AÐ SMYGLA HASSI Mað-
ur er ákærður af Ríkissaksóknara fyrir inn-
flutning á samtals fimmtán kílóum af hassi í
þremur skipaferðum frá Danmörku frá júní í
fyrra þar til í janúar á þessu ári. Sjá síðu 2
VÍGHUNDAR BANNAÐAR Borgaryfir-
völd íhuga nú að banna víghunda í borg-
inni. Upphaf málsins má rekja til þess þeg-
ar Rottweiler og Doberman rifu kött í sig í
Breiðholtinu. Sjá síðu 8
AVION GROUP STOFNAÐ Nýtt flug-
rekstrarfélag með um sjötíu milljarða veltu
verður stofnað um áramót. Magnús Þor-
steinsson verður stjórnarformaður Avion
group og stefnt er að skráningu í Kauphöll
Íslands. Sjá síðu 20
Ólafur Kristján Guðmundsson:
▲Í MIÐJU BLAÐSINS
Í eilífðarbasli
með bílinn
● bílar
Kvikmyndir 42
Tónlist 44
Leikhús 44
Myndlist 44
Íþróttir 38
Sjónvarp 48
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að lækka tekjuskatt um
4% og hefur Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra sagt að með því
verði tekjuskattshlutfallið fært
niður á sama stig og það var þegar
staðgreiðslukerfinu var komið á
1988.
Tölur sem hagdeild Alþýðusam-
bands Íslands hefur unnið að
beiðni Fréttablaðsins benda hins
vegar til að skattbyrði, sérstaklega
láglaunafólks, hafi þyngst á þess-
um tíma, meðal annars vegna þess
að persónuafsláttur hefur ekki
fylgt verðlagsþróun. Reiknuð var
þróun skatta fólks sem hafði fimm-
tíu þúsund, hundrað þúsund og
hundrað og fimmtíu þúsund krón-
ur í laun árið 1988.
Þegar skoðað er hvernig skatt-
byrðin hefur breyst á þessu tíma-
bili kemur í ljós að allir tekjuhópar
hafa verið að greiða hærri skatta.
Hlutfallslega hafa skattgreiðslur á
lágar og miðlungstekjur verið að
vaxa mest.
Einstaklingur með 50.000 í mán-
aðartekjur greiddi 4,1% af tekjun-
um í skatta 1988. Ef tekjur viðkom-
andi hafa hækkað samkvæmt
launavísitölu frá þeim tíma eru
þær komnar í rúmar 129 þúsund
krónur í dag. Hlutfall tekna sem
greiddar eru í skatt eru nú 15,3%
og hafa því ríflega þrefaldast. Ef
laun og skattgreiðslur einstaklings
með 150.000 króna tekjur 1988 eru
framreiknaðar kemur í ljós að þær
hafa vaxið úr 24,8% í 31,9%.
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur ASÍ, segir að dregið
hafi mjög úr tekjujöfnunarhlutan-
um á liðnum árum: „Þetta hefur
leitt til þess að hlutfallsleg skatt-
byrði þeirra sem eru með lægri og
miðlungstekjur hefur verið að
aukast verulega. Kaupmáttarauki
lágtekjufólks á liðnum árum hefur
því í vaxandi mæli runnið í ríkis-
sjóð. Mér sýnist að þegar skatta-
lækkunaráform ríkisstjórnarinnar
verða að fullu komin til fram-
kvæmda muni skattar þeirra
tekjuhærri hafa lækkað mest bæði
í krónum talið og einnig hlutfalls-
leg skattbyrði. Það virðist því vera
stefnan að draga enn frekar úr
tekjujöfnuninni.“
a.snaevarr@frettabladid.is
Skattbyrði þrefaldast
Þegar staðgreiðsla skatta var tekin upp 1988 borgaði láglaunamaður 4.1% tekna í skatt en nú
greiðir hann 15.3% í skatt. ASÍ segir stefnuna vera að draga úr tekjujöfnun.
EIRÍKUR JÓNSSON RÆÐIR VIÐ INGIBJÖRGU ÓSKARSDÓTTUR Ingibjörg átti fund með Eiríki ásamt hópi mæðra og barna þeirra.
Þær greindu frá óánægju sinni yfir störfum undanþágunefndar, sem geri upp milli fatlaðra barna í almennum grunnskólum og sérskólum.
FLOTT UM ALLT LAND Víða bjartviðri
og hæglætisveður. Gæti dropað örlítið með
suðurströndinni. Milt í dag en svo minnir
veturinn á sig. Sjá síðu 6
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Undanþágur:
Stranda á
launagreiðslu
VERKFALL Sveitarfélögin hafa staðið
í vari kennara þegar kemur að
undanþágum vegna fatlaðra barna,
segir Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands. Væru
sveitarfélögin tilbúin að greiða full
laun mætti leysa vandann.
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson,
formaður Launanefndar sveitar-
félaganna, segir hverju sveitar-
félagi frjálst að semja um laun
þeirra kennara sem fá undanþágur.
Hann segist telja eðlilegast að
sveitarfélögin greiði fyrir vinnu í
verkfalli kennara á þann hátt sem
tíðkast hefur.
Mæður fjölfatlaðra barna
mættu með börnum sínum á fund
Eríks í gær. Þær bentu á erfiðar
aðstæður fjölskyldna þeirra í verk-
falli kennara og óskuðu eftir því að
börnin gætu sótt skóla.
Ingibjörg Óskarsdóttir fór fyrir
hópi mæðranna. Sonur hennar Ósk-
ar Óli er í almennum grunnskóla.
Hún hefur unnið þrjá daga frá því
að verkfalll kennara hófst.
Sjá síðu 4
RÁÐSTEFNA Rjóminn af afrískum
fræðimönnum á sviði borgar-
menningar er á leið hingað til
lands upp úr áramótum til að sitja
ráðstefnu um ungt fólk í afrískum
borgum. Upphaflega stóð til að
halda ráðstefnuna í Harare, höfuð-
borg Simbabve, en þegar ljóst
varð að erfiðleikum væri bundið
að halda ráðstefnuna þar varð nið-
urstaðan sú að flytja ráðstefnuna
um set og það alla leið til Íslands.
Stjórnmálaástandið í Simbabve
er viðsjárvert og hefur það sætt
gagnrýni margra Afríkuríkja og
út fyrir álfuna. Pólitísk óvissa þar
varð til þess að menn vildu flytja
ráðstefnuna og þá voru góð ráð
dýr.
„Fyrst þeir gátu ekki haldið
þetta í Simbabve var ákveðið að
hafa þetta á Íslandi,“ segir Friðrik
Rafnsson hjá Háskóla Íslands,
sem í samvinnu við Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands aðstoðar við
undirbúning ráðstefnunnar. Árs-
fundur Norrænu Afríkustofnun-
arinnar var hér í vor og ráðstefna
sem tengdist henni. „Það fór gott
orð af skipulaginu hér. Amin
Kamete hjá Norrænu þróunar-
samvinnustofnuninni lagði þetta
til og þegar hann þurfti að sann-
færa hann menn endanlega kom
hann með mjög sterk rök sem
heita Bláa lónið. Góður fundar-
staður, friðvænlegt land og blátt
lón réðu því úrslitum,“ segir Frið-
rik. - bþg
Ráðstefna afrískra fræðimanna um ungt fólk tekur óvænta stefnu:
Afrísk ráðstefna færð til Íslands
● tvö töp í tveimur leikjum
Allt landið
Me›alnotkun fjölmiðla
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups mars og ágúst '04
Meðallestur dagblaða.
Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi.
Uppsafnað yfir viku í tímaritum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Draumurinn um riddarann á hvíta
hestinum og hamingjusama lífdaga í
konungsríki er hvergi á undanhaldi.
Umdeildur
SÍÐUR 34 & 35
▲
Prinsessudraumar
SÍÐUR 28 & 29
▲
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
segir kirkjuna eiga að taka þátt í
þjóðfélagsumræðunni.
Dagblaðsauglýsing:
Prinsessa vill
skilnað
HOLLAND, AP Margréti prinsessu í
Hollandi hefur gengið illa að hafa
uppi á eiginmanni sínum og kom
það ljóslega fram í hollensku dag-
blaði þegar hún birti auglýsingu
sem beint var til hans. Hún var þó
ekki að reyna að fá hann aftur
heim heldur tilkynnti hún að hún
ætlaði sér að skilja við hann og að
hann hefði frest fram í janúar til
að andmæla skilnaðinum. ■